Dagblaðið - 24.09.1979, Page 3
DAGBLAÐIÐ.MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979.
3
FYRIR HVERJA ER NÝI
VIÐSKIPTATÍMIBANKANNA?
Brcfrilari set>ist ekki komast i bankana á sinum vinnutima og telur art svo sé um fleiri. DB-mynd Hördur.
1623—9259 skrifar:
Ég sá um daginn í Dagblaðinu að
Neytendasamtökunum hafa engar
kvartanir borizt vegna breytts
viðskiptatíma bankanna. Þetta þykir
mér furðulegt því ég hefði haldið að
fyrir flestallan almenning væri þessi
nýi tími svo gjörómögulegur að ekki
tæki neinu tali. Með þessu bréfi vil ég
hvetja fólk til þess að bera fram
kvartanir við samtökin og þá verður
kannski eitthvað gert.
í þessu sambandi er mér spurn
hvernig þessi nýi tími er eiginlega
hugsaður. Hvaða vinnandi maður
getur komizt í banka á þeim tima
sem hann er opinn? Ekki ég og sjálf-
sagt geta margir sagt hið sama. Æ
meiri þjónusta fer orðið í gegnum
bankana, laun flestra eru greidd í á-
visunum, allir reikningar eru orðnir í
girókerfi bankanna og svo mætti
lengi telja.
Nú eru fyrirlæki farin að
leika þann leik að greiða ekki út laun
fyrr en eftir kl. 4 þann dag sem þau
eiga að greiða þau. Þelta þýðir að
fólkið fær í raun ekki útborgað fyrr
l.yftarar frá Kimskip valda ofl hættu
og vandræðum í umferðinni eftir því
sem Jón Jónsson scgir.
l)B-mvnd Hörður.
Eimskips-
lyftarar
skapa
hættu
Jón Jónsson hringdi:
Á hverjum morgni þegar umferðin
er mest er lyfturum ekið frá höfninni
i miðbænum og inn i Sundahöfn.
Lyftararnir, sem eru frá Eimskip,
aka mjög hægt og skapa með þvi
mikla hættu i umferðinni. Morgun
eftir morgun má sjá á eftir þeim lang-
ar bilalestir og svo einstaka bíll er
teflir á tvær hætlur með því að reyna
að komast fram úr lyftaranum.
Nú langar mig að spyrja að þvi
hver ábyrgur sé ef slys verða við
slíkar aðstæður. Er það maðurinn á
lyftaranum. sem i raun veldur
hættunni, eða bílstjórinn sem ók
fram úr honum?
Áfengis-
flöskuna
dýrari
Jón Árnason á Akurcyri hringdi:
Nýlega var hækkað verð á gos-
drykkjum og gosdrykkjaflöskum. Nú
langar mig að koma á framfæri þeirri
áskorun að Áfengis- og tóbaks-
verzlun rikisins hækki einnig verðið á
sínum flöskum, svo fólk nenni að
skila þeim inn. Það er miklu betra að
borga eitthvað fyrir glerin en að sjá
þau brotin um allar götur.
en daginn eftir, er það getur komizl í
bankann til þess að leysa ú^
ávísunina. Beri fyrsta dag mánaðar
upp á föstudag fær fólkið þvi ekki i
raun borgað fyrr en á mánudag.
Allir vixlar þess og reikningar gela
hins vegar verið dagsettir þann I.,
svo fólk lendif i vanda.
Mér er einnig spurn hvort það sé
af sparnaðarástæðum sem
bankarnir minnka nú þjónustu sina.
Ef svo er finnst mér það furðulegt þvi
öll viðskipti við banka verða æ
dýrari. Ég hefði lika haldið að ekki
skipti niáli peningalega séð hvort
opið er frá 9.15 til 16 eða l'rá t.d. 13
til 19. Væri ekki hægt að hafa slíka
skiptingu eins og verið hefur?
Hvað sem öðru líður finnst mér að
eitthvað þurfi aðgera i málinu og það
strax. Neytendasamtökin geta litið á
þetta bréf mitt sent sina fyrslu
kvörtun og eiga ugglaust von á
fleirum.
Spurning
dagsins
Hvaða vikudagur
finnst þér leiðin-
legastur?
Guðmundur Jósepsson velsljon:
Hvaða vikudagur, ætli það sé ekki
mánudagur. Já, þeir eru alltaf verstir
en ég kann samt cnga sérstaka skýringu
á þvi. Kannski vcgna þess að þá hefur
maður haft það svogott yfir helgina.
Arnþrúður l.ilja Þorhjörnsdóttir nemi:
Það er alvcg hiklaust mánudagur, þá er
öll vikan cl'tir.
I.ilja Sveinsdóttir húsmóðir: Hjálpi
mér, hvaða vikudagur. Ég held að þeir
séu allir jafn ágætir.
Gylfi Sigurgeirsson skrifstofumaður:
Það er mánudagur. Ætli það sé ekki
vegna þess að þá cr maður svo slappur
cftir hclgina.
,
4
Pétur Cluðjónsson rakari: Ég vil nú
bara svara þvi þannig, að allir dagar
cru jafn skemmtilcgir og hamingju-
samir.
Hanna Vilhjálmsdóttir 14 ára: Það
hcld ég að sé mánudagur, ég vcit ckki
hvers vcgna.