Dagblaðið - 06.11.1979, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979.
Tilmótsviðveturinn:
Á vetrarhjólbörðum
Þeir aurar sem launþegar fá í hend- Dekk undir bíl eins og t.d. Cortinu Verzlunin Jöfur í Auðbrekku selury
urnar um þessi mánaðamót fara án
efa að stórum hluta í það að kaupa
vetrarhjólbarða undir bílana þeirra.
Fyrsti snjórinn er þegar fallinn og
ekki er eftir neinu að bíða. Neytenda-
síðan fór á stúfana og kannaði verð á
vetrardekkjum á þrem stöðum á
höfuðborgarsvaeðinu.
í verzluninni Bíldekk í Borgartúni
voru til bæði ný og sóluð dekk. Lítil
dekk undir t.d. Minibíl kostuðu
13.800 krónur ný. Tekið var fram að
verðið á þeim dekkjum væri sérstak-
lega hagstætt og því ekki við því að
búast að allir bifreiðaeigendur gætu
keypt svona ódýra hjólbarða á bila
sína. Sóluð dekk undii Min inn
kostuðu á sama stað 10.600 krónur.
eða bil af millistærð kostuðu 22.200
ný og 14.500 sóluð. Jeppadekk voru
hins vegar töluvert mikið dýrari.
Þannig kostuðu „standard” dekk
undir Bronco-jeppa 54.800 ný og
27.900 sóluð. Orðið „standard” er
látið fylgja hér með því dekk undir
jeppa eru orðin eins misjöfn og þeir
eru margir. Sumir jeppaeigendur
kaupa þannig breiðari felgur undir
bíla sína og hvers kyns mynstruð
dekk rjúka út.
í Barðanum við Ármúla eru
eingöngu til sóluð dekk. Þar kosta
dekk undir Mini bil 10.600 eins og í
Bíldekkjum. Hjólbarðar undir
Cortinu kosta hins vegar 15.700.
Allar stærri gerðir dekkja voru
búnar.
tékknesk dekk. Lítið var til á þeirri
stundu er hringt var í verzlunina en
von á sendingu bráðlega. Þau dekk
sem til voru passa undir Skóda og
kosta 22.000 ónegld og 26.500 krónur
negld. Einnig sóluð dekk á Skoda
19.500. Annars eru naglar yfirleitt
seldir sér, á 45 krónur stykkið. Þá
voru til dekk á Volvo á 22.460 krónur
og amerísk dekk undir bila á 47.200,
t.d. fyrir stóra jeppa.
Gúmmívinnustofan hefur undan-
farið auglýst í blöðum vetrardekk.
Sem dæmi um það verð sem þar
kemur fram má nefna 12 tommu
dekk á L7.900 og 14 tommu dekk á
27.800. Jeppadekk kosta þar 34.000
undir Bronco-bíla.
-DS.
Fyrir nokkru var beðið um að fá
endurbirta uppskrift af sósu út á
niðurlagða ávexti. Við biðjumst vel-
virðingar á því hve þetta hefur dreg-
izt, en hérer uppskriftin.
2 eggjarauður
1 heilt egg
5 msk. strásykur (er kannski í það
mesta)
safi úr einni sítrónu
2 dl hvitvín
2 dl þeyttur rjómi
Eggjarauðurnar, eggið og sykurinn
er þeytt þar til það er orðið alveg
hvítt. Þá er sítrónusafinn og hvítvínið
Hvaö kostar heimilishaldiö?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi í upplýsingamiðlun
meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið
þér von f að fá fría mánaðarúttekt fyrir fjölskyldu yðar.
Upplýsingaseðill
til samanburöar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Sláturfé er flokkað I þrjá heilbrigðisflokka, óaðfinnanlegt kjöt, hæft kjöt-og óhæft
kjöt
Kostnaður í októbermánuði 1979.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö
Alls kr.
m » ik tv
Fjöldi heimilisfólks
látið út í og skálin látin í vatnsbað
(yfir pott með sjóðandi vatni).
Hrærið vel í þar til sósan þykknar.
Þá er potturinn tekinn af og sósan
kæld og hrært í af og til á meðan.
Áður en sósan er borin fram er stíf-
þeyttum rjómanum blandað varlega
saman við.
Uppskrift þessi er úr bók-_
inni Ábætisréltii. Ih Wessman þýddi.
Þar ci að finna margar alveg sérlega
góðar uppskriftir, allar mjög greinar-
góðar og auðveldar í meðförum.
Þessi sósa var alveg jafngóð daginn
eftir að hún var búin til. Gott er að
hafa hana út á niðurlagða eða niður-
soðna ávexti. Einnig er tilvalið að af-
hýða og skera í bita ferska ávexti og
hella sósunni yfir.
Hráefnið i þennan skammt kostar'
rúmlega 1300 kr. (Gert ráð fyrir hvít-
víni sem kostar 2000 kr., 3 pelar,
þannig að 2 dl kosta 533 kr.).
- A.Bj.
Vetrarhjólbarðarnir eru nauðsynlegir en dáiitið dýrir. Þannig kosta þessi dekk
undir Cortínu 22.200 (ný) og 14.500 (sóluð) i Bildekkjum við Borgartún.
DB-mynd Bj. Bj.
4
Heilbrigðismat á kjöti
Kjötskoðun á að verja heilbrigði
neytenda fyrir ýmsum hættum sem
neyzla kjöts getur haft í för með sér.
Sláturfé ber að skoða fyrst á fæti og
síðan kjöt og innyfli eftir slátrun.
Dýralæknir annast skoðunina og
metur heilsufar fénaðar og hvort um
smitandi sjúkdóma eða eitranir geti
verið að ræða.
Kjötið er dæmt í þrjá flokka eftir
heilbrigði og gæðum. Þeir eru
merktir sem hér segir:
1. flokkur. Kjöt sem er óaðfinnan-
legt. Hann er merktur með jafnarma
þríhyrningi og tölunni 1 innan í.
Stimplað með bláum kjötlit.
2. flokkur. Hæft kjöt. Hann er
merktur með jafnarma þríhyrningi
og tölunni 2 innan í. Svartur kjöt-
litur.
3. flokkur. Óhæft kjöt. Hann er
merktur með aflöngum ferhyrningi
og orðinu SJÚKUR innan í. Stimplað
með rauðum kjötlit.
í næsta þætti tökum við fyrir
gæðamat á kjöti.
DB á ne ytendamarkað/
anima
BJAHNASON
ELDHÚSKRÓKURINN
Eggjasósa með hvít-
víni út á ávextina
Uppskrift
dagsins