Dagblaðið - 06.11.1979, Page 15

Dagblaðið - 06.11.1979, Page 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979. 15 w I GÆRKVÖLDI BRAGI 'SIGURÐSSON Siguröur í Trygg- ingarnar Sigurður Jónsson í Breiðholti starfar nú hjá Tryggingastofnun nkisins. Er hann í bókhaldsdeildinni, sem ásamt gjaldkera og forstjóra annast fjármálastjórn stofnunar- innar. Vitað er að Tryggingastofnunin sótti um leyfi til að ráða sérstakan fjármálastjóra þegar fjárhagserfið- leikar hennar og ríkissjóðs voru mestir síðastliðið sumar. Ekki fékkst það leyfi þá en skömmu síðar var Sigurður ráðinn og hóf starf. Nýir sagnfrœði- prófessorar Innan skamms verður skipað í stöður þeirra Ólafs Hanssonar prófessors og Björns Þorsteinssonar prófessors við Háskóla íslands. Þeir létu báðir af störfum í haust. Ólafur fyrir aldurs sakir en Björn vegna heilsubrests. Þór Whitehead sagnfræðingur er meðal þeirra sem sækja um stöðu Ólafs Hanssonar. Telja kunnugir mestar líkur á því að hann hljóti hana. Diskódanskeppni í Óðali: Sigurvegatinn fer á heims meistarakeppni íLondon Ævar Olsen iðnskólanemi sigraði í fyrsta hluta diskó- danskeppni Óðals og EMI á sunnudagskvöldið var. Alls hafa átján dansarar skráð sig í keppnina, sem haldin er á sunnudagskvöldum. Sá sem hlutskarpastur hinna átján verður öðlast rétt til að keppa á EMI heimsmeistarakeppn- inni sem verður haldin í London þann 18. desember næstkomandi. Dansararnir sem keppa velja sér eigið lag til að keppa eftir. — Sigurvegari síðasta sunnudagskvölds dansaði til dæmis eftir lagi Börbru Streisand, The Main Event. — Þátttakendur verða að vera orðnir átján ára gamlir og ekki eldri en 35 ára. Dóm- .nefnd dansfróðs fólks velur ‘síðan sigurvegarann. m Fré blaðamannafundi sem haldinn var tii að kynna diskódanskeppni Óðais og EMi. Dómaramir Heiðar Ástvaldsson, Bóra Magnúsdóttir, og Sigvaidi Þorgksson fé sór hór snúning með þremur keppend- anna. Sigurvegari fyrsta hlutans, Ævar Olsen, er lengst til hægri ó myndinni. Db-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson. SunnU’ salt- fiskur Guðni Þórðarson í Sunnu hefur nú tekið að sér umboðsmennsku fyrir Sölusamband íslenzkra fiskframleið- enda. Tekur umboð hans til eyjanna í Karabíska hafinu, svo sem Aruba, Barbados, Kúbu, Guadeloupe, Haiti, Jamaica, Martinique, Jómfrúaréyja, sem og Trinidad og Puerto Rico. Ekki hefur að undanförnu verið lögð áherzla á markaðsöflun þarna. Samt sem áður er vel hugsandi að góður markaður yrði fyrir saltfisk þarna. Guðni hyggst hafa þetta umboð með öðru, en einhvers staðar á eyjum Karabíska hafsins mun hann dveljast næstu misseri að mestu leyti. „Það var hó.J’ „Það var hó . . .” sagði hann Agnar Guðnason í gærkvöldi þegai hann kynnti þætti úr bændaför til Noregs. Sannast sagna hefur nú yerið lítið um hó, hopp og hæ á mánudög- um í ríkisfjölmiðlunum tveimur í mörg ár, ef frá eru talin lög unga fólksins og unglingaþættir í útvarp- inu. Eins og ÁT sagði um siðasta mánudagskvöld þá hafa sjónvarps- áhorfendur í mörg ár fengið óum- breytanlegan skammt frétta, veðurs, íþrótta, ensks eða skandinavísks leik- rits og svo einhvers þáttar í restina, svona til að fylla upp i dagskrána. Reyndar byrjaði hlustun mín á út- varpið í gærkvöldi á leiðinni heim úr vinnunni og þá var verið að dæla yfir landsmenn siðdegistónleikum, þess- um af klassíska taginu sem skulu oní' okkur hvort sem okkur líkar betur eða verr. En mikið er skrítinn tími valinn til þessa flutnings, þegar stór hluti landsmanna situr í bílunum sín- um á leiðinni heim. Eftir fréttirnar i útvarpinu, sem eru að verða æ betur unnar, hlustaði ég með öðru eyranu á annan hyrningarstein óumbreytan- legra mánudaga, ,,um daginn og veg- inn”. Undir sjónvarpsfréttunum hlustaði ég, líka með öðru eyranu, á nokkuð svo áheyrilegan þátt fyrir ungt fólk. (Maður þyrfti að vera tví- höfða þurs til að sinna þessari ríkis- fjölmiðlarýni vel). Knútur sagði okkur ekki frá því hvað varð um skemmtilegu smálægð- ina hans Trausta frá því á sunnudag- inn, kannski verður hann Trausti bú- inn að finna út úr því hvað um þær verður næst þegar hann kemur á skjáinn og segir þá frá því á sinn létta hátt. íþróttunum sleppti ég að mestu í sjónvarpinu, en leikrit kvöldsins var með betra móti. Þegar að sovézku leikstjórunum kom hallaði ég mér að bændaförinni hans Agnars og var það býsna létt og skemmtilegt, skásta Slúttnes, Halli og Laddi fyrir norðan Þegar kunnugt varð um athuga- semdir við símareikninga Jóns G. Sólness er sagt að andstæðingur Jóns sem hann mætti á götu hafi sagt: „Þetta er nú slúttið hjá þér, Sólnes.” Gárungar gripu á lofti og nefndu Jón Slúttnes. Enginn bilbugur er á Sólnes og er hann í framboði með sérstakan lista, . sem kunnugt er. Höfuðandstæðingar hans í kosningunum eru að sjálf- sögðu þeir Lárus Jónsson og Halldór Blöndal. Þegar Jón hafði veður af uppnefninu sagði hann: , ,Það er eng- in spurning um mína kosningu. Við skulum sjá, hvort þeir falla ekki báðir, Halli og Laddi.” félagsins gerir um það tillögur. í könnuninni áðurgreindu voru tveir umsækjendur langfylgismestir. Voru það þeir Þorsteinn Gunnarsson og Stefán Baldursson, sem sækja um starfið sameiginlega, en þeir hlutu ellefu atkvæði, Hallmar Sigurðsson hlaut níu atkvæði. Atkvæðisrétt höfðu 33 þannig að þeir Þorsteinn og Stefán fengu þriðj- ung atkvæða i könnuninni en Hall- mar nokkru minna. Nú greiddu aðeins 27 af hinum 33 starfsmönnum Leikfélagsins atkvæði og ef miðað er við það, hafa tvímenningarnir hlotið fylgi 41 % en Hallmar 33,5%: Stjórn og aðalfundi Leikfélags Reykjavikur er því greinilega vandi á höndum að velja á milli manna. Auk þess sem eðli málsins samkvæmt hlýtur að vera erfitt að skipa tvo menn í starf með tilliti til vinnuskip- unar, ábyrgðar og fleira. Aðrir umsækjendur um stöðu leik- hússtjóra sem hlutu stuðning í könn- uninni meðal starfsmanna voru Eyvindur Erlendsson, 3 atkvæði, Pétur Einarsson 1, Árni Ibsen Þor- geirsson 1 og auðir seðlar voru 2. - BS Leikfélag Reykjavíkur mun velja sér nýjan leikhússtjóra á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður um miðjan mánuðinn. Má segja að ekki sé ráð nema í tíma sé tekið þvi hinn nýi leikhússtjóri á að taka við af Vig- dísi Finnbogadóttur eftir tæpt ár eða hinn 1. september næstkomandi. Eins og fram hefur komið voru umsækjendur margir og greinilegt að leikhússtjórastaðan þykir eftir- sóknarverð. Athygli vakti að ein um- sóknin í það minnsta var frá tveim mönnum sameiginlega og einn annar umsækjanda ætlar að hafa sér leik- húsfræðing til halds og trausts. í könnun sem fram fór meðal starfsfólks Leikfélags Reykjavíkur fyrir nokkru kom í ljós að enginn umsækjenda nýtur fylgis meirihluta þess. Það er þó aðalfundar félagsins að velja leikhússtjóra en stjórn éfni kvöldsins. Og enn var það Sin- fóníuhljómsveit íslands sem hljóm- aði úr útvarpinu þegar ég steðjaði af stað til að hripa þessar linur. Það var lítið um hó i gærkvöldi. -JR Erfitt val um leikhússtjóra Dr. Livingstone, býstégvið... ? Dr. Livingstone, býst ég við . . . Nei, það var ekki alveg þannig, en herramennirnir tveir sem eru að heils- ast á myndinni áttu svo sannarlega ekki von á að hittast á íslandi á dög- unum. Þetta eru Kumar Pegera (til vinstri) frá Indlandi, alheimsforseti JC- hreyfingarinnar, og Lloyd Morgan frá Nýja-Sjálandi, heimsforseti Lionshreyfingarinnar. Báðir voru hér til skrafs og ráða- gerða við félaga hreyfinga sinna hér. Þegar þeir fréttu hvor af öðrum þótti ekki stætt á öðru en að þeir hittust. Með þeim á myndinni eru Magnús Gunnarsson (yzt til hægri), sem hefur umsjón með erlendum samskiptum JC á íslandi, og Bergþór Úlfarsson (yzt til vinstri), fráfarandi landsfor- seti JC. - ÓV / DB-mynd Ragnar Th. FÓLK flcira , FOLK

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.