Dagblaðið - 25.07.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1979.
5
GUFUSKORTUR HEFUR LAMAÐ
AFKASTAGETU KÍSILIÐJUNNAR
Ríkið á samkvæmt samningum að sjá verksmiðjunni fyrir gufu og boranir eru nú hafnar af krafti
Vegna skorts á gufu í Bjarnarflagi
hafa þau tímabil komið á þessu ári að
afköst Kísiliðjunnar hafa dottið niður í
40—50% af fullum afköstum. Tvö
vinnslukerfi eru í verksmiðjunni og
hefur stundum þurft að stoppa annað
að fullu og hitt ekki keyrt á fullum
afköstum.
Allan tímann hefur verksmiðjan
verið i gangi og það með fjórum
vöktum allan sólarhringinn. Minni
afköst vegna gufuskortsins koma þvi
niður á heildarafkomu verksmiðj-
unnar.
„Ríkið á samkvæmt stofnsamningi
verksmiðjunnar að sjá henni fyrir lág-
marksgufuþörf,” sagði Garðar Sverris-
son verkfræðingur Kisiliðjunnar, í
viðtali við DB-menn sem voru á ferð í
Mývatnssveit fyrir nokkru. „12. júní
var byrjað að bora fyrir meiri gufu.
Jarðfræðingar eru bjartsýnir á að meiri
gufa fáist við þessa borun, svo bjart-
sýnir að engar vafaraddir heyrast
meðal þeirra. En borunin tekur allt að
þremur mánuðum,” sagði Garðar.
Garðar sagði að gufuskorturinn væri
afleiðing jarðskjálftanna í Bjarnarflagi
í september 1977. Fyrir þá var gufu-
þrýstingur hjá Kísiliðjunni 9—10 kg en
hefur smáminnkað síðan.
„Við eigum m.a. við það að búa að
öðru hvoru fer þrýstingurinn niður i
3,5 kg. Holurnar sem við fáum gufu úr
eru tvær og það er önnur þeirra sem er
svona stopul síðan í jarðskjálftahrin-
unni,”sagði Garðar.
Annað atriði, sem stofnar afkomu-
öryggi Kísiliðjunnar í nokkra hættu er
að tekin hefur verið niður gufuraf-
stöðin í Bjarnarflagi. Hún framleiddi
áður rafmagn fyrir Laxárlinu og var
mjög örugg. En eftir að gufuskorts tók
að gæta í Bjarnarflagi var framleiðslu
rafstöðvarinnar hætt. Kísiliðjan fékk
rafmagn beint frá stöðinni ef Laxár-
stöðin fór út. Nú er Kísiliðjan stopp ef
Laxárstöðin stöðvast.
í maímánuði voru afköst Kísiliðj-
unnar 3/4 af heildarafköstum eða
1500—1600 tonn af kísilgúr. Full
afköst eru um 2000 tonn á mánuði eða
24000 tonn á ári.
Það eru 5 menn sem annast rekstur
verksmiðjunnar á vöktunum. Tveir vél-
gæzlumenn, tveir í pökkun og einn á
rannsóknarstofu. Þetta vaktakerfi er
fjórfalt. Aðrir sem í Kísiliðjunni vinna
starfaað degi til og heildarfjöldi starfs-
liðs er þetta 60—70 manns.
-ASt.
Kísiliðjan við Mývatn, skrifstofu- og rannsóknarhúsin fremst en verksmiðjubáknið að baki. Greinilega má sjá uppfylltar
sprungur í fremri húsunum, en þær komu í jarðskjálftunum 1977, þegar hluti verksmiðjuhúsanna var að falli korninn,
jarðþrærnar eyðilögðust og gufuholurnar brengluðust. DB-mynd: Hörður.
0DYR
SPAR
m
ÞAUL-
REYNDUR Á
AÐEINS
2,3 MILU.
INGVAR HELGAS0N SSSSSSr
Útsýn frá nýju lcðjuþrónni niður yfir Bjaraarfiag. Þar í flaginu hefur gengið á ýmsu með gufukraftinn eftir
jarðskjálftana 1977. Borinn Jötunn cr nú að leita þar meiri gufuafls fyrir Kísiliðjuna.
400 MILLION KR0NA MANN-
VIRKIREIST VIÐ KÍSILIÐJUNA
Við Kísiliðjuna hefur nú verið reist
nýtt 400 milljón króna mannvirki. Er
það ný þró sem geymir hráefni verk-
smiðjunnar — kísilgúrinn af botni
Mývatns. Hin nýja þró stendur rúman
kílómetra frá verksmiðjunni sjálfri og
er utan og ofan við jarðskjálftasvæðið
kringum verksmiðjuna. Þróin er að þvi
er virðist svo staðsett að litlar likur eru
á að hraunflóðgeti til hennar náð.
Samtímis að nýja þróin var tekin i
notkun voru gömlu þrærnar afskrif-
aðar og notkun þeirra hætt. Þær voru
orðnar mengaðar af grjóti og hafði
miklu af fínna efni verið i þær keyrt til
að reyna að þétta sprungurnar sem
komu í botn þeirra í jarðskjálftahrin-
unni 1977. Er talið óvíst hvort nokkurn
tíma hefði verið hægt að þétta þær, þvi
sprungurnar virtust á sífelldri
hreyfingu. Ef byggja hefði átt afkomu
verksmiðjunnar á gömu þrónum er
óvíst hver framtíð verksmiðjunnar
■hefði orðið.
Hin nýja og glæsilega framkvæmd
við nýja þróarbyggingu kostaði tæp-
lega 400 milljónir króna og var fjár-
mögnuð með erlendum lánum, að sögn
Garðars Sverrissonar, verkfræðings
Kísiliðjunnar. „Hin nýja framkvæmd
breytir afkomu verksmiðjunnar um
langa framtíð,” sagði Garðar. „Verk-
smiðjan hefur skilað hagnaði undan-
farin ár og er vonazt til að svo verði
áfram, ef úr rætist meðgufuskortinn.”
Með í hinni nýju framkvæmd við
Kísiliðjuna telst auk þróarbyggingar-
innar sjálfrar leiðsla milli þróar og
verksmiðju, nýr leðjutankur við verk-
smiðjuna og stórt og mikið varma-
skiptakerfi til að halda leiðslunni og
kisilleðjunni þýðri. Áður var það gert
með því að beina gufu í jarðþrærnar
við verksmiðjuna, en nú er leiðin í nýju
þróna utan skjálftahættusvæðisins,
orðin of löng og of hátt uppi i hlíðinni
fyrir ofan verksmiðjuna.
Nýja þróin tekur 300 þúsund rúm-
metra. Er hún gerð í hvilft í hliðinni
sem þar var frá náttúrunnar hendi, en
stífluveggur settur fyrir og botn þróar-
innar þakinn með plasti. Dýpt þróar-
innar er 11 metrar. Á þrónni siglir sér-
smíðaður dæluprammi sein á hverjunt
degi sér verksmiðjunni fyrir nægu hrá-
efni úr þrónni. Ef pramminn á að geta
náð niður á botn þróarinnar verður að
lækka vatnsyfirborð hennar um 4
metra.
Allir lokar og dæla eru staðsett i
tveggja hæða litlu húsi á stíflugarði
þróarinnar. Þar er og aðstaða fyrir
þróarmenn og hefur hún mjög batnað,
því áður voru öll störf þeirra unnin úti
við hvernig sem viðraði.
Það var fróðlegt að sjá þetta mann-
virki í fylgd Garðars verkfræðings.
Sérstök merki við þróna varpa ævin-
týrablæ á staðinn, en þetta eru siglinga-
merki fyrir dæluprammann á þróarflet-
inum.
Ljóskastarar lýsa upp þróarsvæðið
þegar dimmt er og má ætla að með'
slíkri Ijósadýrð verði þróin nýja eins og
ævintýraborg i hlíðinni ofan og norð-
vestan við Kísilverksmiðjuna.
Meðan jarðþrærnar voru liftaug
verksmiðjunnar við hráefnisnámuna á
botni Mývatns hékk framleiðslan á blá-
þræði. Sífelld vandræði voru við jarð
þrærnar eins og drepið hefur verið á.
„Við vorum orðnir hráefnalitlir í
febrúar og í lok febrúar var farið út á
vatnið til að reyna dælingu af vatns-
botninum,” sagði Garðar. „Þetta
gekk, þó ekki gengi það vel. En neyðin
rak okkur út. „Nú ættum við að vera
sæmilega birgir fyrir veturinn ef ekkert
óvænt kemur upp og dæling stendur
allt sumarið eða jafnvel fram i
október/nóvember,” sagði Garðar
Sverrisson.
-ASt.
Nýja dælustöðin á stífiugarði nýju leðjuþróarinnar hjó Kísiliðjunni. Húsið er tveggja hæða og dælur i
kjallara. Pramminn sést ó þrónni og siglingamerkin, sem hann er stilltur eftir við dælingu i hlíðinni fjær. Nýja
þróin tekur 300.000 rúmmetra og er 11 metra djúp. DB-myndir: Hörður.