Dagblaðið - 20.08.1979, Side 18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1979.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Nýliðar Bríghton
fengu Ijótan skell
„Ég er eklci ! nokkrum vafa um
það að Alan Mullery í eftir að Idppa
hlutunum ■ lag hjá hínum ungu og
óreyndu leikmönnum Brighton,”
sagði Denis Law í BBC á laugar-
daginn eftir að Arsenal hafði unnið
stórsigur á Brighton við suður-
ströndina. Fjögur núll urðu lokatölur
og í rauninni þurfti Arsenal ákaflega
lítið að hafa fyrir sigrí sinum.
Leikmenn Bríghton virkuðu tauga-
slappir fram úr hófi og þrátt fyrír
góðan stuðning áhangenda sinna,
sem fjölmenntu á þennan fyrsta 1.
deildarleik í sögu félagsins tókst lið-
inu aldrei að skora. Það næsta sem
Bríghton komst þvi ’að gera mark var
þegar Pat Jennings varði snilldariega
þrumufleyg Peter Sayer og eftir horn-
spymuna sem varð á eftir skapaðist
mikil hætta við mark Arsenal án þess
þó að Bríghton tækist að skora.
í raun var Arsenal með unnin leik
í fyrri hálfleik þrátt fyrir að Brighton
ætti ekkert minna í ieiknum í fyrri
hálfleiknum, því þegar blásið var til
leikhlés hafði Arsenal forystu, 3—0.
Á 32. minútu skoraði Frank Staple-
ton með skalla og Alan Sunderland,
sem tryggði Arsenal sigurinn í
bikarnum gegn Manchester United í
vor, skoraði tvö mörk á 38. og 44.
mínútu og gerði þar með út um
leikinn. í síðari hálfleik var lítið um
skemmtilega takta hjá liðunum og
Arsenal vann áúðveldan sigur.
Fjórða markið skoraði Liam Brady,
sem sést vart i leiknum, úr vítaspyrnu
eftir að knötturinn hafði farið í hönd
Andy Rollings í vörninni. Brady
skoraði örugglega — markvörðurinn
fór í gagnstætt horn. Greinilegt var á
leik hinna óreyndu leikmanna
Brighton að það er sitthvað að leika í
I. og 2. deildinni í Englandi. Gaman
verður þó að sjá og fylgjast með því
hvernig liðinu vegnar i vetur en á
miðvikudag fer Brighton til Birming-
ham og leikur þar við Aston Villa.
Mörg óvænt úrslit
Enski boltinn er sem sé kominn á
fulla ferð á nýjan leik og heil umferð
var leikin á laugardag. Að vanda
hefur mikið verið rætt og ritað um
væntanlega frammistöðu einstakra
liða i vetur eins og vera ber greinir
menn á. Flestir telja Liverpool, og
Nottingham Forest, Englands- og
Evrópumeistarana, líklegasta til
sigurs í deildinni og í fyrsta leik
sínum á þessu keppnistímabili vann
Forest góðan sigur á Ipswich á Port-
man Road, þar sem ipswich var
reyndar betri aðilinn lengst af í leikn-
um. Forest skoraði hins vegar eina
mark leiksins og það eru mörkin sem
gilda.
Á 47. mínútu léku Gary Birtles og
Tony Woodcock laglega í gegnum
vörn Ipswich og Birtles skaut að
marki.Laurie Sivell varði skot hans
en hélt ekki knettinum og Woodcock
fylgdi vel eftir og skoraði af stuttu
færi. Eftir þetta var Forest heldur
sterkari aðilinn og t.d. átti Birtles
skalla í stöng rétt á eftir. Undir lokin
náði Forest mjög góðum tökum á
leiknum en tókst ekki að bæta við
mörkum, en heppnir voru
Evrópumeistararnir að vera ekki
undir í hálfleik því tvívegis bjargaði
Peter Shilton glæsilega í markinu.
Það voru þó ekki úrslit í leik Ipswich
og Forest sem þóttu sérlega óvænt
^110^ voru það leikir Everton og
orwich, Tottenham og Middles-
brough og WBA og Derby sem vöktu
athygli fyrir verulega óvænt úrslit ef
þá í raun er hægt að tala um siikt í
upphafi keppnistímabils þegar allt
eeturgerzt.
Fyrstí útisigur
IMorwich í tvö ár
Norwich kom stórlega á óvart á
Goodison Park og vann mjög
sannfærandi sigur á slöku liði
Everton, sem að sögn framkvæmda-
stjóra liðsins, Gordon Lee, átti enga
möguleika á meistaratitlinum jafnvel
áður en tímabilið hófst. Það er ekki
bjartsýnin í þeim herbúðum.
Það var hinn ungi leikmaður
Justin Fashinou — sem margir vilja
líkja við Cyrille Regis — sem vakti
mesta athygli á Goodison Párk.
Hann skoraði tvö marka liðs síns og
átti stórleik. Það var McGuire sem
náði forystunni fyrir Norwich, en
Ross jafnaði fyrir Everton úr víta-
spyrnu. Justin Fashinou kom
Norwich yfir á nýjan leik en Geoff
Nulty jafnaði fyrir Everton áður en
Martin Peters bætti þriðja marki
Norwich við fyrir hlé.
í seinni hálfleik var Norwich mun
betri aðilinn og það kom engum á
óvart þegar Fashinou skoraði fjórða
mark Norwich um miðjan hálf-
leikinn. Áhangendur Everton reyndu
að leyna vonbrigðum sínum með því
að klappa hraustlega fyrir leik-
mönnum Norwich er þeir gengu af
velli í leikslok, en þetta var
fyrsti sigur Norwich á útivelli í
deildakeppninni í tvö ár.
Síðast vahn Norwich West Ham á
útivelli þann 20. ágúst 1977 3—1.
Félagið lék svo 41.1. deildarleik í röð
á útivelli án þess að sigra og er það
einstakt í enskri knattspyrnusögu.
Þokkalegur heimaárangur hefur hins
vegar haldið liðinu uppi sl. tvö
keppnistímabil.
Vörn Tottenham
lekur enn stórlega
Þótt Tottenham keypti Terry
Yorath í vikunni til að þétta vörnina
tókst ekki betur til en svo að Middles-
brough, sem ekki hefur getið sér
alltof gott orð á útivöllum, vann
öruggan sigur á White Hart Lane á
laugardag. Eins og við sögðum hér í
DB í síðustu viku, efuðumst við stór-
lega að einn maður næði að fylla þau
skörð er mynduðust iðulega í vörn
liðsins, og það reyndist á rökum reist,
því Tottenhamvömin reyndist ærið
gloppótt. Ekkert mark hafði verið
skorað í hálfleik en Júgóslavinn Bos-
co Jamkowich og David Armstrong
voru snöggir að breyta þvi og Boro
komst í 2—0. Glenn Hoddle
minnkaði muninn en Micky Bums
gulltryggði sigurinn með marki
skömmu fyrir leikslok og Tottenham
verður að taka sig stórlega á ef ekki á
illa að fara hjá þeim í vetur.
WBA lenti i hinu mesta basli með
Derby County undir stjórn Colin
Addison, sem stjórnar nú í fyrsta
skipti 1. deildarliði. Addison var hér
árum áður og allt fram til 1974 i fullu
fjöri og lék siðast með Hereford, þar,
sem hann var einnig framkvæmda-
stjóri. Síðan lá leið hans til Newport
og nú er hann kominn við stjórn-
völinn hjá Derby.
Ro\ McFarland, sem hefur átt við
þrálát. meiðsli að stríða sl. tvö
képpnistímabil, lék nú með Derby og
allar sóknarlotur WBA strönduðu á
honum. Albion náði aldrei að sýna
góðan leik — til þess var hama-
gangurinn í leikmönnum Derby allt
of mikill. Þeir gáfu hinum lipru
miðvallarspilurum Albion aldrei
neinn frið til að byggja upp og þar
með var björninn unninn að hálfu
leyti. Hitt var svo að Derby náði
aldrei að skapa sér nein verulega góð
færi. Albion á leik gegn Manchester
United á miðvikudag á Old Trafford
og eitthvað verður að gerast eigi liðið
að koma þaðan þó ekki væri nema
meðannaðstigið.
Áður en við höldum lengra er rétt
að skoða úrslitin á laugardag.
1. deild
Bolton-Aston Villa 1—1
Brighton-Arscnal 0—4
Bristol C-Leeds 2—2
Everton-Norwich C. 2—4
Ipswich-Nottingham F 0—1
Manch. City-Crystal P. 0—0
Southampton-Manch. Utd. 1—1
Stoke-Coventry 3—2
Tottenham-Middlesbrough 1—3
WBA-Derby 0—0
2. deild
Birmingham-Fulham 3—4
Charlton-Preston 0—3
Chelsea-Sunderland 0—0
Leicester-Watford 2—0
Luton-Cambridge 1—1
Newcastle-Oldham 3—2
Notts County-Cardiff 4—1
Oricnt-Burnley 2—2
QPR-Bristol Rovers 2—0
Swansca-Shrewsbury 2—0
Wrexham-West Ham 1—0
Barnsley-Sheffield Wed. 0—3
Blackburn-Millwali 1—1
Blackpool-Gillingham 2—1
Grimsby-Exeter 4—1
Hull-Colchester 0—2
Mansfield-Chesterfield 3—2
Oxford-Rotherham 5—1
Plymouth-Bury 2—0
Reading-Brentford 2—2
Sheffield Utd.-Swindon 2—1
Southend-Carlisle 1—0
Wimbledon-Chester 2—3
4. deild
Bradford-Crewe 4—0
Darlington-Wigan 2—2
Doncaster-Northampton 2—1
Hartlepool-Portsmouth 0—3
Hereford-York City 3—1
Huddersfield-Aldershot 2—0
Lincoln-Peterborough 0—1
Newport-Port Vale 2—1
Rochdale-Bourncmouth 0—2
Torquay-Scunthorpe 3—0
Tranmere-Halifax 2—0
Walsall-Stockport 2—1
Góð byrjun !
Paiace og Stoke
Tony Woodcock skoraði sigurmark Evrópumeistara Forest gegn Ipswich
eftir að hann og Gary Birtles höfðu prjónað sig i gegnum vörnina.
3. deild Finninn Mikkala Juntainen skor-
aði annað mark Bristol City gegn
Leeds og hitt skoraði Tom Ritchie
úr vítaspyrnu. Curtis skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Leeds, sem tókst
að jafna metin seint í leiknum.
Leikur Southampton og
Manchester United var lítið augna-
yndi og hreint og beint leiðinlegur i
síðari hálfleiknum. David Peach náði
forystunni fyrir Dýrlingana á 23.
mínútu úr vítaspyrnu en Gordon
McQueen jafnaði á 40. mínútu með
skalla.
Misstu niður þriggja
marka forskot
Sá leikurinn í annarri deildinni sem
mesta athygli vakti var leikur
Birmingham og Fulham og það ekki
að ófyrirsynju. Birmingham leiddi
nefnilega 3—0 í hálfleik og soruðu
þeir Dillon og Bertchin mörkin. I
siðari hálfleik svaraði Fulham hins
vegar fyrir sig með fjórum mörkum.
Davies skoraði tvívegis, Ron Guthrie
og Srrong sinn hvort markið og sigur
Fulham var í meira lagi óvæntur.
Þrátt fyrir afleit úrslit Leicester í
I. umferð deildabikarsins sýndi liðið
mjög góðan leik gegn Watford og
það var Alan Young, sem Leicester
keypti fyrir 200.000 pund frá Oldham
í sumar, sem skoraði bæði mörkin
með örstuttu millibili þegar um
stundarfjórðungur var til leiksloka.
Leikur Chelsea og Sunderland stóð
aldrei almennilega undir nafni og
getuleysi leikmanna Sunderland kom
einkum og sér í lagi á óvart. Chelsea
var óheppið að vinna ekki sigur og
Micky Droy, miðvörðurinn
stæðilegi, skallaði i stöng á loka-
mínútu leiksins.
QPR var hið eina liðanna, sem
féllu niður úr 1. deildinni, sem vann
sigur á laugardag. Rangers fékk
Bristol Rovers í heimsókn og vann
fremur fyrirhafnarlítinn sigur með
mörkum Allen og Goodard. West
Ham byrjaði illa og tapaði í
Wrexham, þar sem Vinter, sem
Wrexham keypti frá Notts County í
sumar, slcoraði eina mark leiksins.
Swansea, með sína leikreyndu
kappa, vann Shrewsbury örugglega
en þessi lið fylgdust að upp úr 3.
deildinni í fyrra ásamt Watford. Alan
Waddle og Robbie James skoruðu
mörkin fyrir þá og margir reikna með
að Swansea eigi eftir að gera stóra
hluti í vetur.
Sheffíeld liðin United og
Wednesday byrjuðu bæði mjög vel í
3. deildinni en þetta er í fyrsta skipti í
sögunni að bæði liðin leika í 3.
deildinni og ótrúlegt er annað en
annað hvort liðanna fari upp í 2.
deildina.
Hinum nýliðunum í 1. deildinni,
Crystal Palace og Stoke, gekk öllu
betur í leikjum sínum á laugardag.
Palace ferðaðíst til Manchester og lék
þar við City, sem tefldi fram
gerbreyttu liði frá síðasta keppnis-
tímabili. Leikmenn City náðu illa
saman og leikmenn Palace tóku enga
áhættu. Afleiðingin varð að sjálf-
sögðu sú að ekkert kom út úr leikn-
um og var hann leiðinlegur á að horfa
fyrir hina 40.680 áhorfendur sem
borguðu sig inn á Maine Roád.
Stoke fékk óskabyrjun gegn
Coventry — komst í 3—0 en var
síðan heppið að halda báðum
stigunum. Það var Viv Busby sem
kom Stoke yfir á 35. mín. með skalla-
marki eftir undirbúning bak-
varðarins. Svertinginn Garth Crooks
skoraði síðan tvö mörk með stuttu
millibili í upphafí síðari hálfleiksins
og Stoke stefndi í öruggan sigur.
Barry Powell minnkaði muninn fyrir
Coventry úr vítaspyrnu um miðjan
hálfleikinn og 5 mín. síðar skoraði
hann aftur með skalla og þá bókstaf-
lega hrundi leikur Stoke. Hræðsla og
taugaveiklun gerðu vart við sig í
liðinu. Allt fór í baklás og minnstu
munaði að Coventry tækist að jafna.
Stoke tókst þó að halda út til leiks-
loka, og verða þessi tvö stig vafalítið
gott veganesti i hinni hörðu baráttu
1. deildar i vetur.
Bolton og Aston Villa aenuu
stigunum í jöfnum leik á Burnden
Park i Bolton. Neil Whatmore
skoraði fyrir Bolton en Gordon
Cowans fyrir Villa.
-SSv.