Dagblaðið - 20.08.1979, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 20.08.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1979. 5 GREIP BURHNIF- INN EN BEITTI EKKIAF ALVÖRU —til tíðinda dró milli glasabræðra í heimahúsi íKeflavík Þegar búrhnífurinn var gripinn og hafinn á loft í rifrildi tveggja drukkinna manna í Keflavík varð konan hrædd og hringdi á lög- regluna. Er á vettvang kom tók lög- reglan mennina í sína vörzlu og geymdi til sunnudags. Ekki kom til meiðsla hnífsins vegna. Atburður þessi átti sér stað i heimahúsi. Þar var gestur á heimili konu og sambýlismanns hennar og var vin haft um hönd. Upp úr tvö á sunnudagsnótt sinnaðist mönnun- um. Átti nú eitthvert uppgjör að fara fram og þá var það sem annar greip hnífinn. Var honum ekki alvarlega beitt en þó skarst skyrta hins lítilega .1 bloðrisna mun hvergi hafa sézt. 1 gær viðurkenndi sá er greip hnifinn sök sina og féllu mál í ljúfa löð milli glasabræðranna. -ÁSt. Paö eru sérstök forréttindi að hafa elskuna sína með sér, þvi þá getur maður stoppað öðru hvoru og látið vel að henni..... Næturlífið á Akureyri: I miðbænum fá menn útrásina „Eitt róiegasta sumar, sem við höfum átt hér fyrir norðan," sagði lögreglan á Akureyri í morgun þegar DB spurði um næturlffið í höfuðstað Norðurlands. Ekkert samkomuhús á Akureyri hefir enn sótt um leyfi til þess að hafa opið lengur á nóttunni svo sem heimilt er samkvæmt nýrri reglugerð. Það er út af fyrir sig allt i lagi að vera ungur, en þegar maður er of ungur á skellinöðru sem fer of hratt á tíma þeg- ar öll góð börn eru komin í rúmið, þá má búast við þvi að lögreglan taki mann.... ^ alltrólegt Að gömlum sið hópast fólk þó enn í miðbæinn eftir dansleiki og veitir gleði sinni útrás á ýmsa vegu en forðast illindi og skrílslæti. Sumarið hefur verið óvenju kalt og á það ef til vill sinn þátt í því hve n æturlrf ið er rólegt. -F AX. Knár Dagblaðsstrákur á ísafiröi: Safnar fyrir hjóli með bláðasölunni Vaskir sveinar og meyjar stuðla mjög að útbreiðslu Dagblaðsins víða um land. Útburðar- og sölubörn sjá um að koma blaðinu til lesenda á hverjum degi. Einn hinna vösku DB sveina hitti blaðamaður á ísafirði nýverið. Þar var kom- inn Jón Elías Þráinsson, 9 ára gamall. Jón Elías sagðist yfirleitt taka 35 blöð á dag, sem hann selur á ísafirði. Ekki var annað á piltinum að heyra en að salan gengi vel. Hann er að safna sér fyrir reiðhjóli með blaðasölunni og vonandi verður hann búinn að fá hjólið áður en skólinn byrjar i haust. DB-mynd JH. DB-myndir Fax. a frábæru veröi CQSlfsiA cs- Veró meó standard linsu og tösku: 49.900,- 44.500,- 46.000,- 59.900,- 142.500,- 152.000,- Auto winder Linsa: 28 mm. 2,8 Linsa: 135 mm. 2,8 Linsa: 200 mm. 3,5 Linsa: 35-105 mm. 3,5 Linsa: 70-210 mm. 3,5 CS-1 meö 50 mm. f 1,7 MC CS-3 með 50 mm. f 1,7 MC 139.000,- 169.500,- Rafmagnsstýröur lokari (Electronisk) K-Bayonett linsufesting LED Ijósdíóöumælir 8 sek—1/iooo sek. Mjög handhæg (Ultra compact) Og þegar ekkert er annað við að vera, er sjálfsagt að bregða á leik við lög- regluna..... SJONVARPSBUDIN BORGARTÚNI 18 REYKJAVÍK SÍMI 27099

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.