Dagblaðið - 06.11.1979, Side 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979.
<§
Útvarp
23
Sjónvarp
HEFNDIN GLEYMIR ENGUM - sjónvarp kl. 21,30:
Hefnd fyrir elskuna
—nýr f ranskur myndaf lokkur í sex þáttum
Hefndin gleymir engum (Rendez-
Vous En Noir) nefnist nýr franskur
myndaflokkur í sex þáttum, sem
hefur göngu sína í kvöld.
Myndaflokkurinn er byggður á sögu
eftir William Irish. Leikstjóri er
Claude Grinberg.
í fyrsta þætti segir frá ungum
elskendum er hafa um nokkurt skeið
hitzt á hverju kvöldi á ákveðnum
stað. Eitt kvöldið er maðurinn
kemur á stefnumótsstaðinn finnur
hann elskuna sína látna.
Lítur helzt út fyrir að flaska sem
hent hafi verið úr flugvél hafi hitt •
stúlkuna. Maðurinn er viti sínu fjær
og hyggur á grimmilegar hefndir.
Þættirnir munu síðan fjalla um
hvernig honum gengur að fram-
kvæma þær.
Með aðalhlutverk í myndaflokkn-
um fara Jean-Pierre Aumont,
Christine Pascal og Daniel Auteuil. Þessi unga stúlka cr ein af aðalleikendum i nýja franska myndaflokknum. Hún
Þýðandi er Ragna Ragnars. -ELA. heitir Muriel Catala.
Flugvélarnar i byrjun aldarínnar voru flestar tvíþekjur, ákaflega fyrírferðarmiklar og komust stutt
SAGA FLUGSINS—sjónvarp íkvöld kl. 20.35:
DRAUMURINN UM AÐ FUÚGA
Sjónvarpsdagskráin skiptir
aldeilis um svip í kvöld, er tveir nýir
framhaldsmyndaflokkar hefjast. Sá
fyrri er um sögu flugsins og sá seinni
um grimmilega hefnd. Kynningu á
þeim þætti má sjá á öðrum stað á
síðunni.
Svo lengi sem menn hafa á annað
borð haft eitthvert vit í kollinum
hefur þá dreymt um að fljúga um
loftin blá, rétt eins og fuglarnir.
Lengi vel var draumurinn látinn
nægja en þegar líða tók á siðustu öld
tóku ævintýramenn sig til og ætluðu
sér aldeilis að gera drauminn að
veruleika.
Lengi vel var talið að bezt væri að
fljúga með því að búa til einhvers
konar vængi sem festir væru á hand-
leggi flugkappans, sem síðan blakaði
þeim í gríð og erg. En eftir að margir
höfðu slasazt á tilraunum í þessa átt
og jafnvel látið lífið þótti sýnt að
vöðvar mannsins væru ekki nógu
sterkir til þess að bera uppi þunga lík-
ama hans ásamt vængjunum.
Þá var það að mönnum datt t hug
að smíða sér einhvers konar farkosti
sem flogið gætu með þá. Fyrstu flug-
vélarnar komust reyndar ósköp stutt.
Nokkra metra þegar bezt lét, aðrar
fóru alls ekki á loft. Loftbelgir gáfust
heldur ekki vel því þeir voru þyngri
en loftið og héldust því ekki uppi.
En smátt og smátt komust menn
upp á lagið með að búa til loftbelgi
og flugvélar sem gátu flogið. Wright
bræðurnir bandarísku eru taldir hafa
markað hvað dýpst spor á þessari
braut.
Jafnframt tóku loftbelgir örum
framförum og skutust jafnvel á tíma-
bili fram fyrir flugvélar í flughæfni.
En Hindenburg slysið mikla varð
endanlega til þess að stöðva þróun
þeirra og allt hugvit flugsjúkra
manna fór í flugvélar.
Þátturinn í kvöld er hinn fyrsti af
6 um þessa flugsögu. Hann greinir
frá upphafi flugsins og þróun þess
fram til þess timaer Bleriots flaugyfir
Ermarsund. Þættirnir eru alls 6 að
tölu eins og áður sagði og rekja sögu
flugsins fram til ársins 1960. Þýðandi
þeirra og þulur er Þórður örn
Sigurðsson.
-DS.
TÓNHORNK) - útvarp ídag kl. 16,35:
TÓNUSHN SEM
VERÐUR ÚT UNDAN
Nýr stjórnandi byrjar í dag að sjá
um Tónhornið i útvarpinu sem um
leið hefur verið flutt af laugardags-
eftirmiðdegi á þriðjudagssíðdegi. Nýi
stjórnandinn heitir Sverrir Gauti
Diego og verður með þáttinn hálfs-
mánaðarlega. Guðrún Birna
Hannesdóttir, sem séð hefur um þátt-
inn, verður áfram, hina vikuna á
móti Sverri.
Er við slógum á þráðinn til Sverris
sagði hann að Tónhornið yrði með
svipuðu sniði og verið hefði. Þættin-
,um er fyrst og fremst ætlað að flytja
tónlist við hæfi unglinga en samt ekki
að vera viðbót við alla þá poppþætti,
sem við þá kynslóð eru miðaðir. Ætl-
unin er miklu frekar að flytja
eitthvað af þeirri tónlist sem sjaldan
er leikin í útvarpi, tónlist, sem hvorki
er popp né þung, klassísk tónlist, til
dæmis tónlist eins og sú sem oft er
leikin kynningarlaust á milli út-
varpsþátta.
Sverrir Gauti Diego við prófarkalestur
áVisi. DB-mynd R. Th.
Sverrir Gauti Diego er kennari við
Hólabrekkuskólann í Breiðholti eins
og Guðrún Birna. Hann kennir
tungumál og hún tónlist. Auk þess
les Sverrir prófarkir fyrir dagblaðið
Vísi á kvöldin og um helgar.
-DS.
Spencer Tracy I Gamia manninum og hafinu.
Á HUÓDBERGI - útvarp kl. 23,00:
Hákarlar mann-
lífsins og fiskar
einstaklinganna
Leikarinn frægi Charlton Heston átt í um dagana. Hann getur ekki
les í kvöld á Hljóðbergi seinni hluta landað fiskinum stóra upp í bát-
sögunnar Gamli maðurinn og hafið kænuna og tekur á það ráð að draga
eftir Ernest Hemingway. fiskinn á eftir sér í átt til lands. En
Þessi fræga hugljúfa saga er ákaf- þegar hann kemur á land sér hann að
lega vel flutt af manninum sem hákarlarnir hafa étið allt hold af
margir hafa sagt um að aðeins ætti fiskinum. Með þessu er sýnt fram á
ein svipbrigði til í fórum sínum. Ihversu lítils megnugur einstaklingur-
Sagan segir frá gömlum manni, sem ‘inn í raun og veru er. Hákarlar mann-
rær út á sjó. Hann er á litlum báti og lífsins eru þeim alltaf yfirsterkari.
þegar hann verður fyrir því að | Kvikmynd var gerð árið 1957 eftir
;krækja í stóra fiskinn sem hann sögunni um Gamla manninn og
hefur alltaf dreymt um að veiða hafið. Þá lék Spencer Tracy gamla
lendir hann í mestu erfiðleikum. manninn og gerði það svo vel að orð
Fiskurinn verður um leið tákn allra fór af.
þeirrar baráttu sem maðurinn hefur -DS.
Iðnkynning
„Það er íslenzk iðnkynning í Ámunni, Grensás-
vegi 13.”
Næstu daga verða seld á kynningarverði bæði öl-
gerðarefni og þrúgusafar, sérstaklega framleidd
fyrir íslenzkar aðstæður. Komið og kynnizt hvers
íslenzkur efnaiðnaður er megnugur. Við ábyrgj-
umst gæðin.
ÁMAN,
GREIMSÁSVEGi 13,
SÍMI84425.