Dagblaðið - 01.08.1979, Side 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979.
5
Skattskráin skoðuð:
Fangelsispresturinn efstur
Við höldum áfram að fletta skatt-
skránni og í dag könnum við skatta
starfandi presta í Reykjavík.
Taflan skýrir sig að mestu sjálf.
Til samanburðar látum við fljóta
með skatta viðkomandi presta í
fyrra. Á töflunni er að finna starf-
andi sóknarpresta þjóðkirkjunnar í
Reykjavík, en einnig Kristján
Róbertsson, Frikirkjuprest.
Einnig athugum við skatta skóla-
prests, fangelsisprests, og biskups.
Eins og taflan sýnir þá greiðir sr. Jón
Bjarman, fangelsisprestur mesta
skatta annað árið i röð en sr. Ragnar
Fjalar Lárusson, prestur í Hallgríms-
kirkju, fylgir honum fast eftir. Tekj-
ur prestanna ásamt tekjum eigin-
kvenna þeirra á síðasta ári virðast
liggja á bilinu 4—9 milljónir.
-GAJ-
Séra Jón Bjarman, fangelsisprestur
greiðir rúmlega 2,2 milljónir i
opinber gjöld í ár.
Tekjuskattur Útsvar Barnabætur Samtals í fyrra
Frank M. Halldórsson, Neskirkju 873.549 488.800 0 1.623.904 993.938
Guðmundur Ó. Ólafsson, Ncskirkju 725.382 669.100 0 2.079.116 1.253.928
Þórir Stephensen, Dómkirkjunni 980.770 615.800 100.660 1.615.973 759.223
Hjalti Guðmundsson, Dómkirkjunni 267.397 592.800 100.660 874.671 301.200
Kristján Róbertsson, Fríkirkjunni 369.114 553.700 251.646 778.903 ?
RagnarF. Lárusson, Hallgrimsk. 1.171.559 957.400 100.660 2.218.319 1.332.489
Karl Sigurbjörnsson, Hallgrímsk. 138.683 582.500 251.646 583-634 497.818
Arngrímur Jónsson, Háteigskirkju 664.741 558.000 0 1.473.6W- 680.020
Tómas Sveinsson, Háteigskirkju 279.729 400.300 402.632 357.703 343
Sig. H. Guðjónss., Langholtsk. 834.946 831.400 0 1.913.586 486.424
Árelíus Nielsson, Langholtsk. 1.393.497 587.500 0 2.095.709 1.474.941
Guðm. Þorsteinsson, Árbæjarkirkju 695.405 573.300 100.660 1.363.918 770.621
Jón D. Hróbjartsson, Laugarnesk. 417.503 568.300 402.632 695.241 624.248
Grímur Grímsson, Ásprestakalli 897.001 785.800 0 1.838.319 1.290.853
Lárus Halldórsson, Breiðholtsp. 592.264 618.300 0 1.361.505 1.133.480
Hreinn Hjartars., Fella- og Hólas. 850.702 817.700 251.646 1.579.063 959.055
Ólafur Skúlason, Bústaðak. 1.042.986 615.400 100.660 1.793.283 777.815
Halldór Gröndal, Grensássókn 781.659 601.300 100.660 1.399.428 871.708
Jón Bjarman, fangelsisprestur 1.153.632 896.200 0 2.252.295 1.757.728
Sigurbjörn Einarsson, biskup 925.877 521.200 0 1.523.064 1.001.074
Gisli Jónasson, skólaprestur 86.779 357.900 251.646 269.244 -19.141
Norræna
prestastefnan
hófstígær
Um 250 norrænir prestar sitja
norrænu prestastefnuna sem var sett i
Dómkirkjunni i gær. fslenzku þátt-
takendurnir eru kringum 50.
Prestastefna hófst með
guðsþjónustu i Dómkirkjunni kl. 10 í
gærmorgun. Þar flutti sr. Ólafur
Skúlason, dómprófastur ávarp, dr.
theol. Chr. Thodberg frá Danmörku
prédikaði og sr. Hjalti Guðmundsson
og sr. Þórir Stephensen þjónuðu fyrir
altari.
Eftir hádegið voru fyrirlestrar og
umræður í Neskirkju. I dag halda þátt-
takendur til Þingvalla þar sem sr.
Eiríkur J. Eiríksson þjóðgarðsvörður
greinir frá staðháttum og eftir ferð að
Gullfossi og Geysi verður hlýtt á messu
í Skálholtskirkju þar sem biskup
íslands, hr. Sigurbjörn Einarsson pré-
dikar. Þá mun sr. Heimir Steinsson
flytja fyrirlestur um Skálholt og kirkju-
sögu íslands.
Prestastefnunni lýkur á fimmtu-
dagskvöld.
-GAJ-
Þrír sóttu um æskulýðsráð:
ÓMAR EINARSSON
LIKLEGASTUR
Alþýðubandalag vill að fulltrúastaðan
verði lögðniður
Þrír hafa sótt um starf fram-
kvæmdastjóra æskulýðsráðs Reykja-
víkur, en umsóknarfrestur rann út í
gær. Þeir eru Gylfi Kristinsson, for-
maður Æskulýðssambands íslands,
Hilmar Jónsson, bókavörður í Kefla-
vík, og Ómar Einarsson, sem gegnt
hefur störfum fulltrúa hjá æskulýðs-
ráði. Væntanlega- verður ráðið i
starfið á fundi æskulýðsráðs á föstu-
daginn.
Getum hafði áður verið leitt að
því að í hópi umsækjenda yrði
Kristinn Ágúst Friðfinnsson, fulltrúi
framsóknarmanna í ráðinu, en í sam-
tali-við DB kvað hann það aldrei hafa
komið til greina.
Heimildarmenn DB telja ekki
ólíklegt að við atkvæðagreiðslu í
æskulýðsráði fái Gylfi Kristinsson
eitt atkvæði Ftamsóknar, Ómar
Einarsson fúi fimm atkvæði alþýðu-
bandalagsmanna og sjálfstæðis-
manna og Hilmar Jónsson eitt at-
kvæði Alþýðuflokks.
Það mun vera skilyrði Alþýðu-
bandalags fyrir stuðningi við Ómar
að fyrra starf hans, fulltrúastarfið,
verði lagt niður, en borgarmálaráð
fiokksins telur það starf fela i sér
óþarfa bruðl.
-GM.
Fundur í kvöld í Skjólbrekku:
Kröf luvirkjun rædd
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps Sérstaklega eru boðnir til fund-
gengst fyrir almennum fundi í Skjól- arins þingmenn kjördæmisins og full-
brekku í kvöld klukkan hálf níu. trúar Orkustofnunar og Iðnaðar-
Rædd verða málefni Kröfluvirkjun- ráðuneytisins. Einnig mæta á fund-
ar í framhaldi af ákvörðun ríkis- inn Kristján Jónsson rafmagnsveitu-
stjórnarinnar um að hætta við bor- stjóri og Sighvatur Björgvinsson al-
anir á tveimur holum við Kröflu svo þingismaður.
sem ákveðið var. -GM.
DRENGUR Á FERMING-
ARALDRI í ÖKUFERÐ?
Lögreglan í Reykjavík tók á slysstað en fannst i nærliggjandi
mánudag bíl úr Kópavogi i sina götu. Sjónarvottur taldi ökumann
vörzlu. Hafði honum að sögn sjónar- ekki nema 13—14 ára gamlan, en
votta verið ekið á vegg í Fossvogs- hvorki hefur hafzt upp á honum né
hverfi og kom dæld í bretti bílsins eigandi bílsins gefið sig fram. Málið
heim og saman við þá frásögn. er i rannsókn.
Bílnum var hins vegar ekið brott af -ASt.
Frá setningu norrænu prestastefnunnar i Dómkirkjunni í gær. Á myndinni má meðal annars sjá forsela íslands
dr. Kristján Eldjárn, frú Halldóru Eldjárn og séra Ólaf Skúlason, dómprófast.
DB-mynd: Bj. Bj
MIÐSTÖÐ
BÓKAVIÐSKIPTANNA
Á Skólavörðustíg 20 verzlum við með gamlar og nýlegar bækur í öllum greinum íslenzkra
fræða og visinda — auk fagurbókmennta i eevsilegu úrvali.
œ. 'Wf -
m #• M ■
5SWt!«. '
" # W
xiJt fí? i
'O 'C T»> .vy
% .
4? ’ 'Á
Við höfum pólitískar bókmenntir fyrir
vinstri inteliigentíuna og hægri villingana,
þjóðlegan fróðleik, ættfræði og sögu fyrir
fræðimenn og grúskara, Ijóð og skáldverk
fyrir fagurkerana, bækur um trúarbrögð,
spíritisma og guðspeki fyrir viðkomandi,
svaðilfarasögur og ferðabækur fyrir ævin-
týrasálir, afþreyingarbækur fyrir erftðis-
fólk, ævisögur erlendra stórmenna og
íslenzks alþýðufólks fyrir upprennandi
stjórnmálamenn og erlendar pocketbækur í
öllum greinum fyrir lestrarhestana.
Sérstök deild með bókum yngri islenzkra
skálda. Kaupum og seljum allar bækur,
gamlar og nýjar, íslenzkar og erlendar.
Sendum í póstkröfu.
BÓKAVARÐAN
— GAMLAR BÆKUR OG NÝJAR —
SKÖLAVÖRÐUSTÍG 20 - REYKJAVÍK. - SÍMI29720.