Dagblaðið - 24.07.1979, Page 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1979.
15
YFIR HALFAN
HNÖTTINN
ÁEFTIR
ASHKENAZY
Sovézki píanósnillingurinn
Ashkenazy, sem hér á lögheimili og
kvæntur er íslenzkri konu, á ótrúlega
tryggja aðdáendur víða um heim. Er
fréttamaður DB ræddi við leigubílstj.
í London fyrir skömmu skýrði hann frá
því að fyrir nokkru hefði hann tekið
upp konu á flugvellinum og ekið henni
til miðborgarinnar síðla dags.
Er til hótelsins kom, spurði konan
hvort bilstjórinn gæti sótt hana
þangað árla næsta morguns og ekið
henni aftur á flugvöllinn, hverju
bilstjórinn játti og gerði.
Á leiðinni út á völl spurði bílstjórinn
í forvitni sinni um hvaða ferðalag væri
á konunni. Stóð ekki á svarinu, hún
hafði komið frá Bandaríkjunum dag-
inn áður í þeim eina tilgangi að hlýða á
Ashkenazy leika á hljómleikum, og hún
var aftur á heimleið, alsæl.
Ekki var bílstjóranum kunnugt um
snilli Ashkenazys, af eigin raun, en
sagði: ..Annaðhvort er þessi
Ashkenazyheilt helvíti góður gónlistar-
inaður eða ameríska kerlingin snar-
brjáluð.” -G.S.
Úr brúnni á norska hvalfangaranum Bastesen, sem strandaði f innsiglingunm l unndavlk.
Grindvíkingar hrekja ummæli Bastesens:
DB-mynd: Árni Páll.
„Fóru ekki eftir neinum
innsiglingarmerkjum”
„Þeir vildu spara sér krónur og tóku
engan hafnsögumann, fóru ekki eftir
neinum innsiglingarmerkjum og sigldu
bátnum tvívegis i strand. Sjómenn
þékkja þessa höfn og vita að fáar eru
betri þegar inn er komið. Við erum þess
vegna alls ekki tilbúnir að kyngja því,
að Grindavíkurhöfn sé sú versta á land-
inu og þó víðar væri leitað,” sagði
Sverrir Jóhannsson, formaður hafnar-
nefndar í Grindavík. DB sagði frá því í
síðustu viku er norski hvalfangarinn
Bastesen tók niðri í höfninni, en losn-
aði með eigin vélarafli. „Skipperinn”
bölsótaðist út í höfnina í samtali við
DB og sagði hana þá „verstu á landinu
og þó víðar væri leitað.” Grindvíking-
ar mótmæla umsögn Norðmannsins
ákaflega.
„Það hafa fleiri norskir bátar kom-
ið hingað fyrirvaralaust og án hafn-
sögumanns, en þeir hafa slampast að
bryggju án óhappa — þangað til nú,”
sagði Sverrir. „Ef farið er eftir leiðar-
merkjum, þá á allt að vera i lagi, hvað
þá í sliku ágætis veðri og var þegar
Norðmennirnir sigldu í strand."
Sverrir Jóhannsson sagði að lokum,
að fyrirhugað hefði verið að vinna við
dýpkun á innsiglingunni í Grindavík i
sumar. Hins vegar hefði dýpkunarskip-
ið Grettir bilað og því myndi ekkert
verða úr framkvæmdum að þessu
sinni.
-ARH.
Aðalbrautarréttur-
inn var ekki virtur
— og þrennt flutt a slysadeild
Bíll með V-númeri ók af
Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut á
tólfta tímanum á laugardagskvöldið.
Varð harkalegur árekstur á gatna-
mótunum þar sem Reykjanesbrautin á
aðalbrautarrétt. Allir í bílunum voru
fluttir á slysadeild, ökumaður og far-
þegi úr V-bílnum og ökumaður hins
bílsins. Fólkið í V-bílnum var talið rif-
brotið og kvartaði um innvortis verki
en ökumaður hins bílsins slapp með
skurðávör. -ASt./DB-mynd S.
Staðnir að þjófn-
aði í Nesti
Tveir strákar, 14—15 ára gamlir,
voru staðnir að innbroti í Nesti í Foss-
vogi á laugardagsmorguninn. Má ætla
að þeir hafi farið snemma á fætur eða
seint að sofa til að birgja sig Upp fyrir
helgina, en þeir voru teknir í
verzluninni milli kl. 6 og 7 um
morguninn. Höfðu þeir safnað í poka
tóbaki og sælgæti.
-ASt.
Umferðaröngþveiti í Austurstræti
Dagblaðið
Rauður Volkswagen rcnnir inn í
Austurstræti. „Dagblaðið er komið,”
æpa strákar og flykkjast í stórum hóp-
um að bílnum. Engu líkara en slys hafi
orðið. Út úr bilnum rífa þeir blaða-
stranga og byrja strax að hrópa Dag-
blaðið, Daaagblaðið! Dagblaðið er
komið ástaðinn.
er komið
Minnstu guttarnir og stelpurnar
halda sig fjarri meðan stóru strákarnir
fá þau blöð sem þeir hyggjast selja á
fyrsta hálftímanum. Þegar þeir eru
búnir að fá sitt þora minnihluta-
hópamir að draga sig aðeins nær
bílnum, sem er þá oftast orðinn æði
tómlegur. -DS/DB-mynd: Árni Páll.
ÞÁÐ HYRNÁÐI heldur betur yfir Reykvfkingum I sumarveðrinu um helgina. I miðbænum var tóandi mannlti, tjotskytaur i
göngutúr að sýna sig og sjá aðra. Birgir Ándrésson fékk sér svaladrykk I tilefni dagsins og þá smellti Árni Páll af.
Stjórn Fólkvangs Reykjaness skipuð:
VINNUR AÐ ÁÆTLUN UM
NOTKUN OG VERND
Skipuð hefur verið stjórn fólks-
vangsins sem stofnaður var í árslok
1975 á Reykjanesi. Formaður stjórn-
arinnar er Vilhelm Anderssen en í
henni sitja auk hans 8 menn frá
Reykjavík og sveitarfélögum á Reykja-
nesi.
Fólksvangurinn nær frá Bláfjöllum
og Heiðmörk að norðan og suður á
Krísuvikurberg. Stjórninni er ætlað að
koma með hugmyndir um það hvernig
nýta beri svæðið sem bezt til al-
menningsnota og hvemig bezt sé að
fara að vernd þess. Er það starf unnið i
samvinnu við náttúruverndarráð.
í upphafi er ætlað að vinna að
könnun á jarðraski og stöðvun
skemmda á fólkvanginum. Þá þarf að
leggja bílveg frá Djúpavogi suður á
Grindavíkurveg og að merkja fólk-
vanginn. Einnig er í bígerð yfirlit um
náttúrufar til undirbúnings nánara
skipulagi og verndun.
-DS.