Dagblaðið - 20.08.1979, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1970. 21
Nýja LED ZEPPEUN
platan er kotmn út
Aðdáendur Led Zeppelin geta
sannarlega klingt glösum í dag og það
ekki að ástæðulausu. Mánudagurinn
20. ágúst er sumsé útkomudagur nýj-
ustu LP plötu hljómsveitarinnar, In
Through The Out Door. Þetta er
fyrsta platan sem fjórmenningarnir í
Led Zeppelin senda frá sér síðan tvö-
falda hljómleikaalbúmið The Song
Remains The Same kom út.
Led Zeppelin hefur fengizt dálítið
við að spila opínberlega upp á síð-
kastið. Til dæmis skemmti hún á
Knebworth popphátíðinni þann 11.
ágúst. Þá kom hljómsveitin fram á
tvennum hljómleikum í Falkoner
Teatret í Kaupmannahöfn. Danskir
blaðamenn voru harðorðir í garð Led
Zeppelin og sögðu hljómsveitina
staðnaða og í alla staði leiðinlega.
Enskir kollegar þeirra voru ekki á
sama máli og kváðu fýlu Dananna
því að kenna að þeir hefðu ekki
fengið frítt inn og að allar mynda-
tökur hafi verið bannaðar.
Hljómleikarnir á Knebworth eru
þeir fyrstu sem Led Zeppelin leika á í
heimalandi sínu, Englandi, síðan þeir
komu fram í Earls Court árið 1975.
Síðustu tvö árin hefur hljómsveitin
ekki komið fram opinberlega né sent
frá sér neina hljómplötu.
Það var fyrst í maí í fyrra sem fjór-
menningarnir Jimmy Page, Robert
Plant, John Bonham og John Paul
Jones hittust eftir langt hlé. Þá tóku
þeir að spila saman fyrir sjálfa sig á
afskekktum stað í Englandi.
Skömmu fyrir síðustu jól hófust
síðan upptökur á plötunni In
Through The Out Door. Aðalvinnan
fór fram í stúdíói ABBA flokksins í
Stokkhólmi. Ástæðan fyrir því að
platan kemur ekki út fyrr en í dag er
sú, að sögn Jimmy Page, að pressun
hennar mistókst nokkrum sinnum.
Áður höfðu alls kyns kjaftasögur
gengið staflaust um að það væri um-
slag plötunnar sem töfunum ylli.
Umslag þetta átti að vera hið furðu-
legasta. Meðal annars átti kaupand-
inn að geta blandað það með vatni og
síðan teiknað það á þann veg sem
hann vildi hafa það sjálfur. Page
neitaði að tjá sig um umslagið i við-
tali við enska blaðið Melody Maker.
Sömuleiðis var hann sagnafár um
tónlist plötunnar. Þó kvað hann ekk-
ert diskólag vera að finna á henni.
„Við erum okkur að sjálfsögðu vel
meðvitandi um hvað er að gerast í
tónlistarheiminum í dag,” sagði
hann. „Okkur þótti einfaldlega engin
ástæða til að semja diskólag á plöt-
una.”
ROBERT PLANT á sviði
Kaupmannahöfn. Danskir blaða-
menn gáfu hljómsveitinni siæma
dóma. Enskir koilegar þeirra
tclja það vera vegna þess að Dan-
irnir fengu ekki frimiða á hljóm-
leikana.
Jimmy upplýsti þó að hlutverk
John Paul Jones væri töluvert stærra
en á mörgum fyrri plötum Led
Zeppelin.
„Hann hefur orðið sér úti um helj-
armikla Yamaha maskinu — hljóm-
borð — nokkurs konar eins manns
hljómsveit, sem hann beitir óspart á
plötunni. Sjálfur er ég aðeins að fikta
við gítar synthesizer. Hann er þó enn
svo ófullkominn að lítið er hægt að
beita honum.”
Það er ekki á stefnuskránni hjá
Led Zeppelin að fara i risamikil
hljómleikaferðalög að svo stöddu,
líkt og áður var gert. Hljómsveitin
hyggst frekar koma fram á nokkrum
hljómleikum og hvíla sig síðan. Þá
hefur verið rætt um það i alvöru að
spila á nautaatsleikvangi í Ibiza áður
en Iangt um líður. — Ertu með til
Ibiza?
Fairport Conventíon er hætt
Dave Swarbríck hljómsveitarstjórigerist bóndi
Þjóðlagarokkhljómsveitin
Fairport Convention hefur sungið
sinn síðasta tón. Fyrir nokkrum
dögum lék hljómsveitin á sínum
síðustu tónleikum, í þorpinu
Cropredy í Oxfordshire í Eng-
landi. Þar eru allir liðsmenn Fair-
port búsettir.
Um það bil sjö þúsund manns
komu á lokatónleikana víðs
vegar að úr Evrópu. Að sögn
Dave Swarbrick, leiðtoga Fair-
port Convention, ríkti mikil sakn-
aðarstemmning á staðnum og
margir af eldheitustu aðdáendum
hljómsveitarinnar táruðust undir
lok tónleikanna.
Það er einmitt vegna Dave
Swarbrick sem Fairport Con-
vention leggur upp laupana. Raf-
mögnuð tónlist verkar mjög illa á
heyrn hans. Læknar höfðu spáð
því að ef hann hætti ekki myndi
hann verða heyrnarlaus áður en
langt um liði. Órafmögnuð tónlist
hefur hins vegar engin áhrif á
eyru hans.
„Við veltum því fyrir okkur
um tíma að leggja rafmagnshljóð-
færin á hilluna og halda áfram
sqm órafmögnuð hljómsveit,”
sagði Dave. „Þegar nánar var
athugað töldum við að það myndi
ekki ganga nógu vel.”
Rafmagnstónlist er ekki orsök-
in fyrir vaxandi heyrnarleysi
Swarbricks heldur það að báðar
hljóðhimnurnar í eyrum hans
hafa verið fjarlægðar vegna sjúk-
dóms. Hann er nú orðinn 38 ára
gamall og ætlar í framtíðinni að
gerast bóndi á búgarði sem hann
og kona hans keyptu í Skotlandi.
CHINN OG CHAPMAN
STOFNA HUÓM-
PLÖTUFYRIRTÆKI
Nicky Chinn og Mike Chapman
hafa ákveðið að stofna sitt eigið
hljómplötufyrirtæki, sem þeir hyggj-
ast kalla Dreamland. Lengst af hafa
þeir unnið fyrir Rak-records, sem
þeir eiga reyndar einhvern hlut i.
Chinn þessi og Chapman eru
þekktir lagasmiðir og upptökustjór-
ar. Þeir hafa á undanförnum árum
samið flest vinsælustu lög hljómsveit-
arinnar Smokie. Einnig hafa þeir
unnið fyrir hljómsveitina Sweet og
söngkonuna Suzi Quatro. Upp á síð-
kastið hafa þeir unnið fyrir nokkra
nýja listamenn. Til dæmis stjórnaði
Mike Chapman upptökum á Blondie-
plötunni Parallel Lines og einnig nýju
plötunni sem kemur út innan
skamms.
Þessa dagana eru Chinn og Chap-
man að vinna að plötu með söngkon-
unni Tanya Tucker og áður en langt
um líður ljúka þeir við plötu með
söngvaranum Nick Gilder, — þeim
sama og gerði lagið Hot Child ln The
City vinsælt fyrir nokkru.
ROKKARARNIR SPILA DISKO
Þó að Led Zeppelin sjái ekki
ástæðu til þess að hafa diskólag á
nýjustu plötunni sinni (sjá hér að
ofan), þá er ekki sömu sögu að segja
um ýmsa gamla og gróna rokkara.
Fyrir stuttu kom út tveggja laga plata
með Skotanum Billy Connolly og er
aðallag hennar með diskótakti.
Lagið nefnist In The Brownies.
Þrátt fyrir alls ófrægan texta er ekki
sama að segja um lagið. Það er sumsé
þekktara undir nafninu In The Navy
og í flutningi Village People.
Annar þekktur hljómlistarmaður,
Edgar Winter, sendi frá sér nokkur
diskólög á nýjustu plötunni sinni.
Hver skyldi verða næstur til að ánetj-
ast tizkubylgjunni? Johnny bróðir
Edgars kannski?
írska hljómsveitin Boomtown
Rats er töluvert mikið í sviðsljós-
inu þessa dagana. Hún flytur vin-
sælasta lagið í Englandi, I Don’t
Like Mondays, sem verið hefur í
toppsæti vinsældalistanna þar í
þrjár vikur. Söngvari hljómsveit-
arinnar, Bob Geldoff, er að von-
um sannfærður um ágæti Boom-
town Rats og spáir því að flestar
þær hljómsveitir sem kenndar eru
við nýbylgju muni deyja drottni
sínum áður en mjög langt um
líður.
„En við munum lifa og brátt
verða í hópi þeirra stærstu,” segir
Bob. „Við getum þetta af því að
við höfum hugmyndaflug og trú-
um statt og stöðugt á sjálfa okk-
ur.”
Næríngarlít-
ilkiötsúpa
íslenzk kjötsúpa: „Kysstu mig". Aflalhöfundt r
laga ft taxta: Jóhann G. Jóhannsson. Hljóö-
fœraleikur: Pálmi Gunnarsson, Björgvin Gbla-
son, Sigurður Karisson, Pétur Hjaltested, Jón
Ólafsson. Söngur Helen Haraldsdóttir,
Sigurflur Sigurflsson, Ellen Kristjánsdóttir.
Hljóðritun: Hljóflriti hf. Útgefandi: ÁÁ-hljóm-
plötur.
Kjötsúpa er einn af mínum uppá-
haldsréttum. Tónlist Jóhanns G. Jó-
hannssonar hefur yfirleitt líka verið
mér mjög að skapi. En kjötsúpugerð
er greinilega ekki sterkasta hlið
Jóhanns G. Súpan hans er búin til úr
misgóðum hráefnum og reynist nær-
ingarlítil. Góður kokkur notar ein-
göngu góð hráefni til matargerðar-
innar. Hráefnin á kjötsúpuplötunni
eru misjöfn að gæðum og platan i
heild olli mér vonbrigðum.
Bezta hráefnið á kjötsúpuplötunni
er hljóðfæraleikurinn. Um hann sjá
menn úr framlínu poppsins og skila
áheyrilegu og vönduðu verki. Sér-
staklega gladdi trommuleikur Sigurð-
ar Karlssonar eyrað. Lögin á plöt-
unni eru velflest áheyrileg en litt gríp-
andi. Eftir að hafa hlustað á plötuna
nokkrum sinnum sátu einkum tvö lög
eftir i huganum: Dagana dimma og
Þegar ég erein.
Lélegri hluti hráefnisins vegur
þyngra á plötunni. Ber fyrst að nefna
sönginn. Hann er afar takmarkað
eyrnayndi. Ég get ekki sagt með
góðri samvizku, að ég hafi verið
ánægður með söng í nokkru lagi á
plötunni. Verulegur galli það. Þar við
bætist að textarnir hans Jóhanns eru
óttaleg froða, mörgum sinnum rýrari
að innihaldi en textar sem ég man
eftir hann frá fyrri tíð. í minni
heimabyggð hefði til dæmis tæpast
talizt til þrekvirkis að böggla saman
ljóðiáborðviðþetta:
þú ert svo sexí
þú ert svo sexí
þú ert svo sexí
þú ert svo sexí
þú ert svo sexí — sexí
þú ert svo sexí — sexi
þú ert svo sexí — sexi
þú ert svo sexí — sexí
þú crt svo — sexíííí — sexíííí
Mér taldist til að orðið „sexí” væri
raulað og tuldrað 85 sinnum í þær
3,09 mínútur sem lagið tók í flutn-
ingi. Það þótti mér andskotans meira
en nóg af svo góðu. Eftir ein 30
stykki fór ég að banka í borðið og
biðja um að sexinu linnti. Ögn er
meira spunnið í aðra texta plötunnar,
en alls staðar er innihaldsleysið grass-
erandi. Textarnir segja mér núll
komma ekki neitt. Höfundurinn
sýnir enga tilburði til að horfa pínu-
lítið gagnrýnum augum á umhverfið
sem hann lýsir, eins og fullt tilefni er
— og hann hefur áður gert í textum.
Það er synd.
Sem kjötsúpuunnandi er ég ákaf-
lega hamingjusamur með plötuum-
slagið. Það er skemmtilega hannað
og vel unnið. Um innihald umslagsins
gegnir öðru máli. Góð kjötsúpa
batnar eftir því sem hún er hituð
oftar upp. Ég hef ekki lyst á því að
hita þessa súpu upp öllu oftar.
- ARH
) '■