Dagblaðið - 06.11.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979.
5
Kosningaslagurinn að hefjast fyrir alvöru:
Menn í baráttuhug á
kosningaskrifstofum
stjómmálaflokkanna
JÓNAS
HARALDSSON
LJOSMYNDIR
BJARNLEIFUR
BjARNLEIFSSON
Kosningabaráttan er að komast í
fullan gang nú að loknum próf-
kosningum og listauppstillingum.
Flokkarnir hafa komið sér upp
kosningaskrifstofum í Reykjavík þar
sem starfinu verður stjórnað fram að
kjördegi en þá færist mjög aukið fjör
í leikinn. Alþýðuflokkurinn lætur að
vísu sinni kosningarbaráttu lokið
laugardaginn fyrir kjördag, en aðrir
flokkar halda uppi hefðbundinni
baráttu á kjördag, eða öllu heldur
kjördögum, sem nú eru tveir eins og
mönnum er kunnugt.
Opnari barátta
Framsóknar-
flokksins
Dagblaðið fór hringferð á
kosningaskrifstofur flokkanna í gær
og kannaði fyrst baráttuandann hjá
framsóknarmönnum. Þar var að vísu
ekki í gangi bein kosningaskrifstofa,
heldur fjölmennur fundur flokks-
manna. Steingrímur Hermannsson
formaður Framsóknarflokksins varð
fyrir svörum:
„Við höfum tekið upp þá
nýbreytni að boða til fundar alla
frambjóðendur í baráttusætum,”
sagði Steingrímur. „Hér eru saman-
komnir fjórir efstu menn á listum
flokksins í öllum kjördæmum og er
fundað með framkvæmdastjórn
flokksins og starfsmönnum í
kosningunum. Menn koma sér saman
um meginmálin í kosningabar-
áttunni. Þá er rætt almennt um
stjórnarsamstarfið og fyrirspurnum
svarað um það. Einnig var rætt um
Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins.
Óskar V. Friöriksson kosningastjóri Sjálfstæöisflokksins með mönnum sfnum.
það hvernig flokkurinn ætti að koma
málflutningi sínum á framfæri.
Við leggjum fyrir kjósendur störf
okkar í ríkisstjórninni, þar sem við
unnum af heilindum. Þá leggjum við
áherzlu á stjórnarslit Alþýðu-
flokksins og hvernig hann hljóp frá
hálfunnu verki. Við höfum einnig
gripið á lofti ábendingar Geirs Hall-
grímssonar um Framsóknaráratuginn
og gerum fólki grein fyrir þeim miklu
framförum, sem orðið hafa á þessum
áratug.
Það er baráttuhugur í mönnum og
við teljum það mögulegt að Fram-
sóknarflokkurinn nái aftur stöðu
sinni sem næststærsti flokkur
landsins. Það var veikleiki fyrri ríkis-
stjórnar að Framsóknarflokkurinn
var minnstur þar.”
Baráttuhugur í
sjálfstæðismönnum
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
opnað kosningaskrifstofu og utan-
kjörstaðaskrifstofu í Valhöll. Þar
stýrir Óskar V. Friðriksson liði.
Óskar sagði að á skrifstofunni lægju
frammi allar upplýsingar um kjör-
skrá. „Við reynum að afla
upplýsinga um alla þásem verða fjar-
verandi á kjördag. Það þarf að ná í
þá fyrir tímann og fá þá til þess að
kjósa.”
Utankjörstaðakosning hefst i
Miðbæjarskólanum um 10. nóv. nk.
og verður kosið þar daglega frá kl.
10—12, 14—18 og 20—22 og á
sunnudögum frákl. 14—16.
„Fólk tekur þvi undantekningar-
laust vel þegar það er minnt á að
kjósa en við höfum auðvitað fyrst og
fremst samband við það fólk sem við
vonum að styðji okkur,” sagði
Óskar.
„Það er mikill baráttuhugur í
fólki og andinn töluvert öðruvísi en
fyrir kosningarnar í fyrra. Það er
mikið meira líf í mönnum nú en þá.”
Aðspurður um klofninginn í Sjálf-
stæðisflokknum i tveimur kjör-
dæmum, sagðist Óskar ekkert vilja
segja. Því yrði formaður flokksins að
svara.
Kosningaskrifstofan í Valhöll
verður miðstöð kosninganna fram að
kjördögum, en þá verða skrifstofur á
12 stöðum í borginni, þ.e. í hverju
hverfafélagi flokksins. Óskar vildi
vekja athygli fólks á því að kjörskrá
nú byggist á íbúaskrá frá þvi 1.
desember í fyrra og er því hætt við
að talsvert sé um breytt heimilisföng
síðan þá. Ekki er vist að fólk átti sig á
því hafi það t.d. flutt fyrir áramót.
Menn eru sem sagt skráðir þar sem
þeir voru heimilisfastir fyrir ári.
Hefðbundin
kosningavinna
Alþýðubandalags
Á kosningaskrifstofu Alþýðu-
bandalagsins að Skipholti 7 voru þeir
Úlfar Þormóðsson og Þorsteinn
Magnússon að skipuleggja starfið.
„Þetta verður hefðbundin
kosningavinna,” sagði Úlfar. „Frá
og með deginum í dag höfum við
samband við stuðningsmenn okkar
og fáum þá í starf, erindrekstur og
áróður. Það má búa t við því að
siðustu vikuna fyrir kosningar verði
starfsmannafjöldinn orðinn 500—
600. Þá starfa hverfadeildir einnig og
allt er þetta starf unnið að mestu í
sjálfboðavinnu.
Það má segja, ef við notum
íþróttamál, að við notum aðferðina
„maður á mann” í kosningabar-
áttunni. Það verður lagt í eins lítinn
Úlfar Þormóðsson undirbýr átökin á
kosningaskrifstofu Alþýðubanda-
lagsins.
MtS 6*7 s*öi
Mf9gF«tKJ»
Bjarni P. Magnússon kosningastjóri Alþýðuflokksins og Garðar Sveinn Árnason
framkvæmdastjóri flokksins. DB-myndir Bjarnleifur.
kostnað og mögulegt er. Útgáfustarf-
semi verður í lágmarki.
Starfsemin verður fjármögnuð
með framlögum en við getum ekki
efnt til kosningahappdrættis þar sem
þessi árstími er hefðbundinn
happdrættistími Þjóðviljans. Við
förum ekki inn á það svið.
Það er mikill baráttuhugur í
mannskapnum en mér lízt illa á þá
ráðstöfun að hafa seinni kjördaginn á
vinnudegi. Það hafa ekki verið færð
nein rök fyrir því að ekki sé hægt að
kjósa laugardaginn 1. desember.”
Engar persónu-
njósnir á vegum
Alþýðuflokks
Kosningaskrifstofa Alþýðu-
flokksins verður opnuð að Skóla-
Ólafur Jóhannesson fv. forsætisráðherra gluggar I Dagblaðið á fundi framsóknarmanna i gær. Ef ráða má af svip foringjans
hefur hann fundið hinn eina sannleik á siðum blaðsins.
vörðustíg 16 í dag. Kosningastjóri er
Bjarni P. Magnússon og hitti DB
hann að máli með Garðari Sveini
Arnasyni framkvæmdastjóra
flokksins.
„Við munum ekki trufla kjós-
endur á kjördögum með persónu-
njósnum,” sagði Bjarni. Kosninga-
baráttunni lýkur hjá okkur laugardag
fyrir kjördag.
Baráttan verður mjög svipuð og í
fyrra en þá brydduðum við upp á
ýmsum nýjungum. Hinir hafa síðan
apað það nokkuð eftir okkur en við
eigum eitthvað í pokahorninu.
Við erum ekki vel búnir að
iaunuðum mannafla og byggjum því
á sjálfboðavinnu. Það eru mun færri
á launaskrá hjá okkur núna en í
fyrra.
Við erum bjartsýnir og okkar fólk
er fullt af baráttuvilja ekki siður en
fyrir síðustu kosningar. Kosninga-
baráttan núna verður að vísu nokkuð
öðruvísi, mun styttri og fer meira
—fram i útvarpi og sjónvarpi. Hún
verður því ekki með eins hefðbundn-
um hætti.
Þegar fólk áttar sig á því af hverju
við fórum út í kosningar óttast ég
ekki. Það er um það að ræða hvort
fólk vill umbótastefnu okkar eða
gömlu kröfluflokkana”. -JH.