Dagblaðið - 24.07.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ1979.
5
Keflavík frestar greiðslu til Olíumalar:
Hafa enga pen-
inga fengið,
en velvild
frá ríkinu
,,Við Alþýðuflokksmenn lögðum til
á bæjarstjórnarfundi að greiðslu til
Olíumalar yrði frestað þar til meira
Iægi fyrir um stöðu fyrirtækisins. Það
stendur víst ein enn rannsóknin yfir á
fyrirtækinu núna. Það var samþykkt
að vísa málinu til bæjarráðs, sem þýðir
auðvitað frestun,” sagði Ólafur
Björnsson, bæjarstjórnarmaður í
Keflavík, í gær.
„Við erum auðvitað á því að þetta
fyrirtæki verði að vera til, en við líðum
ekki hvaða svínarí sem er í skjóli þess.
Það kom fram þegar farið var að skoða
reikninga fyrirtækisins að söluskatts-
skil voru ekki sem skyldi og að eignir
fyrirtækisins höfðu verið stórum
oftaldar. Enda held ég að ekkert
sveitarfélag sé farið að greiða nokkuð
til fyrirtækisins,” sagði Ólafur.
Ekki hvort, heldur
hvernig á að styrkja
Olíumöl
„Það er rétt að við erum ekki farin
að fá neina peninga frá sveitarfélögun-
um, en þau eru mörg hver búin að
skrifa undir skuldaviðurkenningar. Við
erum hins vegar ekki farnir að leysa
eina einustu af þeim út á meðan málið
er allt svona óljóst,” sagði Tómas
Sveinsson, framkvæmdastjóri Olíu-
malar. „Framkvæmdastofnum hefur
sýnt fyrirtækinu mikinn velvilja og
greitt þannig fyrir þvi að í kvöld er á
leiðinni skip til Vestmannaeyjar með
svartolíu og asfalt frá Norðurlöndum.
Það er rangt hjá Ólafi að verið sé að
endurskoða fyrirtækið. Sú nefnd sem
ríkið kom á laggirnar á eingöngu að
athuga hvernig stuðningur komi fyrir-
tækinu bezt. Ekki er lengur spurning
um hvort styðja eigi það, heldur
hvernig.
Olíumöl er í fullum gangi eins og er.
Auðvitað hefur þessi seinagangur
valdið þvi að við höfum færri verkefni
en annars væri, en við höfum ekki
orðið að hætta við neitt af þeim verk-
efnum sem við höfum byrjað á.-
Að einhver firra sé í reikningum vil
ég ekki um ræða, en ég gæti trúað að
Ólafur Nilsson endurskoðandi tæki
það óstinnt upp. Og ekki hef ég trú á
því að hann sýni eitthvað sem ekki er,”'
sagði Tómas.
Hann var þá spurður að því hvort
Olíumöl væri ekki búið að glata trausti
sveitarfélaganna sem í því eiga. „Ekki
meira en svo að Ölfushreppur hefur
samþykkt að ganga inn í fyrirtækið.
Að vísu ekki með stóran hlut en hlut
samt,” sagði hann.
-DS.
Söngur Hamrahlíðarkórsins ( Menntaskólan-
um við Hamrahlíö 22. júlf.
Europa Cantat er haldið í sjöunda
sinn í Luzern í Sviss og hefst upp úr
miðri þessari viku. í ár, eins og fyrir
þremur árum, er Hamrahlíðarkórinn
fulltrúi okkar íslendinga á þessu
fræga söngvamóti, þar sem fólk
kemur saman söngsins eins vegna.
Ekki til að keppa um hver sé mestur
og beztur heldur til þess eins að njóta
þess að koma saman og vinna að einu
markmiði, sem hafið er yfir dægur-
þras og þjóðarembing. Rétt þykir
mér að taka fram í upphafi, að ég veit
tæplega verðugri fulltrúa, til að
koma fram fyrir landsins hönd á vett-
vangi, sem þessum. Það sýndu þau
og sönnuðu enn einu sinni þessi
prúðj ungmenni, sem skipa Hamra-
hlíðarkórinn.
Fallistar
Mörgum þykir furðu sæta hversu
vel gengur að halda stil og gæðum
skólakórs sem Hamrahlíðarkórsins,
svo jöfnum gegnum árin, sem raun
ber vitni. Slíkt er að sjálfsögðu fyrst
og fremst að þakka aðstandendum
kórsins, stjórnandanum Þorgerði
Ingólfsdóttur og Guðmundi
Arnlaugssyni rektor. Þorgerður
orðaði það svo skemmtilega að það
væru þau sem sætu eftir, en
afgangurinn af bekknum næði prófi
fyrr eða siðar, og útskrifaðist þar
Kr. 4.200.-
Tjaldstólar
Kr. 6.500.-
3 cm. svampdýna
Kr. 20.600.-
Sólstóll með 10 cm svampdýnu
Kr. 17.500.-
Stólstóll með 4 cm svampdýnu.
Sólbekkurkr. 22.700.-
10 cm. svampdvna
Allt í útilífiö!
GLÆSILEG VARA
Á MJÖG HAGSTÆÐU
VERÐI.
Komið, sjáið og sannfœrizt
PÓSTSENDUM
Útilíf
GLÆSIBÆ - SÍMI30350
Kr. 14.200.-
Sólbekkur, 2 cm svampdýna
Tjaldborð
Kr. 6.400.- og kr. 10.900.-
með. — Einhvern tíma sagði góður
og genginn menntaskólakennari:
,,Vitið þið, að kennarastofan er
stærsti og leiðinlegasti bekkur
skólans?” Þessi orð flugu mér allt í
einu í hug, þegar mér varð hugsað til
þess, að ef bekkjakerfið hefði ekki
verið afnumið í Menntaskólanum við
Hamrahlíð, þá hlyti kórinn að teljast,
ef ekki stærsti, þá að minnsta kosti
skemmtilegasti bekkur skólans. En
kórstarf er ekki skemmtunin ein.
Það fá þau að reyna i Hamrahlíðar-
kórnum. Þorgerður býður kórnum
svo sannarlega verkefni sem reyna á
getu þeirra til fulls, án þess þó
nokkrun tíma að skjóta yfir markið
og flytja verk, sem kórinn ræður ekki
fyllilega við. Þau bjóða upp á ótrú-
lega fjölbreytta efnisskrá íslenzkra
þjóðlaga og verka okkar fremstu tón-
skálda, svo og perlur úr tónbók-
menntum alþjóðlegum allt frá 16. öld
til okkar daga. Það er fátt hægt að
benda á framar öðru á verkefnaskrá
þeirra. Þau leggja áherzlu á hreinan
tón, tæran hljóm og vandaðan fram-
burð texta. Þó finnst mér rétt að geta
sérstaklega flutnings þeirra á
Stemmum Jóns Ásgeirssonar,
Limrum Páls Pampichlers Pálssonar
og tónverksins Umhverfi eftir Jón
Nordal.
Útflutnings-
bætur
Eins og ég gat hér að framan, er
Hamrahlíðarkórinn verðugur fulltrúi
okkar á Söngvamóti Evrópu. Þau
munu hafa hlotið, til fararinnar,
hálfrar milljónar króna styrk frá
Menntamálaráðuneytinu. Slíkur
styrkur er að sjálfsögðu virðingar-
verð viðurkenning, en einhvern veg-
inn finnst mér nú að hið háa ráðu-
neyti hefði vel efni á þvi að sýna þeim
örlítið meiri rausn. Við seldum smjör
úr fjallinu okkar góða til Sviss i vetur
og vantaði 15 krónur upp á verðið til
þess að hefðist fyrir kjarnfóðurs-
kostnaðinum. Mér finnst, það fylli-
lega réttlætanlegt að borga sömu út-
flutningsbætur með íslenzkri tónlist
,og íslenzku smjöri.
Tónlist
-EM.
EYJÓLFUR
MELSTED