Dagblaðið - 25.07.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1979.
'7
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njólsgötu 49 - Stmi 15105
DYRTA STRIKINU
Fæstum þykir ódýrt að kaupa sér
gistingu í Kaupmannahöfn. Þessir
tveir ferflamenn gáfust þó algjörlega
upp á prísunum og lögðu sig á al-
menningsbekk á Strikinu. Veðrið var
ágætt, hlýtt og þurrt, og ekkert hefur
frétzt af athugasemdum lögreglu-
yfirvalda. Kannski góð lausn fyrir
væntanlega Danmerkurfara?
Töluvert hefur veríð um aftökur i Iran eftir að keisaranum var steypt af stóli. Ekki ber
mönnum saman um hvort þær séu framkvæmdar að fyrírlagi Khomeinis trúarleið-
toga, sem talinn er valdamestur maður I landinu. Á myndinni er aftökusveit að búa sig
undir að taka nokkra menn af lifi sem sekir höfðu veríð fundnir um kynvillu.
Yfír Atiantshafíd
á 3ja metra báti
fór 3500 milur á 54 dögum
Hann var heldur þreytulegur en
ánægður hinn 39 ára gamli Gerry
Spiess frá Bandaríkjunum, þegar
hann reis upp úr bád sínum í höfn-
inni i Falmouth á Englandi í gær.
Hann hafði líka fulla ástæðu til
hvors tveggja. Fimmtíu og fjögurra
daga siglingu yfir Atlantshafið var
lokið. Gerry hafði siglt á þriggja
metra báti sínum um 3500 mílur eða
frá Norfolk í Virginíu til Falmouth.
Ekki er vitað að einn maður hafi
farið yfir Atlantshafið á eins lítilli
fleytu og Gerry Spiess. Bátur hans,
Yankee Girl, er eins og áður sagði
aðeins þrir metrar á lengd. Sjálfur
smíðaði siglingakappinn fleyið í bU-
skúrnum hjá sér. Það er knúið áfram
með seglum. Efnið í skrokknum er
viður og piastfiber.
Gerry sagðist einu sinni hafa
fallið fyrir borð er hann var að laga
seglin í miklum stormi. Var það um
það bil fjögur hundruð milur austur
af Ameríku.
Hundruð manna tóku á mód
Gerry í Falmouth, þar á meðal kona
hans og foreldrar. Gerry er tækni-
fræðingur að mennt en hætti þeim
störfum fyrir tveim árum til að vinna
að Atlantshafssiglingunni.
ÍSA FJÖRDUR:
í sumarleyfi umboðsmanns frá 20/7 til
20/8 1979, annast Guðmundur Helgason,
afgreiðslu Dagblaðsins á ísafirði.
HVERA GERDI:
Dagblaðið vantar umboðsmann. Upp-
lýsingar gefa Ásdís Lúðvíksdóttir í síma
99—4582 og afgreiðslan í síma 91—
22078.
GR/IMDA VÍK—
ÞÓRKÖTLUSTAÐIR:
Dagblaðið vantar umboðsmann.
Upplýsingar gefa Ragnhildur Guðjóns-
dóttir í síma 92—8317 og afgreiðslan í
síma 91—22078.
> BIAÐIÐ
Vestur-Þýzkaland:
HÖRKUSLAGSMÁL
Á BRUNAÚTSÖLU
Þúsundir fólks hafa undanfarna
tvo daga rifizt og slegizt á rýmingarsölu
einni sem haldin er á stórmarkaði ein-
um í Kassel í Vestur-Þýzkalandi. Þar
varð eldsvoði fyrir skömmu og talið er
að um það bil fimmtíu þúsund manns
hafi komið til að gera reyfarakaup í
dlefni af brunanum. Lögreglan í Kassel
segir að ekki sé hægt að likja ástandinu
við neitt annað en umsátur og ýmsir
hiki ekki við að gefa náunga sínum
kjaftshögg ef það verði til að ná megi
kjarakaupum.
Hillur hafa hrunið og fólk reynir
ítrekað að klifra inn um öll göt þegar
loka verður verzluninni vegna
troðnings.
Sjúkraliðsmenn þurftu að berja sér
leið inn í mannþröngina til að ná tíl
þungaðrar konu sem skyndilega kenndi
sín. Ekki er tekið neitt dllit til óska lög-
reglunnar um að bifreiðar haldi sig frá
svæðinu. Umferðaröngþveiti í ná-
grenni verzlunarinnar er algjört.
Bundytalinnhafa
bitiðstúlkumar
Theodore Bundy, sem
grunaður er um að hafa drepið
allt að fjörutíu ungar konur víðs
vegar um Bandaríkin, var í gær
fundinn sekur um morð á tveim
skólasystrum sinum við ríkishá-
skólann í Florida. Þykir sannað
að tannaför á sitjanda annarrar
stúlkunnar hafi verið eftir hann.
V-Þýzkalandveitir
Nicaraguaadstoö
Vestur-þýzka stjórnin til-
kynnti í gær að hún væri reiðubú-
in dl að veita hinni nýju ríkis-
stjórn í Nicaragua allt að tíu
milljón marka efnahagsaðstoð.
Áður voru þessir fjármunir
ætlaðir stjórn Somoza fyrrum
forseta. Auk þess munu Vestur-
Þjóðverjar vera tilbúnir til að
veita Nicaragua verulega
tækniaðstoð.
Dönsk hústjöld
f rá Tríö
verð frá
5 manna tjöld m/himni kr. 76.000.-
Göngutjöld kr. 53.000.-
Sóltjöld kr. 13.500.-
Greiðsluskilmálar Sendum myndlista
TJALDBÚÐIR
Geithálsi/ sími 44392
kr. 125.000.-
Húseigendur á
Stór-Reykjavíkursvæðinu!
77/ kaups óskast 3ja til 5 herbergja ibúð á Stór-Reykja-
víkursvceðinu (Reykjavík, Kópavogur, Garðabœr, Hafn-
arfjörður, Álftanes). Góð greiðsla við undirskrift samn-
ings — Mikil útborgun.
Hringið til Auglýsingaþjónustu Dagblaðsins í
sítna 27022. u oqq
Sumarráðstefna
Sumarráðstefna SÍNE verður haldin í Félags-
stofnun Stúdenta við Hringbraut sunnudaginn
29. júlí nk. kl. 14.00.
Fundarefni:
1) Skýrsla stjórnar og fulltrúa SlNE I stjórn LlN.
2) Stjórnarskipti.
3) Kjör fulltrúa I stjórn LtN og I sambandsstjórn ÆSI.
4) Onnurmál.
Fundargögn munu liggja frammi á skrifstofu
, SlNE frá og með 26. júli.