Dagblaðið - 20.08.1979, Side 8
8
DAGBLAÐID. MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1979.
Honum varð ekki meint af átján mánaða gamla drengnum sem komst i hendur mannræningja vestúr i Bandaríkjunum fyrir
nokkru. Hins vegar særðist lögreglumaður einn þegar verið var að ná pilti frá þeim aftur. Á myndinni er barnið komið heilu
og höldnu I fang lögregluforingja eftir skotbardagann en við hliö þeirra stendur faðirinn.
Indland: ^
STJORNSINGH
SEGIRAF SÉR
—spáð nýjum kosningum þar sem IndriraGandhi vinni sigur
Ríkisstjórn Singhs á Indlandi sagði
af sér í gærkvöldi eftir að Ijóst var að
samþykkt yrði vantraust á hana á
þingi landsins.
Voru það þeir þingmenn Janata
bandalagsins, sem fylgja Indiru
Gandhi að málum, sem ákváðu að
ganga til fylgis við stjórnarandstöð-
una og sá Singh þá sér ekki annars úr-
-:i en að segja af sér.
bíjórn hans hefur aðeins setið í 24
daga og var mynduð eftir mikið þóf
þar sem Reddi forseti Indlands átti í
miklum erfiðleikum með að koma
saman starfhæfri stjórn fyrir landið.
Verður forsetinn nú að fara aftur á
stúfana og ákveða hvað gera skal.
Kunnugir telja að annaðhvort verði
nann að fela leiðtogum stjórnarand-
stöðunnar stjórnarmyndun eða boða
til nýrra kosninga.
Hið síðarnefnda þykir mun lík-
legra. Er þá Indiru Gandhi spáð
miklum sigri og ef svo færi hefðu
hagir hennar breytzt mikið frá því
hún sat í stofufangelsi fyrri stjórnar,
að því er virtist rúin öllum völdum.
Yfirgjaldker-
inn stal
úrkassanum
—ogkallaði síðan lögregluna til
Yfirgjaldkerinn í banka smábæjar-
ins Ascheberg í Vestur-Þýzkalandi
hringdi á föstudaginn í lögregluna og
tilkynnti bankarán. Málalyktir urðu
þær aðgjaldkerinn endaði bak við lás
og slá.
Sökudólgurinn lýsti fyrir lögregl-
unni með mörgum og fjálglegum
orðum að grímuklæddur maður
hefði ógnað honum með byssu og
krafizt þess að fá 19 þúsund mörk af-
hent á stundinni. Síðan hvarf ræning-
inn, að sögn gjaldkerans, á stóru
mótorhjóli.
Hins vegar könnuðust vegfarendur
ekkert við að hafa séð bankaræn-
ingja á flótta á þeim tíma sem gjald-
kerinn kvað ránið hafa farið fram.
Að lokum, eftir nokkurt málaþóf,
viðurkenndi gjaldkerinn að hafa
rænt peningunum sjálfur. Ástæðuna
kvað hann þá að árum saman hefði
hann átt við fjárhagsörðugleika að
stríða.
DRUKKNAÐII
KIRKJUGARDI
Fimmtiu og tveggja ára gamall
maður fékk hjartaslag og drukknaði í
tjörninni í borgarkirkjugarði Dort-
niund i Vestur-Þýzkalandi á föstudag.
Maðurinn hafði að sögn lögreglunnar
ætlað að ná í vatn í tjörninni til að
vökva blóm á leiði þegar kallið kom.
TongsunPark
gefnar upp sakir
Suður-kóreanska kaupsýslumannin-
um Tongsun Park hafa verið gefnar
upp sakir þær sem bornar voru á hann
um að hafa reynt að múta bandarískum
stéttarbræðrum sínum. Mál þetta hefur
staðið í þrjú ár. Park játaði á sinum
tíma að hafa mútað nokkrum banda-
rískum þingmönnum með samtals um
einni milljón dollara.
LosAngeles:
EINKAERFINGI
TYGGJÓFYRIR-
TÆKIS MYRTUR
Erfingi auðæfa Wrigley tyggigúmmi- Carlisle Higholt, sem var fertug að
fyrirtækisins í Bandarikjunum, Carlisle aldri, var gift lækni í Los Angeles. Hún
Higholt, fannst myrt í villu sinni í Los var einkaerfingi tyggigúmmífyrirtækis-
Angeles á föstudaginn. Hún hafði verið ins sem W.K. Wrigley stofnaði á sínum
stungin til bana i baðherbergi hússins. tíma.
Kínverskir unglingar
reykja afleiðindum
Kínverska dagblaðið Unga Kína ástæðan fyrir reykingum meðal kin-
hvatti skólayfirvöld og foreldra á verskra unglinga sú að þeim leiðist, eða
laugardaginn til að taka hönduni að þeir telji það heimsmannslegt að fá
saman um að fá unglinga þar i landi til sér smók.
að hætta að reykja. Að sögn blaðsins er-
Erlendar
fréttir
FJÓRTÁN ÁRA
STÓRÞJÓFUR
Fjórtán ára þorpari i borginni Kassel búinn að játa um fjögur hundruð inn-
i Vestur-Þýzkalandi hefur viðurkennt brot. Þar af tókst honum að brjótast
að hafa lifað af þjófnuðum úr bilum og' inn í tuttugu bíla eina og sömu nóttina,
húsum um langt skeið. Hann er þegar að sögn lögreglunnar i Kassel.
Hærrí vextir
i Bandaríkjunum
Seðlabanki Bandaríkjanna hefur
hækkað forvexti, að sögn til að vinna
gegn aukinni verðbólgu þar í landi.
10,5% vaxtahlutfall er hið hæsta sem
þekkzt hefur þar í landi frá upphafi
vega. Aðgerðin þykir bera þess vott
að nú skuli öllum tiltækum vopnum
beitt gegn hinni illu bólgu, verðbólg-
unni.
Aimennir vextir eru síðan mun
hærri og 10,5% eru aðeins gildandi á
milli viðskiptabanka í Bandaríkjun-
um, innbyrðis.
Vaxtahækkunin er fyrsta meiri
háttar fjármálaaðgerð bandaríska al-
rikisbankans eða Seðlabankans sem
Paul Volker, hinn nýskipaði stjórn-
andi hans, tekur sér fyrir hendur.
Hann tók við starfi sínu fyrir nokkr-
umdögum i kjölfar endurskipulagn-
ingar Jimmy Carter Bandarikjafor-
seta á stjórninni og ráðgjöfum. For-
veri Volkers í starfi var William
Miller.
Að venju er vaxtahækkunin sögð
gerð til að draga úr eftirspurn eftir
fjármagni með þvi að gera það dýr-
ara en áður. Sex af hinum almennu
seðlabönkum Bandaríkjanna brugðu
þegar við og breyttu vaxtafæti sínum.
Búizt er við að hinir sex muni fara að
á sama hátt í dag.
Vaxtahækkun var síðast í Banda-
ríkjunum hinn 20. júlí síðastliðinn.
Deilt er um afstöðu Vfetnam til ágreiningsins milli Kina og Sovétrikjanna. Inn i þær þiandasi tneim hernaðarafskipti
Víetnama i Kampútseu. Ljóst er þð að Vpfnamar eiga n6p með að byggja aftur upp land sitt eftir nær stöðugan stríðsrekstur
þar f rúmlega þrjátfu ár.