Dagblaðið - 25.07.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 25.07.1979, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ1979. Dómarar góðir drengir —leikmeim skepnur —athugasemd frá Þorvaldi Þórðarsyni í þessu greinarkorni langar mig að bera hönd fyrir höfuð mér út af æsi- fregn Dagblaðsins siðastliðinn mið- vikudag. „Fékk rautt spjald og réðst á dómarann”. Ekki aetla ég að reyna hið minnsta að afsaka framferði sjálfs mín , en þegar ekki er farið með rétt mál og maöur gerður að argasta villi- dýri í þokkabót, er erfitt að láta slíkum skrifum ósvarað. En snúum okkur að leik Stjörnunar og UMFG.Fyrir þann leik bað hátt- virtur dómari línuverði sína um að hafa góðar gætur á markverði Stjörnunnar. Hvers vegna veit ég ekki, en á eflaust rætur sínar að rekja til fyrri samskipta okkar. Ummæli dómarans um þetta til- tekna atvik í leiknum eru í alla staði röng og mér liggur við að segja að þau séru argasti rógburður. Tiltalið sem háttvirtur dómari talar um að ég hafi fengið barst aldrei í mín eyru og hefur ekki gert það enn. f fyrri hálfleik lenti ég í samstuði við sóknar- mann UMFG og var dæmd óbeint aukaspyrna á mig. Ef þessi dómur er tiltalið sem háttvirtur dómari talar um, á ég mjög bágt með að skilja talsmáta hans og eflaust ættu fleiri leikmenn erfitt með það. Einnig bendir háttvirtur dómari á það að ég hafi ýtt andstæðing minum Sveinbjörn Hákonarson er hér studdur af leikvelli af þeim Klaus Jiirgen Hilpert (t.v.) og Guðjóni Guðmundssyni lækni eftir að hafa fengið slæmt spark aftan frá. DB-mynd Bj.Bj. Liverpool á ekki pening — leikur með auglýsingu á bakinu í vetur Forráðamenn Liverpool, ensku meistaranna, lýstu því yfir i gærkvöldi, almcnningi í Englandi til mikillar furðu, að félagiö væri svo illa statt fjár- hagslega að það myndi vera með aug- lýsingar á búningi sinum í vetur — fyrst brezkra atvinnuliöa. Vakti þetta mikla athygli í Englandi í gær og eru menn að undra sig á þessari ráðstöfun, en fram til þessa hafa ensk knattspyrnufélög hundsað allar auglýsingar á búninga og heldur viljað leggja upp laupana en að ganga með auglýsingu á bakinu. Forseti félagsins, John Smith, sagði í gær: ,,Við neyðumst til að gera þetta — félagið er svo illa statt fjárhags- lega.” Hvað mega þá öll hin liðin segja? Fyrir síðasta keppnistímabi! fékk Liverpool 71.000 pund í nettótekj- ur eftir að 2,4 milljónir p'unda höfðu komið inn í aðgangseyri. Það mun vera japanskt fyrirtæki sem auglýsir á búningum og æfingabúning- um félagsins. Þó mega þessar augiýs- ingar ekki sjást í þeim leikjum sem sjónvarpaðer. Ekki var gefið upp í gær hvaða fyrir- tæki það væri, sem auglýsti né heldur hvað auglýsingin kostaði en mjög lík- legt þykir að þetta sé sjónvarpsfyrir- tækið Hitachi, sem auglýsir m.a. á búningum Hamburger SV og Hauka í Hafnarfirði svo einhver lið séu nefnd. Gert er ráð fyrir að á næstu dögum muni stjórn enska knattspyrnusam- bandsins og svo stjórn ensku deilda- keppninnar leggja blessun sína yfir, þetta. Þróttur gerði vonir Fylkis að engu í gærkvöldi var einn leikur háður i 2. deild íslandsmótsins I knattsp; rnu. Áttust þá við Þróttur frá Neskaupstað og Fylkir. Þróttur sigraði 1—0 og með þessum sigri þokuðu Þróttarar sér af mesta hættusvæðinu í deiidinni jafn- framt því sem þeir gerðu endanlega út um vonir Fylkis að komast upp í 1. deildina. Má nú telja nær öruggt að FH og Breiðablik farí upp þrátt fyrír að enn sé mikið cftir af 2. deildinni. Fyrri hálfleikurinn í gærkvöld var frá mér með knettinum. Ekki fær þetta staðizt frekar en blessað tiltalið og styður einungis grun minn um það, að dómarinn hafi ekki séð þetta atvik glögglega, enda illa staðsettur til þess. Úti á miðjum velli! Ef það glæðir skiln- ing dómarans á umtöluðu atviki, þá var ég í loftinu þegar Grindvíkingurinn og ég skullum saman. Og yfirleitt, ef ekki alltaf, eiga menn erfitt með að ýta frá sér þegar þeir hafa enga viðspyrnu og hvað þá þegar þeir eiga að hafa notað bolta til þess. Eftir þetta atvik virtist dómarinn vera á báðum áttum en eftir þó nokkur hróp og köll Grindvíkinga flautaði hann á mig og dæmdi óbeina aukaspyrnu. í ofanálag gaf hann mér gult spjald, en það var örugglega ekki fyrir kjafthátt, því ég hafði ekki sagt orð við hann þegar gula spjaldið fór á loft. Sem sagt, ég fékk gula spjaldið fyrir gróft brot að áliti háttvirts dómara. En ekki fyrir kjafthátt eins og látið er í veðri vaka í Dagblaðinu. Eftir þessa tilburði háttvirts dómara spurði ég hann þrisvar sinnum i fyllstu einlægni á hvað hann væri að dæma. En hann stóð eins og Frelsisstyttan með hnefann upp í loft og virtist skemmt. í þá missti ég stjórn á skapi mínu og til allrar ólukku grýtti ég bolt- anum í háttvirtan dómara. Þá fékk ég rautt spjald eins og vera ber, en vonzka mín var svo mikil að ég réðst á dómar- ann. En framkoma sem þessi hjá leik- manni er fyrir neðan allar hellur, hversu slakir sem dómarar eru. Þegar svona óstjórn kemst á skap leikmanns er betra fyrir hann að halda sig utan vallar og mun ég gera það í náinni framtíð. En framkoma mín gagnvart dómar- anum, er engin afsökun fyrir mistökum hans og allra sízt afsökun fyrir þá framkomu sem hann sýndi mér inni á leikvelli fyrir umtalað atvik. Dómari hefur ekkert bessaleyfi ti! þess að leggja einn leikmann í einelti inni á leikvelli, þó svo að hann alvaldið sín megin (ég get nefnt mörg dæmi máli mínu til stuðnings). Slík framkoma er aðeins ögrun við leikmann og æsir upp i honum heift og hefnigirni. Það er líka leitt að sjá það þegar dómari og blaðamaður leggjast á eitt að gera sem mesta skepnu úr leikmanni og skella skuldinni á hann einan. Það hefur reynzt gott herbragð til að eigin sök að slá upp æsifregn um atburðinn. Að lokum vil ég fyrir mína hönd biðja háttvirtan dómara, og aðra sem blönduðust inn í málið, afsökunar á þessu leiðindaatviki. Kannski sjá aðrir þá þörf hjá sjálfum sér! Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna Virðingarfyllst Þorvaldur Þórðarson. góður af hálfu Þróttara — eitt það bezta sem þeir hafa sýnt i sumar — og um miðjan hálfleikinn skoraði Erlendur Davíðsson fallegt mark sem reyndist síðan verða sigurmark leiksins. í síðari hálfleiknum sóttu Fylkis- menn látlaust að marki Þróttar en tókst ekki að skapa sér nein almennileg færi. Þróttarar vörðust vel og tókst alltaf að bægja hættunni frá marki og uppskáru sigur í lokin. -SSv. KR vann Ármann á útimótinu Þrír ieikir voru leiknir á útimótinu handknattleik við Lækjarskólann Hafnarfirði í gærkvöldi I veður- blíðunni. Fyrst léku Haukar og KR kvennaflokki og varð jafntefli 10—10. í hörkuleik. Þessi lið voru mjög jöfn íslandsmótinu í vetur og eru það greinilega ennþá. Þá voru tveir leikir í karlaflokki Framarar unnu Stjörnuna með 26 mörkum gegn 18 og var það fyrirhafnarlítill sigur eins og tölurnar gefa til kynna. Síðasti leikur kvöldsins var á milli KR og Ármanns og unnu KR-ingar sannfærandi 22—15. í kvöld verða þrír leikir á dagskrá Fyrst leika Fram og Njarðvík í kvenna- flokki kl. 18.45, en að þeim leik lokn um leika Haukar og Ármann. Vinní Haukar þennan leik má telja þá næsta örugga í úrslitaleik mótsins og þá væntanlega gegn FH-ingum, sem þegar hafa rutt erfiðari hindrun, Víkingun um, úr vegi í hinum riðlinum. Síðasti leikurinn í kvöld verður síðan viðureign FH og Stjörnunnar og verður að telja FH-ingana líklegri sigurvegara þar. Árni Sveinsson skorar jöfnunarmarkið úr vltaspyrnu, sem dæmd var á einn varnarmanna fyru Jafntefli gegr —var hápunktur viðureignar ÍA og F Jafntefli gegn hollenzku snillingunum var vafalítið hápunktur viðureignar Skaga- manna og Feyenoord, liðs Péturs Péturs- sonar, á Laugardalsvellinum í gærkvöld. Hvort lið skoraði eitt mark — úr vítaspyrn- um bæði tvö — og voru úrslitin e.t.v. ekki svo ýkja ósanngjörn en leikurinn sjálfur bauð upp á iitla spennu og lítil stemmning var á meðal hinna 6000 áhorfenda í Laugardalnum. Leikmenn Feyenoord spil- uðu fast — stundum gróft — og það setti mörk sín á leikinn. T.d. varð Sveinbjörn Hákonarson að yfirgefa leikvöllinn vegna meiðsla eftir tæklingu aftan frá. Það voru varla liðnar nema 5 mín. af leiknum þegar Skagamenn fengu eitt bezta marktækifæri leiksins. Eftir aukaspyrnu Kristjáns Olgeirssonar fékk Sigurður Lárusson knöttinn í algeru dauðafæri en sneri baki í markið og náði ekki valdi á knettinum og rann tækifærið út í sandinn. Boltinn gekk marka á milli en oft var það tilviljunum háð hvað verða vildi, einkum hjá Skagamönnum. Þeir virtust tauga- veiklaðir og báru allt of mikla virðingu fyrir mótherjum sínum. Menn voru dálítið staðir en þess ber að gæta að Feyenoord valdaði leikmenn mjög stíft pg leikmenn liðsins voru eldsnöggir á boltann. Þrátt fyrir það að forráðamenn liðsins segðu leikmenn sína í lítilli æfingu lék enginn vafi á að þessir menn vissu allir hvað þeir voru að gera og mikið öryggi var skiljanlega yfir aðgerðum þeirra. Á 11. mínútu komst Richard Budding í gegnum varnarvegg Skagamanna, en Jón Þorbjörnsson, sem átti stórleik í markinu, kom vel út á móti og varði skot hans vel. Rétt á eftir gaf Pétur vel fyrir markið og skapaði sendingin mikla hættu en ekkert varð úr. Sigþór gerði oft usla í vörn Feyenoord og hann komst innfyrir á 21. mínútu en var allt of seinn að átta sig á því sem var að ger- ast og allt koðnaði niður. Síðan kom dauf- asti kafli leiksins og bókstaflega ekkert markvert gerðist fyrr en á 38. mínútu að Sigurður Lárusson bjargaði á línu. Ör- stuttu síðar átti Jan van Deinesen gott skot að marki sem Jón Þorbjörnsson gerði vel í að verja. Á 40. mínútu skoraði síðan Feyenoord mark sitt. Iwan Nielsen lék þá inn í teiginn og var brugðið af Sigurði Lárussyni. Guð- mundur Haraldsson flautaði og benti þegar i stað á vítaiAtnktinn. Pétur Péturssor, tók spyrnuna gegn sínum gömlu félögui oc skot hans var mjög öruggt — fór í þ' iá og inn af miklum krafti. Á lokaminútu fyrri hálfleiksins fékt. . Sigþór Omarsson er hér í baráttu við Tor van Engelen, sem hefur betur að þessu sinni. DB-mynd Bj. Bj.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.