Dagblaðið - 25.07.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1979.
Eru 11% ályktunarhæfir?
SAMÞYKKT DOM-
ARAFÉLAGSINS
ER HNEYKSLI
Ólafur hringdi:
Steingrímur Hermannsson gerði
rétt þegar hann skipaði Jón Skafta-
son yfirborgarfógeta i Reykjavík.
Jón er maður sem setið hefur tvo ára-
tugi við lagasmíðar og er auk þess vel
menntaður lögfræðingur. Hann var
því vel að starfinu kominn.
En svo bar við nú sem oftar að
ekki líkaði öllum málalok. Það er
eðlilegt þvi auðvitað vilja margir
komast í þetta embætti. En vinnu-
brögð þeirra manna sem urðu undir
eru mjög ámælisverð.
Haldinn var fundur í dómarafélag-
inu til að mótmæla stöðuveitingunni.
Af 71 félagsmanni mættu 16. Helm-
ingur þeirra sat hjá við atkvæða-
greiðslu þar sem veitingunni var mót-
mælt. Niðurstaðan er sem sé sú að
aðeins 11*70 félagsmanna í dómara-
félaginu skrifa undir fordæmingar-
skjalið.
Sú spurning vaknar auðvitað hvort
þessi hópur sé yfirleitt ályktunarhæf-
ur. Getur fámennur hópur krúnkað
sig saman og búið til alls konar plögg
I nafni félagsins?
Samþykkt dómarafélagsins er
hneyksli og þeim mönnum er að
stóðu til vansæmdar.
„Stcingrimur Hermannsson gerði rétt þegar hann skipaði Jón Skaftason yfir-
borgarfógeta.”
DB-mynd Hörður.
OPNIÐ SKIÐALYFT-
UNA í BLÁFJÖLLUM
— Leyfið f ólki að njóta útsýnisins f góða veðrinu
Magnús Guðmundsson hringdi og
varpaði fram þeirri hugmynd að
skíðalyftan í Bláfjöllum yrði opnuð'
nú i góða veðrinu. Kvaðst hann þess
fullviss að fjöldi manna hefði áhuga
á að fara með lyftunni upp á fjall,
skoða sig þar um og njóta útsýnisins.
Tillögunni er komið á framfæri við
þá aðila sem þessum málum stjórna.
V
10%
BENSÍNSPARNAÐUR
samsvarar 31 krónu pr. lítra.
Allir sem fást viö stillingar bílvéla vita, að bensineyðslan
eykst um 10—25% milli kveikjustillinga.
Eftir ísetningu LUMENITION kveikjunnar losna bíleig-
endur algjörlega við þá eyðsluaukningu, sem slitnar platin-
ur valda, því í þeim búnaði er ekkert, sem slitnar eða
breytist.
Með LUMENITION vinnur vélin alltaf eins og kveikjan
væri nýstillt.
LUMENITION fylgir 3ja ára ábyrgð.
HABERG h£
SÍMI: 84788.
Verfl miflafl vifl
gengi 20.7. '79:
KR. 46.000.-
V
Getur
Rauði
krossinn
útvegað
húsnæði?
Margrét Guflmundsdóttir, 22ja ára,
einstæð móðir hringdi og vildi koma
þeirri fyrirspurn á framfæri við
stjórnendur Rauða krossins hvar hún
ætti höfði sínu að að halla. „Ég er á
götunni,” sagði hún.
Margrét benti á að Rauði krossinn
hefði getað fundið ibúðir fyrir viet-
namska flóttafólkið, og þvi ætti hann
lika að geta útvegað sér ibúð. Kvaðst
hún hafa reynt fyrir sér viða cn
hvergi fengið inni, enda peningalaus.
Margt mjög gott í útvarpinu:
Grand Babylon
eins spennandi
ogsögur
í gamla daga
Sjónvarpsglápari skrifar:
Þegar mitt ástkæra sjónvarp fór í
sumarleyfi settist ég af rælni niður
við útvarpstækið mitt og fór að
hlusta. Mér til mikillar furðu var
margt svo gott í útvarpinu að ég varð
alveg hissa. Meira að segja gerðist sá
stóratburður á laugardeginum fyrir
rúmri viku að ég hlustaði á hvern ein-
asta dagskrárlið og hafði jafngaman
að öllum.
Bezta útvarpsefnið núna er ugg-
laust kvöldsagan, Grand Babylon
hótelið. Sú saga er eins spennandi og
maður heyrir að útvarpssögur hafi
verið í gamla daga og er hún auk þess
mjög vel lesin af Þorsteini Hannes-
syni. Ég vona að hann móðgist ekki
þó ég segi að honum láti betur að lesa
sögu en velja tónlist, því eins og
glöggt má sjá af hlustendakönnun-
inni hefur alþjóð ekki sama smekk og
hann í tónlistarefnum.
Mjög góðir tónlistarþættir eru í út-
varpinu núna, svo sem Kvöldljóð
Ásgeirs, Hlöðuball Jónatans, Epla-
mauk Jónasar og Tónhorn Guðrúnar
Birnu. En Vinsælustu popplögin hjá
honum Vigni eru fyrir neðan allar
hellur. Að minnsta kosti 6 þætti í röð
hefur hann leikið sama lagið og alltaf
kynnt það með sömu orðunum. Þó
lagið, I Want You To Want Me, hafi
eiru sinni verið vinsælt i Hollandi
eins og hann getur reglulega um í
hverri viku eru samt mörg lög önnur
vinsæl sem leika mætti til tilbreyting-
ar.
En nóg um það. Eftir að sjónvarp-
ið hefst aftur mun ég ugglaust horfa
minna á það en hlusta meira á gamla
góða gufuradióið, þvi dagskrá þess cr
liklega þegar allt kemur til alls betri.
DB-mynd: Árni Páll.
Gamanað
útimarkaðinum
Vcgfarandi hringdi:
Komið á framfæri fyrir mig kæru
þaicklæti til fólksins sem sér um úti-
inarkaðinn á Lækjartorgi. Ég á oft
leið þarna um og mér finnst að þessi
markaður sé einhver bezta og
ánægjulegasta tilbreytnin í fábrotnu
bæjarlífi okkar Reykvikinga um ára-
raðir.