Dagblaðið - 15.12.1979, Síða 3

Dagblaðið - 15.12.1979, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1979. 3 ER ERLEND STÓRIDJA RAUN- VERULEGA HAGSTÆÐ? Guðmundur Árnason, Akureyri, hringdi: Karl Þórðarson, starfsmaður í áburðarverksmiðjunni, skrifar bréf sl. mánudag i Dagblaðinu. Þar hvetur hann fast til aukinnar erlendrar stóriðju. Hann ber við mun lægri launum í áburðarverk- smiðjunni en í álverinu í Straumsvik. Telur hann að alþýða manna myndi græða mikið á erlendri stóriðju. Álverið í Straumsvík á því Iáni að fagna að við, fólkið i landinu með lága kaupið, greiðum fyrir þá raf- magnsreikninga. í öðru lagi á álverið í Straumsvík móðurfyritíæki sem hefur aðsetur i Sviss. Dóttirin hér heima getur rekið sitt fyrirtæki með tapi á meðan mamman mokar að sér ómældum milljónum i Sviss. Ef nú áburðar- verksmiðjan kæmist í slíka hlunnindaaðstöðu mætti vel segja mér, að hún gæti hækkað eitthvað kaupið við Karl Þórðarson og aðra starfsmenn þar. Að endingu, það getur vel verið að Raddir lesenda til sé einhver hópur manna, sem hafi hagnað af erlendri stóriðju hér á landi, en það munu vera allt aðrir en alþýðumenn. ÉG KAUPI... DOK" EN MAUÐ ER EKKISVO EINFALT! A viðkvæmu skeiði vaxtar og þroska skiptir gott andlegt fóður megin máli. Það þaif að vera vel framreitt en jafnframt kjamgott og spennandi. Þessa kosti sameina unglingabækumar frá IÐUNNI. Því miður er árlega gefinn út fjöldi bóka ærið misjafn að gæðum. Kynnið ykkur því vel efni bóka áður en þið kaupið þær. Munið að hver er sínum gjöfum líkur. Ragnheiður Jónsdóttir: DORA Ragnheiður Jónsdóttir var einn fremsti unglingasagnahöfundur á sinni tíð. Hér kemur fyrsta sagan um Dóru á ný, prýdd teikningum eftir Ragnheiði Gestsdóttur. Þetta er lifandi og skemmtileg saga frá Reykjavík á stríðs- árunum sem allir hafa ánægju af. „Hollur lestur (og)... rétt þjóðlífslýsing frá horfiium tíma.“ (H.Kr./Tíminn'i J.R.R. Tolkien: GVENDUR BÓNDI Á SVÍNA- FELXJ Gamansamt ævintýri sem segir frá viðureign Gvendar bónda við drekann Chrystophylax. Sagan er bráðskemmti- leg fyrii lesendur á öllum aldri. Hún er prýdd ágætum teikningum eftir Pauline Baynes. Ingibjörg Jónsdóttir þýddi. [an Terlouw: FÖÐURLEIT Hörkuspennandi saga sem gerist í Rússlandi. Pétur, íjórtán ára drengur, fer af stað til að leita foður síns sem færður hafði verið fangi til Síberíu. Margt ber fyrir á þeirri leið. „Meistara- leg saga sem heldur athygli þinni löngu eftir að lestri er lokið. . . Höfundur er afburða sögumaður.“ (S.H.G./Mbl.) - Ámi Blandon og Guðbjörg Þórisdóttir þýddu. Cecil Bödker: HLÉBARÐINN Saga frá Afríku um hugrakka drenginn Tíbesó sem leggur af stað til að vinna bug á Hlébarðanum skelfilega sem rænir bændur kálfum sínum. Á leiðinni lendir hann í ótrúlegum mannraunum. „. . . með skemmtilegri unglinga- bókum. .. Vel gert verk sem sannarlega á erindi til ungs, hugsandi fólks." (S.H.G./Mbl.) - Margrét Jónsdóttir þýddi. Sven Wemström: ÞRÆ.LARNIR Fyrsti hluti sagnabálks fyrir unglinga sem fjallar um líf fáttekra ungmenna í stétt hinna undirokuðu. Þessi bók spannar 11.-15. öldv Sven Wemström þarf ekki að kynna. í fyrra gaf IÐUNN út LEIKHÚSMORÐIÐ efitir hann sem Þórarinn Eldjám þýddi eins og Þrælana. Þýðingin fékk verðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur. E.W. Hildick: KÖITURINN SEM HVARF Síamskötturinn Manhattan hverfur úr vörslu enskrar fjölskyldu sem dvelst um stundarsakir í New York. Spennandi og bráðskemmtileg saga jafiit fyrir stráka sem stelpur. „Fjörug katta-leynilögreglusaga. Kattavinir og þeir sem hafa gaman af dularfullum atburðum verða ekki fyrir vonbrigð- um.“ (Library Joumal) - Andrés Kristjánsson þýddi. Bræðraborgarstíg 16 Stmi 12923 og 19156 Gunnel Beckman: VORIÐ ÞEGAR MEST GEKK Á Evi Bogenæs: KITTA Sjálfstætt framhald bókarinnar ÞRJÁR VIKUR FRAM YFIR. Segir frá vorinu þegar Maja varð átján ára og henni skildist svo margt sem hún hafði ekki áður gert sér ljóst. . . Þetta stórfenglega vor þegar mest gekk á... þetta skemmti- lega sorglega annríkisvor. Geðþekk vekjandi bók. Jóhanna Sveinsdóttir þýddi. Æ.VTNTÝRABÆKUR Ævintýrabækur ENID BLYTON nutu einstæðra vinsælda á sjötta áramgnum. Hver man ekki eftir Ónnu, Jonna, Dísu og Finni, að ógleymdum páfagauknum Kíkí? Nú er hafm endurútgáfa þessara bóka og ÆVINTÝRAEYJAN og ÆVINTÝRAHÖLLIN komnar út aftur, prýddar myndum. Sigríður Thorlarius þýddi. Þetta er sjálfstætt framhald sögunnar DRAUMAHEIMUR KITTU. Kitta og Sveinn koma til borgarinnar ný- trúlofuð og hamingjusöm. En skyndi- lega skýtur Ida upp kollinum og fer að gefa Sveini undir fótinn. Samband Kitm og Sveins er stefnt í hæmi.. . Evi Bogenæs er meðal virtusm unglinga- sagnahöfunda í Noregi. - Andrés [ Kristjánsson þýddi þessa sögu. /; Spurning dagsins Hvað ætlarðu að gera í jólafríinu? GuAjón GuAmundsson: Eg æila að reyna að fá mér vinnu um jólin. SigurAur Ragnarsson: Ég ætla að siija heima og slappa af. Ma Þórir Svriaaaon: Slappa af heima. Hallur Ingólfuon: Það veil ég ekki, ég fer kannski i bió. GuAmundur SigurAsson: Eg fer I bió, annars veii ég ekki hvaðég geri. I.ilja Magnúsdóltir: Ég fer á Ciróllu- ball, svo mikið er visl!

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.