Dagblaðið - 25.07.1979, Qupperneq 23
23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JULI 1979.
I
Útvarp
Sjónvarp
Herrnann ætlar í íþróttaþætti sínnm að bæta um betur í kvennaskrifum íþróttafréttaritara og fjalla um kvennaknatt'
spyrnu. Að vísu er myndin af stúlkum i handbolta en engu að síður eru það konur sem á myndinni eru.
ÍÞRÓTTIR—útvarp kl. 21,45:
OGÞÁER KOMID
AÐ KONUNUM
Iþróttir Hermanns Gunnarssonar eru á
dagskrá i kvöld kl. 21,45 og sagði
Hermann að í þættinum yrði fjallað
um fótbolta karla og kvenna. Nú
stendur yfir íslandsmót hjá kven-
fólkinu og sagði Hermann að þó færri
virtust hafa áhuga fyrir kvennaleikjum
væru þeir oftast miklu skemmtilegri.
Þar væri spilað af mikilli hörku og þar
kæmu þrumuskotin.
Hermann sagðist i framhaldi af þvi
ætla að spyrja þeirrar spurningar hvort
það væri dömulegt að spila fótbolta?
Siðan verður spjallað litillega um
íslandsmót karla. Sund verður á dag-
skrá og rætt verður við þjálfara sund-
kappanna um af hverju íslendingar séu
svo aftarlega á merinni sem raun ber
vitni.
Að síðustu verður svo fjallað urn
íslandsmót i handbolta utanhúss og
lofaði Hermann í lokin þrumugóðum
þætti, sem er tuttugu mínútna langur.
-F.LA.
Benny Goodman er meðal þeirra sem í heyrast í þættinum í kvöld. Myndin er tekin í júní 1976 þegar Goodman kom
hingað á listahátíð. Með honum á myndinni er Ingimundur Sigfússon.
TÖFRANDITÓNAR—útvarp kl. 20,00:
Tímabil stóru hljómsveitanna
Töfrandi tónar nefnist þáttur sem
hefur verið á dagskrá útvarpsins
undanfarna þrjá miðvikudaga. Er
þátturinn i kvöld sá fjórði og síðasti.
Jón Gröndal er umsjónarmaður þátt-
anna, en þar sem Jón er sjómaður
V______________________________
reyndist erfitt að ná í hann til að fá
upplýsingar um þáttinn.
DB er þó kunnugt að Jón kynnir
tímabil stóru hljómsveitanna i Ameríku
árin 1936-46. Meðal þeirra sem i heyrist
i þættinum í kvöld er Benny Goodman
ásamt fleiri hljómsveitarstjórum stóru
,,Big band” hljómsveitanna.
Þátturinn er á dagskrá í kvöld kl.
20,00 og er hann hálftíma langur.
-EI.A.
__________________________________/
t--------;-------------\
LITLIBARNATIMINN—útvarp kl. 17,20:
Hjartað og
starfsemi þess
Litli barnatíminn er á dagskrá i dag
kl. 17,20 og er það Steinunn Jóhanns-
dóttir, leikkona, sem sér um þáttinn.
Aðalumfjöllunarefnið í þættinum
verður hjartað, starfsemi þess og til-
finningahlið.
M. a. er lesið úr bókinni, Sagan af
Serjoza eftir Veru Panova í þýðingu
Geirs Kristjánssonar og úr bókinni
Svona erum viðeftir Joe Kaufmann.
Einnig verður rætt við Þorvarð
Brynjólfsson, lækni, og nokkur börn i
framhaldi af þvi. Barnatiminn er
fjörutiu minútna langur í dag. -FI.A.
Hjartað er pumpa sem þarf að endast allt lífið, segir í dagskrárkynningu litla
barnatímans, en í þættinum verður rætt um hjartað og starfsemi þess. Stúlkan á
myndinni váeri ekki á skautunum sínum ef hjartans nyti ekki við og sama er auð-
vitað að segja um aðrar manneskjur.
T"solu Chevrolet Suburban
árg. 1971 — Dísil, 6
cyl., Perkins. Nánari
uppl. í síma 51005 eftir
kl. 7.
TILSÖLU
ROVER 3500
Þetta er happdrættisvinningur. Okeyrður.
Ailar nánari upplýsingar hjá
HÚSOGEIGNIR
BANKASTRÆTI6 - SÍMI28611