Dagblaðið - 25.07.1979, Síða 3

Dagblaðið - 25.07.1979, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JULÍ 1979. Spurning dagsins 3 Hverjir eru á móti Kef lavíkursjónvarpi? Islenzkt sjónvarp veröur aldrei annað en tilraunasjónvarp „Islenzkt sjónvarp verður aldrei annað en tilraunasjónvarp sem landsmenn hafa af byrði en ekki ánægju,” segir bréfritari. 2532-2975 skrifar: í lesendabréfi i Dagblaðinu sl. laugardag tekur „Pétur” sig til og mótmælir á ,,sinn hátt” uppástungu, sem fram kom í grein Geirs R. Andersen þann 18. þ.m. um, að hafnar verði samningaviðræður um afnot allra landsmanna af Keflavik- ursjónvarpinu. Segir „Pétur”, að ,,það sé íslend- ingum fyrir beztu að hafa það lok- að”, og ennfremur, að lokun Kefla- víkursjónvarpsins hafi verið þeim, sem bera velferð íslenzkrar menn- ingar fyrir brjósti mikið fagnaðar- efni! — og ættum við frentur að efla okkar islenzka sjónvarp, fjölga út- sendingartímum og leggja niður hið fáránlega mánaðarleyfi í júli. Þetta álit „Péturs” er einmitt dæmigert fyrir þá hrokagikki, sem telja sig hina einu, sönnu ,,menn- ingarvini” þjóðarinnar, og þar eigi engir aðrir að koma nærri. „Pétur” gerir sér sennilega ekki grein fyrir því, að hann og „þeir hinir”, sem telja sig i forsvari fyrir „brjóstavel- ferð” íslenzkrar menningar flytja is- lenzkum almenningi engan fagnaðar- boðskap. Þótt sá, er þetta ritar hafi ekki „þjáðst” tiltakanlega þau ár, sem Keflavikursjónvarpið hefur verið lokað, eru margir, þ.á m. eldra fólk og aðrir, sem ekki hafa mikið til af- þreyingar, sem ekki kunna „Pétri” og þeim hinum, sem knúðu fram lok- un þessa sjónvarps neinar þakkir fyrir. Má raunar telja með ólikindum — og cinsdæmi — hve íslenzkir stjórnmálamenn gerðu sig litla, að leggjast flatir fyrir þeim lamenna hópi, sem af illgirni einni saman krafðist lokunar þess vinsæla afþrey- ingamiðils, sem Keflavíkursjónvarp- ið var. Enn einkennilegra er þó, hversu auðsveipur almenningur gengur ávallt til húðstrýkingarinnar, þegar vinstri menn og einangrunarsinnar veifa svipunni. Að efla okkar íslenzka sjónvarp, fjölga útsendingartímum og leggja niður rnánaðarleyfi í júli o.s.frv. eins og „Pétur” vill fremur snúa sér að, er því miður annað hvort fals'eða barnaskapur, nema hvort tveggja sé. Ekkert af þessum atriðum er ti! umræðu hjá islenzku sjónvarpi, vegna fjárskorts, og það vita allir. íslenzkt sjónvarp verður aldrei annað og meira en tilraunasjónvarp, sem landsmenn hafa af byrði en ekki ánægju. Það er þvi full ástæða til þess að hvetja til samningaviðræðna um af- not af Keflavikursjónvarpinu, sam- hliða hinu islenzka, fyrir alla lands- mcnn, og eru lesendur þessara lína, svo og landsmenn almennt hvattir til að styðja þá hugmynd. Þingmenn dreifbýlisins ættu manna helzt að styðja þá hugmynd. Hvaða dreif- býlisþingmenn skyldu annars vera á móti henni? Dýralæknirá Barðaströnd: Sótti um stöðu ádýra- spítal- anum Dýralæknar fást ekki á dýraspítalann • krfuðu að koma en hafa ekki mætt V>|[nii skrifa um d>ra\pilalann i l)H á I mánuda|(inn hafrti Sigriflur Ásjjeirs- I doiiir. formadur sljórnar spitalans. I samhand sirt bladiA: Dýraspiialinn var siolna/Sur i m.u J IV?? I'cgar i upphali var lcilaft nl v-raiVdyrahcknis i umdxminu. I lirvi,|olls Sandholis. tiin samsiarl | llann kvaAst ckki gcia hxii vi«' siy la hann fcngi aAsioAarlxkm. I I ngin lagahcimild var Ivrir jni cn I hcimild var fyrir aft siofna cmbxili ii.inddvr.il.cknis scn* hn*naiV ollu | l.indimi \an' ur a>' fni cinh.cili v.ir k..|IU.>.l lcgt! I oi la.Vimciin ds laspiialaiis ycr.'u alll scili hcsr yaiu lil a>' simMa ,u' a>' hcssi Ijtandlxkmi ixki nl siaila. | |n i lirvniollur Sandholi hal.'i lol.u' a>' laka spitalann at' scr þcyar lai | amll.i kiiirinn hx ti >ioi I Sirtan þctla var cr liAu'cill og halli ai oj: hvorugiir Ixknanna cr kommn I ul siarla l in luna sioiV ul aA la cr lcndan dvralxkm til landsins cn hann tckk ekki siarlslcvfi Nu Irclium vió at þvi a skoivpón- um aó Brynjólfur Sandholi hafí skritaó horgarraói hrcl og lilkynm aó hann vxn rcióuhumn aA koma nl starla vió dvraspiialann l'juni Viö okkur helur hann ckki hali samhand ojr þar scm hann cr crlcndis hefur ckki icki/i at' ta uppgctió hvaft lyrir honuni vakir Svo viröisi scm Rrynjólfur hafi noilari scr dv raspitalann ul aó ul vcca scr a.Vio.'armann cr sinnir 'i'*rlum Ivnr hann. scm c*r uppickmn vn' h.ik.irl.ivci'ar Ivrir S.idvrasalmó c tlcir Þcssi hvulti fór á djravpilalann og fékk ból meina slnna. —fékk ekkertsvar Gunnar Már Gunnarsson, héraðs- dýralæknir á Barðaslrönd, hringdi vegna lesendabréfs Sigríðar Asgeirs- dóttur, formanns sljórnar dýraspítal- ans, í DB 19. júli sl. Gunnar kvaðst ekki vilja sætta sig við að dýralæknar lægju undir því ámæli að vilja ekki starfa við dýra- spítalann. „Árið 1977 þegar ég var við nám í Noregi sá ég skrif um dýraspítalann i einu dagblaðanna og skrifaði þá Sambandi dýraverndunarfélaga og forvitnaðist um möguleika á starfi. Ég fékk svar nokkru síðar frá Jór- unni Sörensen sem sagði að bréfi mínu hefði verið komið áleiðis til Sigríðar Ásgeirsdóttur. Frá henni frétti ég aldrei neitt. Þegar staða dýralæknis við dýra-' spítalann var auglýst í april sl. sótti ég ásamt fleiri læknum um hana. Við mig hefur ekkert santband verið haft siðan nema hvað Sigríður Ásgeirs- dóttir hringdi og spurði hvort ég vildi taka fjárhagslega áhættu. Skriflegt svar við umsókn minni hef ég aldrei fengið. Með þetta í huga finnst mér það anzi hart þegar sagt er i blöðum að dýralæknar fáist ekki til starfaáspítalann.” Lesendabréfið i DB sem er tilefni athugasemda Gunnars Más Gunnarssonar. Toppurinn frá Finnlandi 26 TOMMUR 60% BJARTARI MYND ’ EKTA VIÐUR: PALESANDER, HNOTA 1 100% EININGAKERFI GERT FYRIR FJARLÆGÐINA 2-6 M 3 ÁRA ÁBYRGÐ Á MYNDLAMPA FULLKOMIN ÞJÚNUSTA SÉRSTAKT KYNNINGARVERÐ VERÐ: 578.800,- STAÐGR.: 556.648.- BUÐIN 'SKIPHOLT119. SÍMI29800 50 ÁRA • SENDUM UM ALLT LANDIÐ Hvað býstu við miklum sköttum? Sólveig Jónsdótlir, blaðamaður: Það hugsa ég aldrei um, borga bara það sem fyrir mig er lagt. Guðmundur Sigurðsson, járnsmiður: Það veit ég ekki, ég spekúlera ekkert i slíkum hlutum. Borga bara. Guðmundur Halldórsson, húsgagna- smiður: Ég gæti trúað að ég fengi eitt- hvað svipað og í fyrra, kannski 6—700 þús. Kristján Tryggvason, vinnur hjá Flug- leiðum: Ég bý erlendis, svo það er nú ekki að marka mig. Agnar Kofoed-Hansen, flugmálastjóri: Það veit ég ekki. Konan min hefur haft fjárráðin sl. 40 ár svo það þýðir ekkert að spyrja mig. Kristín Árnadóttir, húsmóðir: Ég hef nú bara alls enga hugmynd um það.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.