Dagblaðið - 25.07.1979, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1979.
Chuck
Berry í
fjögurra
mánaöa
fangelsi
Chuck Berry, rokk og rólarinn
gamalkunni, var fyrir nokkrum dög-
um dæmdur í fjögurra mánaða fang-
elsi í Los Angeles. Afbrot hans er
skattsvik. Auk þess lagði dómarinn á
hann þá kvöð að gefa eitt þúsund
vinnustundir til góðgerðastarfsemi,
til dæmis styrktarhljómleika og ann-
ars slíks.
Er dómurinn var kveðinn upp
brast rokkstjarnan í grát.
Ekki þarf Chuck Berry þó að af-
plána fangelsisdóm sinn fyrr en eftir
10. ágúst. Hann er um þessar mundir
á hljómleikaferð um Evrópu.
Dómarinn taldi rétt að leyfa Berry að
ljúka henni áður en hann yrði settur
bak við lás og slá. — Chuck Berry
sótti eftir því í fyrrasumar að fá að
halda hljómleika á íslandi.
Það voru Gibb-bræðurnir Robin, Barry og Maurice, sem voru hvatamennirnir að þvf að sjónvarpsþátturinn Söngvagjöf var gerður. Hér eru þeir ásamt stjórnanda
þáttarins, David Frost, og útgefandanum sinum, Robert Stigwood.
Söngvagiafarplata væntanleg
Hljómplata með lögum úr sjón-
varpsþættinum Söngvagjöf er vænt-
anleg á markaðinn hér á landi áður
en langt um líður — væntanlega í
næstu viku. A þeirri plötu koma
fram margir þekktustu popparar
heimsins, þar á meðal Bee Gees,
Earth Wind & Fire, ABBA, Donna
Summer og Olivia Newton-John.
Svo sem fólk rekur eflaust niinni til
var þátturinn Söngvagjöf sýndur i is-
lenzka sjónvarpinu 17. júní síðastlið-
inn. Allir þeir, sem þar komu fram,
gefa Barnahjálp Sameinuðu þjóð-
anna höfundarlaunin af þeim lögum
sem þar voru flutt. Meðal laga sem
Barnahjálpin fær ágóða af eru Too
Much Heaven (Bee Gees), September
(Earth Wind & Fire) og D’Ya’Think’
l’m Sexy (Rod Stewart). Öll þessi lög
eru á nýju plötunni. Einnig koma þar
fram Olivia Newton-John og Andy
Gibb og syngja eitt lag saman. Þá
taka hjónin Kris Kristofferson og
Rita Coolidge einnig lagið. Ágóði af
sölu plötunnar rennur til Barnahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna.
CHUCK BERRY - Dómarinn tók
tillit til þess að rokkkempan gamla er
á hljómleikaferðalagi um þessar mund-
ir. Hann þarf þvl ekki að mæta I fang-
elsið fyrr en eftir 10. ágúst. — Berry
var sekur fundinn um að hafa stungið
tvö hundruð þúsund dollurum undan
skatti árið 1973.
BARBRA STREISAND — Aheyrendur á hljómleikum hennar gera hana dauðskelfda. Hér er hún stödd fyrir framan tug-
þúsundir fólks, reyndar ekki á alvörukonsert heldur I kvikmyndinni A Star Is Born, þar sem hún fór með aðalhlutverkið
ásamt Kris Kristofferson.
Barbra Streisand kveðst
hætt aö halda hljómleika
Söng- og leikkonan Barbra Streis-
and hefur heitið því að syngja aldrei á
hljómleikum oftar. Ástæðan er sú að
hún er dauðhrædd við aðdáendur
sína. Hugsunin ein um að gera fleiri
þúsund manns til hæfis — og vera
völd að þvi að þeir eyði aurunum sín-
um til þess eins að koma og sjá hana
og heyra — veldur henni martröð á
nóttunni.
Barbra er hætt að fara út fyrir
hússins dyr án þess að hafa með sér
varðhund, sem ræðst á alla sem nálg-
ast söngkonur.a um of. Heimili
hennar er nú umgirt rafmagnsgirð-
ingu og fyrir innan biða varðhundar
spenntir eftir því að einhver reyni að
komast innfyrir. — Það hlýtur
sannarlega að vera hundalíf að vera
stjarna.
Ann-Margret
gerist
diskó-
söngkona
Ann-Margret, sænskættaða leik-
konan sem fór með móðurhlutverkið
í kvikmyndinni Tommy hér um árið,
hefur nú snúið sér að diskósöng!
Fyrir nokkru tróð hún upp í New
York. Á hljómleikunum varð henni
hins vegar svo heitt að hún kastaði
klæðum og lauk konsertinum á
undirkjólnum einum fata.
Búa Peter Frampton og Olivia Newton-John
í Bandaríkjum á fölskum forsendum?
Stórstjörnunum Peter Frampton
og Oliviu Newton-John (eða Oliviu
Neutron-Bomb eins og Bee Gees
kalla hana) hefur verið stefnt fyrir
rétt í Bandaríkjunum. Þar eiga þau
að svara alls konar áleitnum spurn-
OLIVIA NEWTON JOHN -
Er eitthvað gruggugt við innflytj-
endapappira hennar og atvinnu-
leyfi I Bandaríkjunum?
ingum varðandi búsetu sína í Banda-
ríkjunum og meint brot á atvinnu-
leyfislögunum.
Peter Frampton er Englendingur
og Olivia frá Ástralíu. Þau hafa bæði
sett sig niður vestra og starfa þar af
krafti í skemmtanabransanum. Nú
þykir dvöl þeirra þó skyndilega orðin
tortryggileg og sumir halda því fram
að innflytjendaskjöl þeirra hafi verið
fölsuð.
inu.
ANN MARGRET — diskósöngkon-
an nýbakaða aldeilis ekki dúðuð á svið-