Dagblaðið - 25.08.1979, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 1979.
Bitreiðaeigendíur athugið!
Látið okkur annast allar almennar viðgerðir ásamt'
Vélastillingum,
Réttingum,
Sprautun.
G.P. Bifreiðavorkstæði S.F.
Skemmuvog 12 - Köpavogi
Slmi 72730
Ritari
óskast til starfa. Umsóknir sendist við-
skiptaráðuneytinu fyrir 1. september 1979.
Sími 25000.
Kvartmílukeppni
Kvartmíluklúbburinn heldur kvartmílukeppni á
brautinni í Kapelluhrauni laugardaginn 1. sept.
eða sunnudaginn 2. sept.
Væntanlegir keppendur eru beðnir að mæta á
fund í Brautarholti 20, þriðju hæð (fyrir ofan
Þórscafé) næstkomandi þriðjudag kl. 21.00.
Sfjómin.
JOHN THAUIf and DENNIS VUATERM AN
__DENHOLM ELLIOTT -JKEN HUTOHISON
LEWIS FIANDER - ANNA GAEL--
Miklar breytingar í
átvarpi—nánast
engar í sjónvarpinu
— segirOlafur R. Einarsson, formaður útvarpsráðs, um vetrardagskrána
„Komið hafa fram hugmyndir um
allverulegar breytingar á útvarpsefni í
vetur og þá með sérstakri hliðsjón af
hlustendakönnun Hagvangs,” sagði
Ólafur R. Einarsson, formaður út-
varpsráðs, í samtali við DB eftir fund
ráðsins í gær.
„Ákveðið hefur verið að halda sér-
stakan fund með starfsfólki tónlistar-
deildarinnar og verða þar ræddar
hugsanlegar breytingar á tónlistarflutn-
ingi útvarps.
Ennfremur hefur verið rætt að draga
úr skilum vetrar- og sumardagskrár.
Breytingar hafa verið ræddar um
fréttaflutning í útvarpi, fréttatímarnir
eru staðnaðir og það vantar þetta
„life” í flutninginn. Hugmyndir eru
uppi um að fréttamenn lesi fréttir sínar
meira sjálfir en ekki afmarka fréttatím-
ana með fréttum og fréttaaukum. En
þetta er nánast órætt mál ennþá.”
— Hvernig er fjárhagur útvarpsins
með tilliti til vetrardagskrár?
„Við fengum núna 20% hækkun á
afnotagjöldin, sem þýðir það að við
höfum meiri fjárhag, þó sú hækkun
renni svo að segja beint í reksturinn.”
— Er von á breytingum á fréttatíma
sjónvarpsins?
„Það hafa verið ræddár breytingar á
fréttatima sjónvarpsins en til þess að
svo geti orðið, þarf fjóra nýja frétta-
merin. Starfsmenn fréttadeildar sjón-
varps eru nú þrír á vakt og þeir eru
beinlínis að sligast. En það er fjárveit-
Réttið upp hendur, þeir sem eru sammála,” sagði Olafur R. Einarsson, formaður út-
varpsráðs, á fundinum I gær. Enginn var á móti svo málið var samþykkt.
DB-mynd Bj.Bj.
ingavaldið sem heimilar ráðningu á
fleiri starfsmönnum. Við eigum mjög
erfitt um vik að breyta hlutunum,
menn eru svo íhaldssamir og engu má
breyta.
Hinrik Bjarnason, forstöðumaður
lista- og skemmtideildar sjónvarpsins,
er með tillögur um nýja útfærslu á
skemmtiþáttum og spurningaþætti, en
bezt væri að tala við hann um það mál.
Akveðið hefur verið að endurskoða
íþróttaþætti sjónvarpsins allmikið og
að umræðuþættir haldi áfram annan
hvem þriðjudag á móti Umheiminum.
Tveir nýir islenzkir þættir hefja göngu
sína í sjónvarpi í haust, annar um
veðurfræði og er það Markús Einars-
son sem sér um þann þátt og hinn um
íslenzkt mál. Eyvindur Eiríksson og
Helgi J. Halldórsson verða með þann
þátt.
Ennþá er sjónvarpsdagskráin laus í
reipunum og aðeins komnar frumhug-
myndir um vetrardagskrá. Annars má
segja að sjónvarpsdagskráin verði í
hefðbundnum stíl og lítilla breytinga að
vænta í þeim efnum,” sagði Ólafur að
lokum. -ELA
Dansflokkur JSB sýnir dans um Dracula greifa á siðasta hæfileikakvöldi á Sögu.
DB-mynd Ragnar Th.
Attundi riðill hænieikakeppni Dag-
blaðsins og Hljómsveitar Birgis Gunn-
laugssonar verður liflegur ef að líkum
lætur. Þrír hæfiieikamenn höfðu skráð
sig til keppninnar. Einn þeirra féll út á
síðustu stundu, en eftir standa þeir Vii-
hjálmur Óskarsson, sem ætlar að fara
með gamanmál og eftirhermur, og
Finnbogi Pétursson, sem mætir ásamt
félaga sínum og ætlar að spila og
sýngja fyrir gesti Súlnasalarins.
Sigurvegarinn frá síðasta sunnudags-
kvöldi, Guðbjörn Elísson, mætir einnig
á sviðið og tekur nokkur lög. Einnig
gæti hugsazt að einhverjir fyrri sigur-
vegarar líti við.
Hafi Dansflokkur JSB einhvern tíma
slegið í gegn, þá sló hann sjálfum sér
eftirminnilega við á sunnudagskvöldið
var. Þá flutti flokkurinn tvo dansa eða
öllu heldur leikþætti — annan tileink-
aðan djáknanum á Myrká og Garúnu
hans, hinn er til heiðurs kempunni
Dracula. Atriðin heppnuðust svo vel að
ákveðið var að endurtaka þau annað
kvöld. Dansarnir, sem sýna átti þá,
verða geymdir í eina viku. Það atriði er
í diskóstíl og segir frá danskeppni og
öllu því tilstandi sem fylgir undirbún-
ingi slíkrar keppni.
Nokkuð er nú tekið að síga á seinni
hluta hæfileikakeppninnar. Fjórir
riðlar eru eftir. Sigurvegarar sumarsins
spreyta sig síðan allir á lokakvöldinu,
sem að sjálfsögðu verður haldið að
Hótel Sögu, 23. september næstkom-
andi. Sala aðgöngumiða að lokakeppn-
inni hefst í septemberbyrjun.
Vegna forfalla í hópnum, sem hafði
látið skrá sig í hæfileikakeppnina,
vantar ennþá þrjá keppendur. Þeir
sem áhuga hafa á að vera með geta
látið skrá sig hjá Birgi Gunnlaugssyni
stjórnanda. Hann gefur jafnframt allar
frekari upplýsingar um hæfileikarallið í
síma77616á kvöldin.
Þá er ekki annað eftir en að tryggja
sér borð á hæfileikarallinu annað
kvöld . . . Jú, annars. Ekki má gleyma
kynni kvöldsins. Hann er úr blaða-
manna- og skemmtikraftastéttinni og
heitir Árni Johnsen. -ÁT
Hæfileikakeppni Dagblaðsins og Hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar:
TÓNUST OG GAMANMÁL Á
DAEICTAI IIU Dansflokkur JSBendursýnir
DUEIO I ULUITI draugadansasína
15 TIL 20 LODNU-
BÁTAR LIGGJA UNDIR
GRUN UM ÞJÓFSTART
Hafnarbíó frumsýnir
SWEENEY 2
Framhald af hinni vinsælu mynd Sweeney sem viö
sýndum fyrir nokkru.
Sýndkl. 5,7,9 og 11.15
Bönnuð innan 16 ára.
skipstjórarnir verða yffjirheyrðir er þeir koma næst að landi
„Skipstjórar 15 til 20 loðnubáta
verða kallaðir fyrir vegna gruns um að
þeir hafi byrjað veiðar fyrir miðnætti á
mánudag sl. en þá máttu veiðarnar
hefjast,” sagði Jón B. Jónasson, deild-
arstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, í
viðtali við DB í gær.
Nokkrir skipstjórar, sem voru á mið-
unum um þetta leyti, hafa kært þessa
15 til 20 skipstjóra. Auk þess þóttu þeir
grunsamlega snemma tilkynna loðnu-
nefnd um fullfermi og furðu snemma
vera komnir til hafnar til löndunar.
Skipstjórarnir verða kallaðir fyrir
eftir hendinni, eða þegar þeir koma til
löndunar víðsvegar um landið, og
teknar af þeim skýrslur. Á grúndvelli
þeirra skýrslna verður svo tekin
ákvörðun um hvort þeir verða ákærðir
fyrir brot á landhelgislögum eða ekki.
Miðað við að meðalgóður loðnubát-
ur fái fullfermi í einu kasti, tekur kastið
og hleðsla bátsins vart innan við þrjá
klukkutíma, en þeir fyrstu byrjuðu að
tilkynna um afla upp úr klukkan 2. Það
er liðiega tveim klukkutimum eftir að
veiðaiuar máttu hefjast. -GS