Dagblaðið - 06.11.1979, Síða 2

Dagblaðið - 06.11.1979, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979. Rógsherferð að sunnan Einingarfélagi á Akureyri skrifar: Ýms skuggalegustu öfl íslenzkra stjórnmála hafa nú tekið höndum saman gegn Jóni Sólnes alþingis- manni, en aðförinni stjórnar kennari úr Reykjavik, sem fyrir aldarfjórð- ungi var sendur hingað norður til að mannast, en skrifar nú nafnlausar níðgreinar í Morgunblaðið. í liði kennarans er skóþvengur mennta- og dómsmálaráðherrans í tunnunni ásamt hlaupagikki kommúnista á Suðurlandi, þokkaleg þrenning það, heilög þrenning, að minnsta kosti syndlaus þrenning fyrst hún kastar fyrsta steininum. Eitt sinn réðust svipuð öfl á núver- andi formann Framsóknarflokksins með grænar baunir fyrir augum, en síðan hefur vegur hans vaxið til helztu mannvirðinga á islandi og „Kennarinn að sunnan”. síðar réðust þessi sömu öfl að fráfar- andi formanni sama flokks og hröktuj hann í sæti virtasta stjórnmálafor-1 ingja landsins, sbr. skoðanakönnun' Dagblaðsins. Nú hafa myrkraöflin; þjappað okkur Norðlendingum saman um okkar langskeleggastai þingmann, Jón Sólnes, í næstu kosn-i ingum, því í blindri leit sinni aði hásæti í íslenzkum stjórnmálumj hefur kennarinn að sunnan óvart1 klifrað upp á eigin pólitískar líkbör- ur. Samkvæmt upplýsingum frá blaðamanni þá borga blöðin, sem þeir vinna hjá, símareikningana ■ þeirra, en kennarinn að sunnan hefur stundum setið á Alþingi í forföllum velgjörðarmanns síns, Jóns Sólness; og þá væntanlega notið sömu kjara og aðrir þingmenn, þar á meðal greiðslu fyrir einkasíma. Hafa skoðunarmenn í heilagri þrenningu nokkuð skoðað símareikninga kennarans, svona rétt til að hreinsa hann af öllum grun og leiðinda- slúðri? Það eru fleiri símar á íslandi en sími prestsins. Á meðan Jón Sólnes hefur þjónað Norðurlandi dyggilega hefur kennar- inn að sunnan setið álengdar til vara, og á meðan Jón Sólnes hefur lyft Grettistökum fyrir sína heimabyggð hefur kennarinn að sunnan setið álengdar við visnasöng og kaffi- þamb. Þessum sunnanpiltum er eins gott að vita það, að þeir sækja ekkert gull i greipar okkar stuðningsmanna Jóns Sólness því Norðlendingar munu slá skjaldborg um þingmann sinn og verja hann fyrir róginum að sunnan. Siðir tveir Halldór S. Stefánsson skrifar: Undarlegt veður er gert út af smá- máli. Jón G. Sólnes fyrrverandi alþingismaður eyðir dýrmætum tíma í rukkunaraðgerðir gagnvart ráðu- neytum í þvi augnamiði að fá tví- borgaða reikninga. Samkvæmt munnlegu samkomu- lagi, sem enginn er til frásagnar um nema dr. Gunnar Thoroddsen og lík- lega Jón sjálfur, var hinn síðarnefndi ráðinn formaður Kröflunefndar og framkvæmdastjóri virkjunar á 30% hærra kaupi en yfirverkfræðingur auk ómældrar eftirvinnu og er ég ekki með þessu að efast um menntun og hæfileika Jóns G. Sólness borið saman við yfirverkfræðing. Nú þegar upplýst er af Jóni sjálfum í þingræðu hversu treglega honum hafi gengið að fá reikninga sina tvíborgaða og hvílíkum tima hann hafi eytt í snattferðir milli ráðu- neyta, kemur óneitanlega upp í hugann, að jafn reglusamur og nákvæmur maður í allri bókfærslu hafi nú ekki látið undir höfuð leggjast að færa á yfirvinnureikning þessa hvimleiðu snatttúra að ógleymdum bílakostnaði. Svo mætti hugsa sér að hann hefði stundum til timasparnaðar lyft upp símtóli og hringt í ráðuneyti. Ber þá að hafa í huga að títtnefndur Jón G. Sólnes fær tvíborgaða símareikninga umyrðalaust svo að af því getur orðið nokkur hagnaður að hringja sem mest. Eins og fram kemur i þessum orðum mínum er ég siður en svo að áfellast Jón G. Sólnes. Hann hefur eins og svo margir aðrir notað hverja smugu og öll tiltæk ráð til að blóð- mjólka kerfið með alls konar heima- tilbúnum og ímynduðum reikning- um. Hann var bara svo óheppinn að farið var að rekast í smáupphæðum, sem honum nægði ekki að fá borgaðar einu sinni. Frekja og peningasýki hálauna- manna er í slíkri fjarlægð frá venju- legum hugsanagangi almennings að segja má að tvær ólíkar þjóðir búi í landinu. Kannski verður það næsta skref al- mennings að taka upp kynþátta- stefnu að nasistiskri fyrirmynd. Má vera að undirþjóðin fari að hatast svo ílandi Jón G. Sólnes, fyrrv. alþingismaður. við kerfisbraskarana að hún líti á þá sem gyðinga Hitlers-Þýzkalands. Væri þá stutt í það að sundur yrði slitinn friðurinn ef tvenn lög skulu gilda í landi. Hringið ísírna 27022 milli kl. 13 og 15, eða skrifið Fötluð böm eru fleiri á tslandi en menn yfirleitt gera sér grein fyrir. DB-mynd Ragnar Th. Málefni þroskaheftra: KIRKJAN BEITISÉR FYRIR LANDSSÖFNUN Skattgreiðandi skrifar: Talsverð umræða virðist vera að hefjast í fjölmiðlum um málefni fatl- aðra og þroskaheftra. Jafnréttis- ganga þessara þjóðfélagsþegna í fyrra vakti mikla athygli og var sem augu manna opnuðust fyrir því hversu illa við höfum búið að þessum meðbræðrum okkar. En smám saman dró úr þessum umræðum og aldrei komust þær á það stig að fram- kvæmdir kæmu í kjölfar þeirra. Nú er umræðan hafin á nýjan leik, e.t.v. fyrst og fremst vegna frábærs sjónvarpsþáttar um þroskaheft börn sem greinilega hefur hrist upp í land- anum. Hitt hefur líka haft sitt að segja að fatlaðir hafa nú eignazt skel- eggan talsmann þar sem er Magnús Kjartansson, fyrrv. ráðherra. En þingmenn virðast algjörlega hafa daufheyrzt við ábendingum þessa fyrrum „kollega” þeirra hvað sem svo verður. Það er mjög brýnt að umræðan nú verði ekki orðin tóm heldur fylgi eitt- hvað áþreifanlegt í kjölfarið. Ekki er við því að búast að eitthvert stórkost- legt frumkvæði komi fráalþingi enda óþarfi að allir hlutir eigi upphaf sitt þar. Mín tillaga er sú að Hjálpar- stofnun kirkjunnar fari af stað með landssöfnun á jólaföstu sem væri helguð baráttunni fyrir mannréttind- um fatlaðra og þroskaheftra. Landsmönnum er vandinn ljós nú og vilji er fyrir hendi hjá fólki að gera eitthvað í málunum. En einhver þarf að hafa frumkvæðið í málum sem þessum og þar held ég að Hjálpar- stofnun kirkjunnar sé rétti aðilinn. Ég held að kirkjan hafi vaxið að virð- ingu á síðustu árum vegna mikils starfs Hjálparstofnunarinnar og von- andi er að henni sé Ijóst að ákveðnir þjóðfélagsþegnar á íslandi búa alls ekki við full mannréttindi. Tími er kominn til að þar verði gerð á bragar- bót svo um muni. HUGLEIDING UM ÁFENGISMÁUN Valdimar Guömundsson skrifar: Höfum við efni á að selja vit og farsæld þjóðarinnar fyrir peninga þó að í ríkissjóð renni? Þetta er spurning sem við höfum öll gott af að hug- leiða, því ekki er hægt að neita því að mikil peningafúlga kemur fyrir vín- söluna og rennur í ríkissjóð. En er víst að við megum telja þetta allt tekj- ur? Látum við ekki nokkuð í staðinn og það meira en hægt er að meta til peninga? Er ekki það böl sem fylgir víninu meira en svo að nokkur leið sé að meta það? Miklar áhyggjur, sorg og ógæfa ríkja á þeim heimilum þar sem mikið vín er haft um hönd. Áreiðanlega er mikið til af fólki sem býr að því alla ævi að hafa alizt upp með drykkju- skaparóreiðu og munu ekki flest stór- slys og hörmulegustu atburðir sem gerzt hafa með þjóð okkar einmitt eiga rætur sínar að rekja til drykkju- skaparbrjálæðis? Þetta vitum við öll. Peningahlið þessa máls er líka stór vegna auk- innar löggæzlu og uppihalds á slös- uðu fólki og drykkjusjúklingum, sem eru ósjálfbjarga vegna víndrykkju. Og alltaf er vínið að herja meira og meira á unga fólkið sem er margt mjög efnilegt og vel uppalið en er: umsetið af víninu, sem virðist hafa allt of marga aðdáendur og dýrk- endur. Nú er barnaár og kosningaár og mörg og falleg loforð fáum við áreið- anlega að heyra fyrir kosningarnar. Væri nú ekki rétt fyrir frambjóð- endur flokkanna að lofa þjóðinni því að reyna að minnka vínflóðið? Það er ósk mín og von að sem flest- ■ir taki þetta mál til athugunar, því það snertir alla þegna þjóðfélagsins.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.