Dagblaðið - 24.07.1979, Qupperneq 24
Ólafur R. Grímsson, nefndarmaður í Jan Mayen nef ndinni:
KEMUR TIL MJÖG
ALVARLEGRA ÁTAKA
ef norskir loðnubátar ætla að veiða upp að miðlfnunni
,,Ef norskir loðnubátar eða
veiðiskip einhverra annarra þjóða
fara að. veiða innan 200 milna
markanna norðaustur af landinu í
skjóli þess að einhver miðlína eigi að
gilda á milli íslands og Jan Mayen
mun koma til mjög alvarlegra á-
taka,” sagði Ólafur Ragnar Gríms-
son, einn nefndarmanna í svonefndri
Jan Mayen nefnd, í viðtali við DB í
morgun.
Litur Ólafur svo á að alger sam-
staða sé um þetta atriði innan nefnd-
arinnar. Sem kunnugt er hafa Norð-
menn ekki viljað viðurkenna 200
mílna mörk okkar þarna á milli og
vilja halda fast við miðlínu.
Að sögn Ólafs er ekki óttazt að
norsk stjórnvöld muni hvetja
sjómenn sína til að hundsa mörk
okkar og virða aðeins miðlínu.
Fremur er talið líklegt að sjómenn og
útgerðarmenn kunni að gera það upp
á eindæmi í skjóli þess að stjórn
þeirra hefur ekki viðurkennt 200
mílna mörk okkar á svæðinu.
Norðmenn hófu loðnuveiðar við
Jan Mayen í gær og á svæðinu eru
einnig rússnesk og austur-þýzk skip.
Svo sem kunnugt er hefur mikið af
loðnu úr úr íslenzka stofninum oft
gengið á þetta svæði og kann alvar-
legt skarð að verða höggvið í stofninn
ef svo er einnig nú.
Að lokum vænti Ólafur þess að
dómsmálaráðherra tryggði að
varðskip yrði á svæðinu næstu vikur,
en aðeins tvö skip eru í rekstri núna,
bæði bundin við störf á heimaslóð.
GS^
Hálfdán hlaut DB-bikarínn
Islandsmeistaramótið í svifdrekaflugi var haldið á Þingeyri um í röð sem Hálfdán hlýtur Dagblaðsbikarinn og er hann óumdeilan-
helgina eins og DB greindi frá i gær. Sigurvegari varð Hálfdán lega snjallastur íslenzkra svifdrekaflugmanna.
Ingólfsson og hlaut hann því Dagblaðsbikarinn. Þetta erþriðja árið DB-mynd PállPálsson, ÞingeyrL
frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ1979.
Nýtttímarit:
Viðsem
fljúgum
Við sem fljúgum heitir nýtt tímarit,
sem hefur göngu sína um næstu mán-
aðamót. Frjálst framtak annast útgáf-
una og er Markús Örn Antonsson rit-
stjóri. Upplagið verður 12—15 þúsund
eintök. Kemur það væntanlega út fjór-
um sinnum á ári fyrst um sinn.
„Útgáfan byggist á samkomulagi
milli Flugleiða hf. og Frjáls framtaks,”
sagði Jóhann Briem, forstjóri útgáfu-
fyrirtækisins, í viðtali við DB.
„Við sem fljúgum verður rúmar 100
blaðsíður og verður í flugvélum Flug-
leiða hf. Efnið er við það miðað að það
veiti farþegum afþreyingu og hvíld.
Sitthvað verður til fróðleiks,” sagði
Markús Örn Antonsson ritstjóri. Hann
kvað ráð fyrir þvi gert að farþegar taki
tímaritið með sér að lokinni ferð. -BS
„Gefstuppá
atvinnu-
rekstrínum"
— segir Kristján Jónsson,
hæsti skattgreiðandi
í Suðurlandsumdæmi
„Það er gífurleg vinna á bak við
þetta sem greinilega borgar sig ékki að
standa í,” sagði Kristján Jónsson tré-
smíðameistari, Selfossi, i samtali við
Dagblaðið í morgun. Kristján er lang-
hæsti skattgreiðandinn í Suðurlands-
umdæmi í ár, greiðir samtals 17,1 millj-
ón i opinber gjöld, en skattskráin
verður lögð fram í dag.
,,Ég var sjálfur með atvinnurekstur á
siðasta ári. Ég gefst upp á þvi nú. Ég
hætti a.m.k. sem einstaklingur því að
skattabyrðin á einstakling er langtum
meiri en á félög. Ég get ekki haldið
áfram með þessa skattabyrði,” sagði
Kristján.
Hæstu greiðendur opinberra gjalda í
Suðurlandsumdæmi eru:
Einstaklingar:
Kristján Jónsson trésmiðameistari,
Réttarholti 5 Selfossi, 17,1 millj.
Sigfús Kristinsson byggingameistari,
Bankavegi 3 Selfossi, 12,6 millj.
Ingvar Kjartansson læknir, Grænuvöll-
um 4 Selfossi, 9,5 millj.
Félög:
Kaupfélag Árnesinga, Selfossi, 79,5
tnillj.
Mjólkurbú Flóamanna, Selfossi, 77,7
millj.
Meitillinn, Þorlákshöfn, 68,1 millj. G.)
j
I
i
Gífurleg eftirspurn
þótt iánin séu 100%
verðtryggð:
8 mánaða
biðtími
Fólk virðist ekki vila fyrir sér að
taka lán þótt þau séu með fullri
vísitölutryggingu, slíkur er skorturinn á
lánsfé. Þetta er reynslan hjá Lífeyris-
sjóði verzlunarmanna.
Lífeyrissjóðurinn býður auk
venjuíegra lífeyrissjóðalána með 27%
vöxtum upp á þriggja milljóna lán með
fullri verðtryggingu. Þau lán geta menn
fengið eftir að hafa verið í sjóðnum í
þrjú ár, óháð þvi hvað þeir hafa fengið
af hinum „venjulegri” lánum.
Verðtryggðu lánin eru til 25 ára, með
2% vexti.
Eftirspurnin eftir þessum lánum er
slík að nú þurfa menn að bíða í 8
mánuði, frá umsókn, þar til þeir geta
fengiðlánið.
-HH.
Nýirskattar:
ALÞYÐUFLOKKURINN
VILL BÍÐA NÆSTU
FJÁRLAGAGERÐAR
„Nýir skattar til að standa undir
því að niðurgreiðslur minnki ekki
hafa ekki verið ræddir einu orði i
stofnunum Alþýðubandalagsins,”
sagði einn þingmaður flokksins í
morgun. Magnús H. Magnússon
félagsmálaráðherra sagði í morgun
að Alþýðuflokkurinn vildi bíða með
ákvörðun um skatta þar til frumdrög
að fjárlögum næsta árs lægju fyrir.
„Við höfum ekki tekið beina af-
stöðu til tillagna Tómasar Árnasonar
fjármálaráðherra um hækkun
söluskatts og vörugjalds en þó tekið
vel i að afla ríkissjóði tekna til að
bæta upp halla,” agði Magnús.
Hann taldi líklegt að einhver dráttur
yrði á að nýir skattar yrðu á lagðir.
í reynd hika stjómarflokkarnir
mest með skattaálögurnar vegna þess
að skattskrár eru nú að koma fram
og fólki mun þykja nóg um skatta-
hækkanirnar fráfyrra ári.
Samkvæmt heimildum DB mun
meirihluti þingflokks Alþýðuflokks-
ins standa nálægt Tómasi Árnasyni í
þessum skattamálum. Á Alþýðu-
bandalaginu hafa engar formlegar til-
lögur verið mótaðar.
Eins og DB skýrði frá í gær hefur
fjármálaráðherra stöðvað aukafjár-
veitingar og þar með sett starfs-
bræður sína i klemmu til að knýja
fram tillögur um skattahækkanir.
„Þetta gerir allan rekstur erfiðari, en
ég reikna með að þessi ákvörðun sé
tímabundin,” sagði Magnús H.
Magnússon.
-HH.
Mótmælaaðgerðir
Loftleiðaflugmanna:
HafaáhrifáEvrópu-
flugumhelgar
„Þrýstiaðgerðir Loftleiðaflug-
manna koma illa við Evrópuflug um
helgar, en Ameríkuflugið gengur
óhindrað. Við verðum að sjá fyrir þeim
farþegum, sem ætla að ferðast með
okkur til Kaupmannahafnar og
Dússeldorf um helgina, en erfitt er að
gera ráðstafanir þar sem nú er háanna-
tími hjá öllum,” sagði Helga Ingólfs-
dóttir hjá Flugleiðum í morgun. -ARH
*
i
í
é