Dagblaðið - 24.09.1979, Síða 1
c*
5. ÁRG. —MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979 — 208. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11.—AÐALSÍMl 27022.
Hæfileikakeppnin
á úrslitakvöldinu
Páll Jóhanncsson nemandi Sóngskólans I Reykjavík, sigraði á úrslitakvöldi Hæfileikakeppninnar í gærkvöldi. Sigurlaunin
eru sólarlandafcrð að verðmæti 240 þúsund krónur auk 100 þúsund króna. DB-mynd: RTh. Sig.
Páll Jóhannesson nemandi Söng-
skólans í Reykjavík sigraði glæsilegaá
úrslitakvöldi Hæfileikakeppni Dag-
blaðsins og hljómsveitar Birgis
Gunnlaugssonar í gærkvöldi á Hótel
Sögu. Páll sigraði áður með yfir-
burðum í tíunda riðli keppninnar. Páll
söng þrjú lög við undirleik Björgvins
Þórs Valdimarssonar, öll íslenzk.
Númer tvö urðu þær Evelyn
Adolpsdóttir og Kolbrún Sveinbjörns-
dóttir frá Grindavík. Þærsungu nokkr-
ar gamanvísur. í þriðja sæti urðu síðan
félagarnir Finnbogi Pétursson og
Guðgeir Gunnarsson. Þeir fluttu og
sungu frumsamin lög, þar á meðal lag
við Passíusálm nr. 51.
•Fjórða sætið hlaut Elsa Waage sem
söng og lék með á gitar. Fimmta sætið
hlaut Þór Ostensen sem lék nokkur lög
á harmóniku. Sjötta sætið hlaut Geir
Björnsson frá Grindavík, hann söng
eigin lög og lék með á gítar. í sjöunda
sæti var Guðbjörn Elísson. Hann söng
eigin lög og lék með á gítar. Áttunda
sætið hlaut Guðbjörg R. Tryggvadóttir.
sem söng nokkur lög og lék með á
gitar. í níunda sæti varð Guðrún
Jacobsen sem söng nokkur þekkt lög
og í tíunda sætinu var Guðlaug Helga
Ingadóttir sem einnig söng nokkur lög.
Dómarar í keppninni voru Árni
Johnsen, Guðrún Á. Simonar og Ómar
Ragnarsson. Keppnin var hörð og
spennandi og átti fólk í salnum erfitt
með að gera upp við sig hverjum skyldi
greiða atkvæði.
Dansflokkur JSB kom fram og
sýndi af einstakri snilld Drakúla-
dansinn eftir kennara og stjórnanda
flokksins, Báru Magnúsdóttur.
Fullt hús var á Sögu og góð
stemmning enda allir endurnærðir eftir
frábæra máltíð sem bar nafnið
Medaillons d’agneau et porc á L’Oscar.
í eftirmat var Poires Harlekin.
Drykkjarföng með matnum voru Cotes
du Rhone og Mattheus. Kynmr
kvöldsins var Helgi Pétursson og
hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar lék
fyrir dansi til kl. 2 e.m.
-ELA.
Aumingja stelpumar
— sjá leikdóm Ólaf s Jónssonar á f ramsýningu
Leikfélags Reykjavíkur á „Kvartett,> — bls. 13
Sportbátaeigendur
öflugir á ísafirði
— sja
bls.6
......... *
Sovétmenn
mótmæltu
nýju skák-
reglunum
Bokassa
senduraftur
til Afríku
— sjá erl. fréttir
^^ls^8og9^_^
Háttverð
greitt fyrir
Barbie
dúkkumar
— sjá bls. 12
Geriengar
athugasemdir
— segirAlbert um
frétt DB um ákveðið
framboð hanstil
forseta—sjábls.32
Stokkið á
mótorhjólum
— úrslit f mótocrosskeppni DB