Dagblaðið - 24.07.1979, Blaðsíða 20
20
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1979.
Andfát
Einar Öskar Þórðarson var fæddur á
Súgandafírði 20. nóvember 1905 og
voru foreldrar hans Þórður Þórðarson
hreppstjóri, símstöðvarstjóri og fleira.
Óskar lærði húsgagnasmíði hjá Jóni
Halldórssyni og co sem síðar var
Gamla kompaníið og starfaði hann þar'
alla tíð síðan eða í tæp 54 ár. Einar
kvæntist árið 1932 Laufeyju Guð-|
mundsdóttur og eignuðust þau fjögur:
börn. Einar lézt 13. júli og verður jarð-;
sunginn í dag frá Fossvogskirkju kl.:
1.30.
Veðriði
Háþrýstisvœði er yfir Grœnlandi og
norðanverðu íslandi. Á norðaustan-
og austanverðu landinu er þokuioft
og skýjað, léttskýjað vostanvert og
þoka við suðuretröndina en á Suð-
vesturlandi er hœgviðri og lóttskýjað.
Klukkan sex f morgun var voðrið á
landinu þannig: f Reykjavðc var 9
stiga hiti og heiðskirt, Gufuskálar 8
•stig og heiðskírt, Gaharvhi 8 stig, lótt-
skýjað, Akuroyri 3 stig, þoka, Raufar-
höfn 2 stig, þoka, Dalatangi 5 stig,
skýjað, Höfn 4 stig, þoka, Vest-
mannaeyjar 8 stig, þoka.
í Kaupmannahöfn voru 12 stig og
skýjað, OskS 12 stig, skur, Stokk
hólmi 14 stig, skýjað, London 13 stig,
skýjað, Parfs 13 stig, skýjað, Ham
borg 12 stig, þokumóða, Madrid 17
stig, heiðsklrt, MaUorka 17 stig, lótt-
skýjað, Lissabon 23 stig, lóttskýjaö
og New York 22 stig, skýjað.
Guðmundur Steindórsson fæddist 18.
marz 1910 í Súðavík við Álftafjörð og
voru foreldrar hans Jóna Jónsdóttir og|
Steindór Guðmundsson. Árið 1931
kvæntist hann Láru Sigvarðsdóttur og
áttu þau fimm börn. Guðmundur andJ
aðist 13. júlí og verður jarðsettur frá
Fossvogskirkju í dag kl. 3.
Kristín Magnúsdóttir verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
26. júlíkl. 10.30 f.h.
Kristinn Marinó Gunnarsson, Irabakka
12, verður jarðsunginn frá Fossvogs-J
kirkju miðvikudaginn 25. júlí kl. 10.30.
Sveinn Jónsson, Miðtúni 3, Reykjavík,
andaðist 22. júlí sl. að hjúkrunardeild
Landspítalans, Hátúni 10B.
Valgeir Guðjónsson múrari, Selvogs-
grunni 3, Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn
25. júlí kl. 1.30.
Guðmundur P. Ólafsson, Framnesvegi
32, andaðist 23. júli.
Halldór Jónsson fyrrv. útgerðarmaður
á Akranesi, lézt að Hrafnistu laugar-
daginn 21. þ.m. Útför hans fer fram
frá Akraneskirkju föstudaginn 27.
þ.m.kl. 13.30.
Jósefína Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Hátúni 10B, Reykjavík er látin. Út-
förin hefur farið fram í kyrrþey sam-
kvæmt ósk hinnar látnu.
Jón B. Sigurðsson hæstaréttarlög-
maður er látinn.
Kristín Guðmundsdóttir, Grettisgötu
45, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 25. júli kl. 3.
Þorsteinn Pétur Ólafsson verður jarð-
sunginn frá Dómkirijunni miðviku-
daginn 25. júli kl. 3.
Guðrún Pétursdóttir fv. biskupsfrú,
sem lézt 20. þ.m., verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni föstudaginn 27. júlí
nk, kl. 13.30.
Þorsteinn Pétursson, Freyjugötu 30,
lézt 11. júlí. Útför hefur farið fram í
kyrrþey, samkvæmt ósk hins látna.
Þórunn Lovísa Sigurðardóttir frá
Skuld verður jarðsett frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum laugardaginn 28. júlí
kl. 4 síðdegis. Kveðjuathöfn verður
haldin í Fossvogskirkju miðvikudaginn
25. júlí kl. 9 f.h.
Sumarferð
AB Kópavogi
verður farinn 27.-29. júlí. Farið verður að Isafjarðar
djúpi. Lagt af stað frá Þinghól á föstudaginn kl. 2.
Fargjald verður 12.000 kr. Miðar óskast sóttir í Þing
hól þriðjudaginn 24. júlí frá kl. 5—7 og 20.30—22 og
miðvikudag frá kl. 20.—22. Farþegar hafa með sér
tjöld og nesti. Allar upplýsingar gefur Lovísa Hannes-
dóttir í sima: 41279 og 41746 (Þinghól) og Adolf J.E.
Petersen i síma: 42544.
Bolvíkingafélagið
í Reykjavík
Bolvikingafólagið í Reykjavík fer skemmtiferð til
heimabyggðarinnar um verzlunarmannahelgina..
Lagt verður af stað frá Umferðarmiðstöðinni föstu-^
daginn 3. ágúst og komið heim mánudaginn 6. ágúst.
Farin verður Djúpleiðin vestur og Skálavík heimsótt.
Hægt verður að fá svefnpokapláss. Nánari upplýsing-
ar gefur stjórnin i simum 25395—85116—83756 og
40689.
Bjöm Árnason bifreiðarstjóri var
fæddur 2. maí 1889 og voru foreidrar
hans Guðlaug Björnsdóttir og Árni'
Bjarnason bóndi, Hliðsnesi. Björn gift-
ist Guðfinnu Sigurðardóttur frá Ási við
Hafnarfjörð og eignuðust þau fimm
börn. Björn lézt 14. júlí.
Sigriður Hjördis Einarsdóttir var fædd
að Miðdal í Mosfellssveit 28. ágúst
1910 og voru foreldrar hennar Einad
Guðmundsson og Valgerður Jónsdótt-
ir. Sigríður giftist Guðna Jónssyni
magister, siðar prófessor, og áttu þau
saman fjögur börn. Sigríður andaðist
18. júlí og verður jarðsett frá Háteigs-
kirkju í dag kl. 15.
Dagný Guðbjörnsdóttir var fædd á Isa-
firði 9. janúar 1961 og voru foreldrar
hennar Elínborg Sigurðardóttir og
Guðbjörn Ingason. Dagný lézt 17. júlí.
Ferðafélag íslands
Miðvikudagur 25. júb.
Kl. 08.00 Þórsmerkurferð.
Kl. 20.00 Viðeyjarferð, farið frá Hafnarbúðum kl. 19,
20 og 21. Leiðsögumaður: Lýður Bjömsson sagn-
fræðingur. Verð kr. 1.500.- gr. v. bátinn.
Um helgina.
1) Hveravellir.
2) Landmannalaugar-Eldgjá.
3) Þórsmörk
4) Gönguferð á Hrútfell á Kili.
Sumarleyfisferðir:
1. ágúst: Borgarfjörður eystri. Flug til Egilsstaða. Gist
I húsi í Bakkagerði og farnar þaðan dagsferðir til
skoðunarverðra staða (8 dagar). Fararstjóri: Sigurður
Kristinsson.
1. ágúst: Lónsöræfi. Flug til Hafnar. Gist í tjöldum
við Illakamb. Gönguferðir frá tjaldstað (9 dagar). Far-
arstjóri: Hilmar Árnason.
Víðsýn,
Austurstræti 3
Mið-Evrópuferð
Brottför 5. ágúst, 15 dagar. Flogiö til Frankfurt, ekið
um Rinarlönd, Móseldal, Luxemburg og Frakkland.
Dvalið verður um kyrrt við Vierwaldstetter-vatn i
Sviss.
tsraelsferð 9. september, 19 dagar, dvalið i Jerúsa-
lem, Galileu og baðstrandarbænum Natanya. Allir^
helztu biblíu- og sögustaðir skoðaðir.
Glasgow — Dublin
Brottför 20. ágúst, 10 dagar. Ekið um Hálöndin og
komið til Edinborgar. Ekið um fagrar og blómlegar
byggðir írlands.
Knattspyrna
ÞRIÐJUDAGUR 24. JULt
NESKAUPSTAÐARVOLLUR
Þróttur-Fylkir, 2. deild kl. 20.00.
VALSVOLLUR
Valur-Stjarnan, 2. fl. A, kl. 20.00.
FRAMVOLLUR
Fram-IBV, 2. fl. A, kl. 20.00.
ÞROTTARVOLLUR
Þróttur-Selfoss, 2. fl. B, kl. 20.00.
NESKAUPSTAÐARVOLLUR
Þróttur-Leiknir 4. fl. E, kl. 19.00.
ESKIFJARÐARVOLLUR
Austri-Valur, 4. fl. E, kl. 20.00.
FRAMVOLLUR
Fram-Leiknir, 5. fl. A, kl. 19.00.
KR-VOLLUR
KR-Fylkir, 5. fl. A, kl. 20.00.
VALLARGERÐISVOLLUR
UBK-IBK, 5. fl. A.kl. 19.00.
STJORNUVOLLUR
Stjarnan-Haukar, 5. fl. B, kl. 20.00.
ÞROTTARVOLLUR
Þróttur-Grindavík, 5. fl. B, kl. 19.00.
BREIÐHOLTSVOLLUR
IR-Njaróvík, 5. B. B,kl. 19.00.
VARMARVOLLUR
Afturelding-VUUngur, 5. n. kl. 20.00.
HEIÐARVOLLUR
IK-Grótta, 5. 0. C, kl. 20.00.
ARMANNSVOLLUR
Armann-Revnir, 5. n. C, kl. 19.00.
NESKAUPSTAÐARVOLLUR
Þróttur-Leiknir, 5.0. E, kl. 19.00.
ESKIFJARÐARVOLLUR
Austri-Valur 5.0. E, kl. 19.00.
Frá menntamálaráðuneytinu
Sameindalíffræðisamtök Evrópu (European
Molecular Biology Organization, EMBO) hafa veitt
ólafi S. Andréssyni, líffræðingi, styrk til rannsókna
við Edinborgarháskóla frá hausti komanda. Styrk-
urinn er til eins árs. ólafur lauk B.S.-prófi I líffræði frá
Háskóla Islands 1974, með ágætiseinkunn, og hefur
stundað rannsóknir og framhaldsnám I lífefnafræði og
sameindaerfðafræði við háskólann I Wisconsin frá
hausti 1975. Ólafur mun væntanlega ljúka doktors-
prófi þar I haust og halda þá til frekari rannsókna-
starfa I Edinborg.
EMBO eru samtök um 300 sameindaliffræðinga I
Evrópu og ísrael. Þau skipuleggja námskeið, sem er
m.a. ætlað að kynna nýjungar í rannsóknatækni og
veita styrki til aðefla alþjóðlega rannsóknasamvinnu.
Samtökin voru stofnuð 1963, en árið 1969 ákváðu
ríkisstjórnir þrettán Vestur-Evrópurlkja að koma á fót
alþjóðastofnun, Sameindalíffræöiþingi Evrópu
(European Molecular Bilogy Conference, EMBO),
sem skyldi fjármagna EMBO og vinna þannig að auk-
inni samvinnu Evrópurikja á þessu sviði. Nú eiga 17
riki aðild að þinginu, þ.e. flest lönd Vestur-Evrópu og
ísrael. Island hefur verið aðili frá 1978 og hefur
fulltrúi þess á þinginu verið dr. Baldur Símonarson,
lifefnafræðingur við Tilraunastöð Háskólans í meina-
fræði að Keldum. Frá 1970 hcfur EMBO veitt yfir
1500 styrki til þriggja mánaöa og um 900 ársstyrki, og
haldin hafa verið um 250 námskeið og vinnu-
ráðstefnur.
Frá kennarafélaginu
Hússtjórn
Aðalfundur I Kennarafélaginu Hússtjórn var haldinn
I Hrafnagilsskóla í Eyjafirði 6. og 7. júní sl.
Fundinn sátu kennarar frá grunnskólum og fram-
haldsskólum víðs vegar að af landinu.
1 vetur urðu þáttaskil I sambandi við heimilisfræði í
grunnskóla er Bryndís Steinþórsdóttir húsmæðra-
kennari var ráðin námstjóri í heimilisfræði fyrir allt
landið. Hún vinnur nú með starfshópi aðstefnumótun
í heimilisfræðikennslu og að gerð námsefnis. A vegum
menntamálaráðuneytisins fór fram sl. vetur könnun á
stöðu heimilisfræðigreina i grunnskólum. I Ijós kom
að mikið vantar á að kennsla í heimilisfræði sé í sam-
ræmi við það sem grunnskólalögin gera ráð fýrir.
Hússtjórnarskólarnir gefa eins og undanfarin ár kost á
mismunandi löngu samfelldu námi og einnig ýmiss
konar námskeiðum með fjölbreyttu námsefni. I
fjölbrautarskólum gefst einnig kostur á hússtjórnar-
námi allt að stúdentsprófi.
Menntun kennara í heimilisfræði hefur nú tengst
Kennaraháskóla Islands, þannig að nemendur
kennaraháskólans geta valið hússtjórn og fá þá
réttindi til að kenna heimilisfræði við grunnskóla, auk
þess að vera almennir kennarar.
A fundinum fluttu erindi Guðmundur Sigurðsson,.
innanhússarkitekt um staðsetningu húsa á lóðum, her-
bergjaskipun, brunavamir o. fl. og Stefán Vilhjálms-
son matvælafræðingur um kjötvörur.
Farin var kynnisferð i Ullarverksmiðjuna Gefjuni og
Fataverksmiðjuna Heklu á Akureyri.
Formaður I Kennarafélaginu Hússtjórn er Steinunn
Ingimundardóttir skólastjóri Hússtjórnarskólans að
Varmalandi í Borgarfirði.
Týndur hundur
Hundurinn Kobbi, sem er svartur á bt og aðeins hvitur
á bringunni fór að heiman frá sér að Stóruborg 1 Hval-
firði fyrir viku síðan. Þeir sem hafa orðið varir við
hann eru beðnir um að hafa samband við Stóruborg.
IMliÍÍi
Söngkynning
í IMorræna húsinu
fyrir erlenda gesti
og ferðamenn
Guðrún Tómasdóttir og Ölafur Magnússon frá
Mosfelli syngja á næstu söngvöku Félags. ísl.
einsöngvara I Norræna húsinu, þriðjudaginn 24. júlí
kl. 21. Við hljóðfærið verður Jónína Gisladóttir. Flutt
verða ísl. sönglög og þjóðlög með skýringum á ensku.
Kvæðamennirnir Njáll Sigurðsson og Magnús
Jóhannsson munu einnig kveða.
A fyrstu söngvöku félagsins sl. þriðjudag var húsfyllir
og flytjendum mjög vel fagnað. Kaffistofa Norræna
hússins verour opin fyrir og eftir hljómleikana.
Söngvökur þessar eru einkum ætlaðar erlendum
gestum og ferðamönnum.
Nokkrir félagar fyrir framan Korpúlfsstaði —
miðstöð Myndhðggvarafélagsins.
Kjarvalsstaðir
Laugardaginn 21. júll var sýning Myndhöggvara-
félagsins opnuöá Kjarvalsstöðum. Þar sýna 15 mynd-
höggvarar verk sín umhverfis húsið og á göngum, alls
um 30 verL
I vestursal Kjarvalsstaða sýnir Septem-hópurinn^
Galleri Langbrók í kaffistofu og á göngum. I austursal
eru myndir eftir Jóhannes S. Kjarval I eigu Reykja-
víkurborgar. 34 listamenn eiga þar með verk á
sýningunni „Sumar á Kjarvalsstöðum”, sem verður
opin daglega frá kl. 14 til 22 fram til 19. ágúst.
Aðgangur að sýningunni er ókeypis, en sýningarskrá
og veggspjald er selt á kr. 500.-
Sumarsýning
Norræna hússins 1979
Breyttur opnunartimi. Þess hefur verið farið á leit við
Norræna húsið, að Sumarsýningin verði höfð opin frá
14—22 ístað 14—19, sem er venjulegur opnunartími.
Hefur verið ákveðið að gera þetta og þvi verður
sumarsýningin opin til kl. 22 á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum. Þessi kvöld er ennfremur dagskrá i sam
komusal hússins, á þriðjudagskvöldunum hefur
Einsöngvarafélagið sinar söngvökur, og á fimmtu
dagskvöldunum er „Opið hús” á vegum Norræna
hússins með dagskrá, sem einkum er ætluð norrænum
ferðamönnum, en vitaskuld er öðrum einnig heimill
aðgangur, sem er ókeypis. N.k. fimmtudagskvöld
verður kynning á íslenzkri tónlist og þá syngur
Guðrún Tómasdóttir við undirlcik Olafs Vignis
Albertssonar islenzk lög, og siðar um kvöldið verður
kvikmyndasýning. Fimmtudaginn 2. ágúst verðurenn
tónlistarkvöld, en þá flytur Sigurður Björnsson
íslenzk, norræn og önnur sönglög og siðan verður
kvikmyndasýning eins og vant er á opna hús-kvöld-
unum.
I tengslum við norræna æskulýðsmótið, sem nú
stendur yfir hér á Islandi, er einnig tónlist, en að þessu
sinni eru það norrænir gestir, sem ætla að skemmta
Islendingum, þvi að á morgun, miðvikudaginn 25.
júlí, flytur sænskur kór, skipaður sextán ungmennum
ásamt hljóðfæraleikurum, okkur létt lög i Norræna
húsinu. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og er aðgangur
öllum heimill og ókeypis. I anddyri Norræna hússins
er Ijósmyndasýning frá Finnlandi og Noregi og æsku
lýðsstarfi þaðan, og stendur hún fram yfir næstu helgi.
Gengið
Eining KL 12.00 Kaup Spia Kbue.. Sala _
1 Bandarflc jadolla r 352.40 353.20* 387.64 388.52*
1 Steriingspund 804.90 806.70* 885.39 887.37*
1 KanadadoHar 302.65 303.35* 332.92 333.69*
100 Danskar krónur 6777.90 6793.30* 7455.69 7472.63*
100 Norekar krónur 7014.35 7030.25* 7715.79 7733.28*
100 Sœnskar krónur >0 8392.10 . 9232.40 8411.10* 9231.31 9242.21*
100 Finnsk möric 9253.30* 10155.64 10178.63*
100 Franskir f rankar • 8347.20 8366.20* 9181.92 9202.82*
100 Bolg.frankar 1216.00 1218.80* 1337.60 340.68*
100 Svissn. frankar 21536.40 21585.30* 23690.04 23743.83*
100 Gyllini 17705.00 17745.20* 19475.50 19419.72*
100 V-Þýzk möric 19472.30 19516.50* 21419.53 21468.15* *
1100 Lírur -1 43.19 43.29* 47.51 47.62*
100 Austurr. Sch. 2648.65 2654.65* 2913.52 2920.12*
100 Escudos 728.90 730.50* 801.79 803.55*
100 Pesotar 531.00 532.30* 584.10 585.53*
.100 Y«n 163.20 163.58* 179.52 179.94*
1 Sáretök dráttarréttindi 481.81 462.88 t
,*Brayting frá sfðustu skrénlngu
Slmsvari vegna gengisskréninga 22190.’
J------------------4
GENGISSKRÁNING Ferðamanna-
NR. 135—20. júlí 1979 gjaldeyrir