Dagblaðið - 24.09.1979, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979.
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Sigurður Haraldsson (hálfhulinn af marksúlunni) missti knöttinn frá scr eftir fyrirgjöf Kristjáns Olgeirssonar i fvrri hálfleikn-
um. Sveinbjörn kom aðvifandi og spyrnti strax að marki en varnarmönnum tókst að bjarga i horn.
-DB-mynd Árni Páll.
Snilldarmarkvarzla
Bjarna Sigurðssonar
—hélt Skagamönnum á floti gegn Val í leiknum um UEFA sætið
Níunda mark
Péturs í gær
þegar Feyenoord vann Excelsior 2—0
Þrátt fyrir að veðurguðirnir
miskunnuðu sig yfir leikmenn Akra-
ness og Vals á Laugardalsvellinum í
gær og það hætti að rigna og gerði
bezta veður á köflum tókst hvorugu
liðinu að færa sér það í nyt. Ekki einu
sinni þótt bætt væri 2x 15 mínútum
við venjulegan leiktima. Inn vildi
knötturinn ekki og það var einkum og
sér i lagi Bjarni nokkur Sigurðsson —
stórkostlegur markvörður þeirra
Skagamanna — sem kom í veg fyrir að
strákamir á markatöflunni þyrftu að
hreyfa sig. Þrívegis bjargaði Bjami
hreint glæsilega þegar mark virtist
óumflýjanlegt hjá Valsmönnum. Akur-
nesingar geta þvi óhikað þakkað hon-
um fyrir öðrum fremur að þeir fá ann-
að tækifæri til þess að tryggja sér sæti i
UEFA-keppninni — nokkuð sem allir
voru fyrir löngu búnir að gefa upp á
bátínn skömmu fyrir mótslok. Niður-
staða leiksins varð því markaiaust jafn-
tefli I leik, sem var oft á tiðum bráð-
fjörugur en allan timann óþarflega
grófur.
Fyrsta tækifæri leiksins féll Skaga-
mönnum i skaut strax á 5. minútu.
Árni Sveinsson nikkaði þá knettinum
út i vitateiginn til Kristjáns Olgeirs-
sonar, sem var i upplögðu færi. Skot
hans fór hins vegar himinhátt yl'ir
markið. Skagamenn virtust heldur
friskari framan af og skömmu siðar
átti Árni hörkuskot utan af velli eftir
sendingu Sigþórs en Sigurður Haralds-
son var vel á verði i markinu.
Atli Eðvaldsson varð fyrstur til þess
að kanna eldsnögg viðbrögð Bjarna í
markinu hjá Akurnesingum þegar hann
á 15. minútu skaut hörkuskoti af stuttu
færi. Bjarni varði meistaralega vel i
horn. Upp úr hornspyrnunni skapaðist
mikil hætta við mark ÍA og í kjölfarið
fylgdi einhver bezti kafli Vals í leikn-
um. Leikur liðsins var mjög yfirveg-
aður — skiptingar tíðar — og þeir
notuðu sér óspart veikleika Jóhannesar
Guðjónssonar i stöðu vinstri bak-
varðar. Það var ósjaldan sem þeir
þeystu upp hægri kantinn og skildu
Jóhannes eftir. Næsta stundar-
fjórðunginn áttu Valsmenn leikinn eins
og hann lagði sig en tókst ekki að skapa
sér nein verulega hættuleg færi. Þó
munaði mjóu tvívegis við mark Skaga-
manna eftir varnarmistök.
Svipað var uppi á teningnum í siðari
hálfleik og áhorfendur voru hálft
í hvoru að búast við því að Valur
skoraði þá og þegar en aldrei kom neitt
mark. Ekki munaði hins vegar miklu
að Sveinbirni Hákonarsyni, sem kom
inn á i hálfleik fyrir Árna Sveinsson,
tækist að færa Skagamönnum forystu
á 53. minútu. Kristján Olgeirsson gaf
vel fyrir markið og Sigurður Haralds-
son missti knöttinn klaufalega frá sér.
Sveinbjöm spyrnti þegar að marki en
varnarmönnum tókst að bjarga.
Síðustu 20 minúturnar i venjulegum
leiktima voru býsna fjörugar og gekk
þá knötturinn marka á milli en Vals-
menn áttu hættulegri færi. Á 71.
mínútu varði Bjarni mjög vel lúmskan
skalla Inga Björns og rétt á eftir komst
Atli einn t gegn en var gróflega
brugðið. Þar átti sá brotlegi að fá að
lita gula spjaldið en slakur dómari
leiksins, Arnþór Óskarsson, var lítið
fyrir það að veifa gulu spjöldunum að
þessu sinni þó oft hafi verið ástæða til.
Sveinbjörn fékk laglega stungu inn
fyrir skömmu síðar en mistókst illa og á
83. mínútu kom fyrsta sýning Bjarna i
markinu. Guðmundur Þorbjörnsson
renndi laglega innfyrir vörn Skaga-
manna til Alberts sem lét þegar heljar-
mikið þrumuskot ríða af af ekki meira
en 6—7 metra færi. Bjarni snaraði sér
niður eins og tigur og blokkeraði skot
hans á slórglæsilegan hátt. Rétt á eftir
lék Óli Ðan á þrjá varnarmenn ÍA —
ekki i fyrsta skipti sem hann lék það —
og gaf siðan á Inga Björn, sem var í
svipuðu færí og Albert áður. Bjarni tók
enn fram sparihanzkana og varði af
snilld.
Þegar aðeins tvær minútur voru til
leiksloka fékk Sigurður Halldórsson
gullið tækifæri til þess að gera út um
leikinn. Sveinbjörn lék mjög laglega á
tvo Valsmenn og lék upp með endalínu.
Gaf siðan knöttinn fyrir markið á
Sigurð sem var i dauðafæri. Skot hans
var hins vegar misheppnað úr nokkuð
erfiðri aðstöðu og fór yfir markið. Þar
með fór siðasta tækifærið til að gera út
um leikinn á venjulegum leiktíma.
Það var augljóst í framlengingunni
að leikmenn voru flestir búnir að fá
nóg eftir 90 minútur og framlengingin
var ákaflega tækifærasnauð. Aðeins
einu sinni skapaðist verulega hætta við
annað hvort markið og að henni
afstaöinni gátu varnarmenn lA enn
klappað Bjarna á bakið fyrir frábæra
frammistöðu. Ingi Björn lék þá á
varnarmann inn í vítateig og renndi á
Jón Einarsson, sem var á markteig.
Hann skaut eldsnöggu skoti að
markinu en að vanda sá Bjarni við
honum, sem og öðrum er reyndu að
skora og varði glæsilega. Þetta var á
115. mínútu og aðeins 5 mín. eftir af
framlengingunni. Það sem eftir liföi
gerðist lítt markvert og liðin verða að
reyna með sér að nýju.
Hjá Val var Óli Dan mjög góður og
lék sinn bezta leik, sem undirritaður
hefur séð i sumar. Vörn Valsmanna var
traust með þá Dýra og Vilhjálm
Kjartansson sem beztu menn. Hörður
var mjög sprækur á miðjunni en átti að
vanda nokkuð erfitt með að hemja
skapsitt.
Af Skagamönnum ber fyrst að
nefna Bjarna i markinu. Þá félagana
Sigurð Halldórsson og Jón Gunnlaugs-
son, sem báðir áttu lýtalítinn leik i
vörninni. Jón Alfreösson og Kristján
reyndu vel á miðjunni en framlínan var
ekki beysin. Sigþór i slakasta lagi og
fékk engan stuðning. Sveinbjörn, sem
kom inn á í hálfleik, átti ágætis leik en
á í vandræðum með skapsitl.
„Þetta var svona þokkalegur leikur
hjá okkur,” sagði Pétur Pétursson er
við spjölluðum við hann í Rotterdam i
morgun. Feyenoord sigraði Excelsior i
gær 2-0 á heimavelli þess síðarnefnda.
„Mér tókst að skora fyrra marklð en
það síðara skoraði Budding fyrir
okkur. Við áttum að skora miklu fleiri
mörk, 6—7, hefðu ekki gefið óljósa
mynd af hlutunum. Við cigum að leika
gegn Ajax hér heima um næstu helgi og
það er þegar uppselt á leikinn.
Völlurinn rúmar 65—67.000 manns
þannig að það má búast við hörku-
stemmningu”.
Þrátt fyrir þennan góða sigur er
Feyenoord enn í 2. sæti — stigi á eftir
Ajax, sem sigraði Utrecht 3—2 á
heimavelli sinum í gær. Annars urðu
úrslitin i Hollandi á þessa leið:
Arnhem-Willem II 3—1
Deventer-Haarlem 2—1
Ajax-Utrecht 3—2'
NAC Breda-AZ '67 0—3
Escelsior-Feyenoord 0—2
Sparta-Roda I—0
Den Haag-Twente 2—1
Maastricht-PEC Zwollc 0—1
PSV-Nijmegen 1—0
Staða efstu liðanna er nú þessi:
Ajax 7 5 2 0 15—9 12
PSV 7 5 11 19—7 II
Feyenoord 7 4 3 0 14—6 11
Dcventer 7 5 0 2 17—8 10
AZ’67 7 5 0 2 16—8 10
Við inntum Pétur eftir þvi hvort
hann hefði eitthvað séð um það i
hollenzkum blöðum hvort Teitur væri
e.t.v. að fara til Roda Kerkrade. „Nei,
ekki get ég sagt að ég hafi séð neitt um
það i blöðunum en ég veit að forráða-
menn Excelsior vilja endilega ná i Árna
Sveinsson — hann myndi varla sjá eftir
því,” sagði Pétur og bað fyrir kveðjur
til allra.
- SSv.
Barcelona
tapaði
Barcelona sem kemur hingað til
lands í kvöld kl. 19, fyrir leikinn gegn
Skagamönnum i Evrópukeppni bikar-
hafa á Laugardalsvelli á miðvikudag,
tapaði um helgina fyrir Real Madrid i
Madrid 2—3 i 1. deildarkeppninni á
Spáni. Madrid er þar með í efsta sætinu
ásamt tveimur öðrum liðum að þremur
umferðum loknum. Úrslitin á Spáni
urðu annars sem hér segir:
Malaga-Sevilla 2—1
Burgos-Atletico Madrid 1—1
Sporting Gijon-Las Palmas 4—1
Hercules-Bilbao 2—1
Sociedad-Valencia 0—0
Salamanca-Vallecano 3—0
Real Madrid-Barcelona 3—2
Real Betis-Almeria 0—0
Espanol-Real Zaragoza 2—0
íslandsmet
Stefáns
ÍR-ingurinn ungi, Stefán Stefáns-
son, sem er aðeins 15 ára gamall, setti i
gær nýtt íslandsmet í tugþraut
unglinga, á móti sem fram fór i Laug-
ardalnum. Stefán hlaut alls 5333 stig i
þrautinni, sem er bærilegt hjá ekki
eldri pilti.