Dagblaðið - 06.11.1979, Page 1
5. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979 - 245. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
Skattalækkun í f járlagafrumvarpi Sighvats:
RIKISSJOÐURIPLUS
ISEÐLABANKANUM
—ífyrsta skipti ífjögur ár
í lok októbermánaðar stóð hlaupa-
reikningur ríkissjóðs í Seðlabankan-
um rétt í fyrsta skipti í fjögur ár, að
sögn Sighvats Björgvinssonar, fjár-
málaráðherra. Hann sagði að þessi
staða hefði náðst með aðhaldsað-
gerðum í októbermánuði og þó eink-
um síðari helming mánaðarins.
„Við erum að endurskoða fjár-
lagafrumvarp Tómasar Árnasonar
meðal annars með það í huga að
lækka skatta í stað þess að hækka þá,
eins og frumvarpið gerði ráð fyrir.
Eðlilegast væri að almennar launa-
tekjur yrðu algerlega tekjuskattfrjáls-
ar.”
Það væri vel hugsandi að lækka
skatta á grundvelli óbreytts skatta-
kerfis. Þá koma og til greina breyt-
ingar á skattakerfinu, með áðurgreint
markmiðíhuga.
Sighvatur sagði, að ekki væri hægt
að gera slíkar breytingar með bráða-
birgðalögum. Slíkt hlytu að verða
mál til meðferðar á þingi.
Stefnt er að skattalækkun árið
1980 án þess að búnir verði til nýir
tekjustofnar. Skattalækkun verður
náð með aðhaldi í verðlagsmálum og
lækkuðum útgjöldum ríkisins.
Þannig eru fjármál ríkisins á þessu
ári tii meðferðar i ráðuneytinu.
Einnig hefur verið unnið að breyting-
um á fjárlagafrumvarpi sem lagt var
fram á Alþingi i haust, þar með talin
einnig lánsfjáráætlun og erlendar
lántökur.
- BS
Á spítölunum spörum við
og splæsum ekki krónu
sjáallt þettaSóknarlið
þærSiggu, Mögguog Jónu.
í drulluverkin dygði ein
þó deildin yrði ekki eins hrein
svo fækkum við aldrei of eða van
hvorki kratar né kommar né ihaldið.
Söngsveitin Kjarabót kyrjaði
niöurskurðarbrag viö góðar undir-
tektir á Hótel Sögu í gærkvöldi. Þar
var fundur starfsfólks á ríkisspítölun-
um um samdráttarhugmyndir hins
opinbera í spítalarekstrinum. Súlna-
salurinn var fullur út að dyrum og
stemmning góð.
Magnús H. Magnússon heilbrigðis-
ráðherra og Páll Sigurðsson ráðu-
neytisstjóri voru mættir á staðinn,
ásamt fleiri fyrirmönnum úr heil-
brigðiskerfinu.
„Við verðum að losa kontóristana
í Arnarhvoli við þráhyggjuna um
stöðugildin á spítölunum,” sagði
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, for-
maður Sóknar, úr ræðustóli. Hún og
aðrir fundarboðendur héldu þvi hik-
laust fram að ekkert veitti af því fólki
sem þegar starfaöi á spitölunum.
„Kontóristarnir i Arnarhvoii”
báru hönd fyrir höfuð sér og báðu
um að vera ekki skammaðir fyrir það
sem þingmenn bæru i raun ábyrgð á.
Þeir bentu á að við alþingi væri að
sakast, það skammtaði peningana.
„Við höfum alltaf óskað efiir fleiri
stöðuveitingum en fjármálayftrvöld
hafa viljað fallast á,” sögðu Páll
Sigurðsson og Magnús H. Magnús-
son.
- ARH
Sigrún Huld Þorgrimsdóttir, starfsmaður á KópavogshæU: „Heilbrigðis-
þjónustan er spurning um Ufandi fólk. Fjárfestingar er ekki hægt aó miða við há-
marksarð.”
InnfeUda myndin til vinstri sýnir Magnús H. Magnússon ráðherra og Pál
Sigurðsson ráðuneytisstjóra bera saman bækur sfnar.
Innfellda myndin til hægri sýnir Kjarabótina kyrja niðurskurðarbrag.
Fyrsta konan í embætti
sýslumannsá íslandi?
tvær konur meðal umsækjenda um Strandasýslu
Fyrsta konan, sem að líkindum Páll Þorsteinsson deUdarstjóri hjá
verður skipuð í sýslumannsembætti á ^ Gjaldheimtunni, Pétur Jónsson
íslandi, er Hjördis Björk Hákonar- Kjerúlf hdl., og Rikarður Másson,
dóttir, fulltrúi yfirborgardómarans i ftr. sýslumannsins í Snæfellsnes- og
Reykjavík. Hún verður skipuð sýslu- Hnappadalssýslu.
maður i Strandasýslu, samkvæmt til-
lögu dómsmálaráðherra, Vilmundar Hjördís Björk er 35 ára gömul.
Gylfasonar, ef af verður. Hun var^ lögfræðingur frá Háskóla
Islands 1971. Hún hefur stundað
Um embættið voru 6 framhaldsnám, meðal annars í réttar-
umsækjendur, þau Hjördís Kvaran heimspeki í Oxford. Undanfarin ár
Þorvaldsdóttir lögfræðingur, Hafþór hefur hún starfað sem fulltrúi við
Ingi Jónsson hdl., Hjördís Björk, ýmis dómaraembætti. -us.
Sjálfstæðisflokkurinn á Suðurlandi:
USTIEGGERTS
HAUKDAL KOMINN
Sjóreknarærá
Reykjavíkurfjörum
Fjórar ær fundust sjóreknar á
Reykjavíkurfjörum í gær. Fannst sú
fyrsta sjórekin i Laugarnestanga en
hinar þrjár siðar í gær í örfirisey.
Ekki tókst að finna hverjir voru eig-
endur ánna því i sumum tilfellum
voru „óljósar undirbenjar og hand-
brögð óljós” eins og Björn Sig-
urðsson lögregluvarðstjóri komst svo
fagmannlega að oröi i morgun. Eitt
markanna fannst ekki í markaskrá.
Talið er aö þcssar kindur hafi
rekið að fyrrgreindum stöðum,
hugsanlega t.d. úr Akurey eða
Engey, en við báðar þær eyjar eru
sultarhólmar, þar sem kindur getur
flætt. Einnig gæti verið að þær væru
lengra að komnar. -A.St.
Eggert Haukdal alþingismaður og
stuðningsmenn hans gengu frá lista
sinum í gærkvöld.
Listinn er þannig: 1. Eggert
Haukdal, 2. Siggeir Björnss. bóndi í
Holti, 3. Jón Þorgilsson sveitarstjóri,
Hellu, 4. Steinunn Pálsdóttir hús-
freyja, Vik í Mýrdal, 5. Hilmar
Jónasson, formaður Verkalýðs-
félagsins Rangæings, 6. Guðjóna
Friðriksdóttir húsfreyja, Eyrarlandi
Þykkvabæ, 7. Gunnat Oddsteins-
son bóndi Hvammi Skaftártungu. 8.
Arnar Halldórsson bóndi, Brekkum
Mýrdal, 9. Sigríður Theodóra
Sæmundsdóttir húsfreyja, Skarði
Landsveit, 10. Sigursteinn Steindórs-
son skrifstofumaður, Hvolsvelli, II.
Jón Thorarensen rafvirki, Hellu, 12.
Sigþór Sigurðsson símavarðstjóri,
Litla Hvammi Mýrdal.
-HH.