Dagblaðið - 24.09.1979, Qupperneq 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979.
. V. uu...__________________________________________ __________________________„ i
árabil. Er taliö að hátt vcrð á gistineu, mat og áfcngi á vcitingastöðum cigi hér mesta
sökina.
Rey kjavf k—Haf narffjörður
Börn, unglingar og fullorönir.
Nýi dansskólinn
Innritun í alla flokka stendur yfir.
O'
Sími 52996 i
KL. 1 til kl. 7.,
Spor í rétta átt m
HJA
STDOG
NATIONAI.
SÖLUSKATTUR
Viðurlög falla á söluskatt fyrir ágústmánuð
1979, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi
25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan eru viðurlögin 4,5% til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga.
Fjármálaráðuneytið, 18. september 1979.
Innritun í almenna flokka fer fram kl. 17—
22 mánudaginn 24. sept.
NÁMSFLOKKAR REYKJAVÍKUR
IÐNAÐARHÚSNÆÐI
á bezta stað i Kópavogi, alls um 1200 ferm, þar af 100 fern
með 5 metra lofthæð. Selst allt í einu eða í hlutum.
FASTEIG N ASALAN
Laugavegi 18A — Sími 17374.
Heimasimar sölumanna 42618 (Sigurður) og 31693 (Gunnar).
Bandaríkin:
Ford hugleiöir
forsetaframboð
Gerald Ford fyrrum Bandaríkja-
forseti segist munu hugleiða mjög
vandlega þær horfur sem hann er
talinn hafa til að hljóta útnefningu
sem forsetaefni Repúblikaflokksins
þar vestra. Forsetakosningarnar fara
fram á næsta ári.
Vitað er að stuðningsmenn Fords i
Washington vinna nú að skýrslu um
möguleika hans til að ná kosningu,
að því er blaðið Washington Post
segir í morgun. Haft er eftir forset-
anum fyrrverandi að hann teldi sig
eiga fornum vinum sinum og
stuðningsmönnum svo mikið upp að
inna, að hann mundi kanna
skoðanir þeirra og niðurstöður mjög
vandlega. Einnig var haft eftir Ford í
blaðinu að hann yrði nú fyrir meiri
og meiri þrýstingi um að taka nú þátt
i keppninni um útnefningu sem for-
setaefni Repúblikana.
Ford var valinn varaforsed
Nixons af þinginu i Washington eftir
að Spiro Agnew varð að segja af sér
fyrir svik og meinsæri. Hann varð
síðan forseti eftir að Nixon varð að
segja af sér vegna Watergatemálsins
ogafleiðinga þess.
Ford er eini forsetinn og varafor-
setinn sem setið hefur i embætti án
þess að vera kjörinn til þess i þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Hann tapaði
naumlega í forsetakosninguum árið
1976 fyrir Jimmy Carter núverandi
Bandaríkjaforseta.
Þcssi drcngur er einn þcirra milljóna, sem þjáist af hungri og næringarskorti í heiminum. Þaö sést á uppblásnum maganum
og aó hann grípur allt sem hugsanlcga gæti verið ætilcgt. Nú cr spáð mikilli hungursncyð í Kampútscu á næstunni ef ekki
verður komið þar til hjálpar.
Millisvæðamótið í Rio de Janeiro:
Tafír vegna mót-
mæ/a Sovétmanna
Petrosjan frá Sovétríkjunum gerði
jafntefli við Smejkal frá Tékkó-
slóvakíu, Micking frá Brasilíu gerði
jafnt við Ivkov frá Júgóslavíu. Bala-
shov frá Sovétríkjunum sigraði Sax frá
Ungverjalandi. Luis Bronstein sigraði
Simoen Kagan frá ísrael, Velemirovic
sigraði Shamkovich frá Bandarikjun-
um. Timman frá Hollandi áóljósa bið-
skák við Sunye frá Brasilíu og Hubner
frá Vestur-Þýzkalandi virðist munu í
það minnsta ná jöfnu gegn Jean Her-
bert frá Kanada. Vaganian frá Sovét-
ríkjunum hefur peð yfir í hróksenda-
tafli gegn Harandi frá íran.
Millisvæðamótið i Rio de Janeiro í
Argentínu hófst i gær eftir eins dags töf
sem stafaði af mótmælum Sovétmanna
við keppnisreglunum. Sú nýbreytni var
í þeim, að hver skákmeistari má ekki
tefla við nema t mesta lagi einn landa
sinn i sex síðustu umferðum mótsins.
Þessu vildu Sovétmenn ekki una þar
sem þetta hefði táknað að þeir yrðu að
leika innbyrðis í fyrstu þrem umferðun-
um.
Ekki er talið ólíklegt að ástæðan
fyrir mótmælum Sovétmannanna hafi
verið sú að Tal fyrrum heimsmeistari
og landi þeirra vann sigur á fjórum,
landa sinna í millisvæðamótinu í Riga.
Þrátt fyrir mótmæli Sovétmanna
tókst að láta fyrstu umferðina fara
fram degi á eftir áætlun. Mun Harry
Golombek, aðaldómarinn á mótinu i
Rio de Janeiro, hafa látið eitthvað
undan kröfum Sovétmannanna þó ekki
sé það ljóst í fréttaskeytum.
Portisch hinn landflótta stórmeistari
frá Ungverjalandi varð fyrstur til að
tapa á mótinu. Hann hóf þó skák sína
mjög vel en mistókst er hann fórnaði
hrók fyrir biskup og lauk þvi svo að
Portisch hafði tveim peðum minna en
andstæðingur hans Eugene Torre frá
Filippseyjum. Var staðan þá gjörtöpuð
fyrir Portisch.