Dagblaðið - 24.09.1979, Page 21
DAGBLAÐID. MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979.__________21
TVÆR HUÐAR Á SAMA LEIKSTJÓRA
V
Þessa viku veröum
við með tilboðsverð á:
Barnaúlpum
dömublússum
herraskyrtum
velúr-samfestingum
náttkjólum
8.500.-
4.200.-
1.500-4.500.-
13.000.
4.600.-
Einnig mikið úrval af nærbuxum á 500 kr.
Nú er hægt að gera kjarakaup
Markaðshornið
Laugavegi 61
Opiðfrákl.1-6.
Þótt ótrúlcgt megi virðast er þetta ekki Elvis Preslev sjálfur heldur Kurt Russell i
hlutverki hans.
Háskólabíó og Austurbæ jarbíó sýna bæði
myndir eftir leikstjórann John Carpenter
Hoiti: Assauit on Precinct 13
LeBcstjóri og handritahöfundur: John Carpent-
er
Kvikmyndun: Douglas Knapp
Tónlist: John Carpenter
KKpping: John T. Change og John Carpenter
Gerfl í Bandaríkjunum 1976
Sýnmgarstaflur Háskólabió
Aðalhlutverk: Austin Stoker
Darwin Joston
Heiti: Elvis
Leikstjóri: John Carpenter
Handritahöfundur: Anthony Lawrenco
Kvikmyndun: Donald M. Morgan
Tónlist: Lög eftir ýmsa sungin af Ronnie
McDowell
Kiipping: Ron Moler
Gerfl í Bandarikjunum 1979
Sýningarstaflur Austurbœjarbió
AAalhlutverk: Kurt Russel
Sholley Winters
Season Hubley
Að dómi undirritaðs eru fáar
myndir eins leiðinlegar og þær sem
eru hvorki slæmar né góðar heldur
meðalmennskan uppmáluð. Þá er
hvorki hægt að hlæja að vitleysunni
og mistökunum eða dást að því sem
vel er gert. Þessar myndir líða
gegnum hugann og skilja ekkert eftir.
Enda er reyndin sú að þær leiðinleg-
ustu eru oft ekki síður minnisstæðar í
hugum áhorfenda en þær af betri
gerðinni þótt aðrar ástæður liggi þar
að baki.
Einn af þeim leikstjórum sem tekst
að fá meira út úr efniviði sínum en
gengur og gerist er John Carpenter.
Þessi ungi Bandaríkjamaður, sem
nam kvikmyndagerð við háskólann í
Suður-Kaliforníu, gerði þar sina
fyrstu mynd, DARK STAR, og þótti
strax mjög efnilegur. Þessi mynd var
sýnd í Laugarásbíói ekki alls fyrir
löngu en því miður við allt of litla að-
sókn. Nú vill svo skemmtilega til að
sýndar eru tvær mynda hans sam-
timis i kvikmyndahúsum borgarinn-
ar. Háskólabíó sýnir ÁRÁS Á LÖG-
REGLUSTÖÐ 13 sem hann gerði
eftir DARK STAR og Austurbæjar-
bíó sýnir þá nýjustu, ELVIS, sem var
reyndar sjónvarpsmynd í Bandaríkj-
unum en útbúin til sýningar í kvik-
myndahúsum Evrópu. Auk þess
hefur Carpenter gert eina aðra mynd,
HALLOWEEN, sem var gerð á milli
áðurnefndra mynda, fyrir utan
sjónvarpsmyndina Highrise. Hér er
því á ferðinni nokkuð sérstætt tæki-
færi til að fylgjast með þróun og
mótun ungs leikstjóra frá fyrstu
mynd hans (þ.e. ef viðkomandi sá
DARK STAR) til þeirra nýjustu.
Ólíkar myndir
að mörgu leyti
Árás á lögreglustöð 13 gerist í Los
Angeles og fjallar um árás borgar-
skæruliða á lögreglustöð sem ætlunin
er að leggja niður innan skamms.
Myndin snýst um þetta umsátur og
hvemig þeim fáu lögreglumönnum
ásamt föngum sem eru í stöðinni
tekst að verjast skæruliðunum
þangað til hjálp berst.
Hér nýtur Carpenter sin vel. Hann
á einkar auðvelt með að byggja upp
spennu og er yfirleitt feti á undan
áhorfendum i uppbyggingu sinni.
Samofið þessu er svo tónlist hans,
sem hann beitir mátulega mikið á
réttum augnablikum, og svo mjög
gott myndauga. Carpenter virðist
hafa séð mikið af eldri myndum eftir
kappa eins og Hitchcock og Hawks
þvi oft koma fram i myndinni klisjur
úr gömlum myndum þeirra. Aftur á
móti hefur Carpenter lagt litla vinnu i
persónusköpun ásamt ástæðunum að
baki árásarinnar og því virkar efni-
viðurinn hálf þunnur sé litið undir
yfirborðið.
Móðurást Elvis '
Myndin Elvis bér þess greinilega
merki að vera gerð fyrir sjónvarp.
Sjónvarpsmyndir eru yfirleitt hefð-
bundnar og oft litlausar og minni
natni er lögð í gerð þeirra, enda
unnar á styttri tima en venjulegar
kvikmyndir. Carpenter leikur sér litið
með kvikmyndatökuvélina þótt
stundum bregði fyrir dæmigerðum
vinnubrögðum frá eldri myndum
hans, sbr. hvemig Parker, umboðs-
maður Presley, var tengdur inn i at-
burðarásina.
EIvis er byggð upp sem heimildar-
mynd og fjallar um líf EIvis fram til
tónleika hans í Las Vegas 1969.
I upphafier Elvis sýndur senfóörugg-
ur unglingur. Eftir að hann er orðinn
frægur fá áhorfendur að fylgjast með
því hvernig eirðarleysi og leiðindi ná
tökum á honum og líf hans riðlast.
Carpenter hefur lagt mikla áherslu á
samband hans við móður sína og
dregur þetta samband fram hvaðeftir
annað í myndinni. Athyglisverðast er
þó hvernig Carpenter tengir texta lag-
anna hjá Presley við það sem er að
gerast á tjaldinu.
Tvífari Elvis
Carf>enter hefur pússað upp eina
helstu hetju Walt Disney kvikmynd-
anna, Kurt Russell, og er alveg ótrú-
legt hve likur Elvis hann er. Þeir sem
sáu myndina That’s the Way it is,
sem fjallaði um Las Vegas hljómleika
hins eina og sanna Presley og fylgd-
ust þar með sviðsframkomu hans sjá
hve líka framkomu Russel héfur
tamið sér. Atriðið úr Ed Sullivan
þættinum, þar sem myndatöku-
Kvik
myndir
BaldurHjaltason
mönnum var fyrirskipao að mynda
fyrir ofan beltisstað, er vel útfært og
eðlilegt, eins og Presley hefði verið
sjálfur þarna. Aftur á móti er myndin
væmin á nokkrum stöðum og eins
vantar í myndina betri skýringu á
þunglyndi Elvis og æðisköstum sem
ef til vill má rekja aftur í timánn.
Björt f ramtíð
Eins og fjölmargir kvikmynda-
gerðarmenn af yngri skólanum ólst
Carpenter upp í kvikmyndahúsum og
lærði ekki hvað síst iðn sína með þvi
að horfa á myndir gömlu meistar-
anna. Þannig hefur Carpenter ótrú-
lega mikið vald á myndmálinu, er
næmur fyrir myndhornum, mynd-
rænni túlkun, klippingu og á auðvelt
með að byggja upp mikla spennu.
Það sem vantar aftur á móti er dýpri
persónusköpun og heilsteyptara yfir-
bragð sem kemur eflaust með
auknum þroska og æfingu. Þannig
má segja að Carpenter eigi fram-
tíðina fyrir sér svo framarlega sem
hann geti tileinkað sér framangreinda
kosti. Það kemur i Ijós innan tíðar
því fljótlega verður frumsýnd nýjasta
mynd hans, FOG, en þangað til geta
áhorfendur kynnt sér Elvis og Árás-
ina á lögreglustöð 13, — tvær hliðar
á þessum unga leikstjóra.
handbækur
umæ
Ál - Samskeyting.
Leiöbeiningarrit um aöferöir til samskeytinga á áli.
Í ritinu er fjallaö um ýmsar aðferöir viö samskeytingu á
áli: Hnoöun, skrúfun, limingu og lóöningu. Einnig
ýmsar aöferöirviö álsuðu.
Ál-Suöuhandbók TIG - MIG.
Handbók um TIG - MIG suöu.
Hentugar kennslubækur fyrir iönnema og sem hand-
bækur fyrir málmiönaöarmenn og hönnuöi.
Verö hvorrar bókar er kr. 1000- Bækurnar fást iBóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar og Bókabúö Olivers
Steins.
SHon
luminiunn
AL
Samskeyting
skon luminium
Norræn samtök Áliónaöarins