Dagblaðið - 15.12.1979, Page 29

Dagblaðið - 15.12.1979, Page 29
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1979. 29 \ Vía, sem ekki vildi hoppa. Höfundur: Ann-Marí Lagercrantz. Myndskreyting: Ann-Marí Lagercrantz. ' Þýöandi: Solveig Thorarensen. Fjölvaútgáfan 1979. Litla kisan Pbl Höfundur: Buchi Emacheta. Myndskreyting: T. Joseph. Þýðandi: Þórunn Etfa Bjömsson. Útg.: Hagprent h.f. 1979. Vía fullvaxin langvía og verpir sínu eggi. Fallegar myndir Það er fljótt farið yfir sögu og ég varð fyrir dálitlum vonbrigðum með söguþráðinn. Það er svona þegar heimtufrekjan er að gera út af við mann. En sökin er mín. Ég byrjaði nefnilega á því að skoða myndirnar sem eru stórar, fallegar og þar að auki í lit. Svo las ég innan á bókarkápunni það sem þýðandinn, Solveig Thorarensen, skrifar um langvíur. Frásögn Solveigar um langvíur, Bók menntir ValdísÓskarsdóttir Þegar Vía langvíuungi er fjögra vikna á hún að hoppa af syllunni sem hún hefur kúrt á síðan hún kom úr egginu og niður í grængolandi hyldýpið. En Vía neitar: Ég vil ekki hoppa. Ég vil bara fljúga. Að lokum er Vía eini unginn sem enn er á syllunni og þó svo að foreldr- ar hennar séu hættir að færa henni mat þá þrjóskast hún við að hoppa: Það er of kalt í sjónum, segir Vía og eitt kvöld í fullu tungi klifrar hún upp á efsta hamarinn og dansar. Svartbakur sent er á sveimi fyrir ofan Víu, grípur hana í gogginn og hefur sig til flugs. En hann missir takið og Vía steypist í sjóinn. Vía er komin í paradís fuglanna en þar fyrirfinnast einnig höggormar í líki laxaneta og olíu. Vía er oft hætt komin en hún spjarar sig blessunin og í bókarlok er lifnaðarhætti þeirra, umhverfi og hættur þær sem að þeim steðja af mannavöldum er virkilega vel skrifuð og fróðleg án þess nokkurn tíma að bera keim af kennslubókarefni. Ogef ég á að vera alveg hreinskilin, þá fannst mér meira gaman að skrifum Solveigar en sögu Ann-Marí. Þá eru myndirnar í bókinni fjölmargar og líklegast þekja þær stærri flöt en skrifað mál, svo réttast væri að tala um þessa bók sem myndabók og textinn notaður til uppfyllingar. Sem slík er hún ágæt en ég hef þann grun að Solveig eigi stóran þátt í því að gera þó það úr sögukorninu um Víu að bókin stendur upp úr flatneskju mynda- bókatexta. Full af lífi og fjöri Svo er það sagan af litlu kisunni Písl sem vistast hjá sex manna fjölskyldu. Það er June, II ára, sem segir okkur söguna, en auk hennareruá heimilinu manmm, -eir hávaðasamir bræður hennar, cvær systur og frænka hennar frá Nígeríu sem er i heimsókn um stundarsakir. Bókin er skemmtileg, það verður ekki af henni skafið. Full af lífi og fjöri þó svo engir stóratburðir gerist en það þarf ekki alltaf stóratburði til að skrifa góðar og skemmlilegar bækur. Það sannast á litlu kisunni Písl því þar tekst höfundi að ná frani lifandi frásögn úr lífi venjulegrar fjölskyldu. Fjöldinn allur af myndum, og það góðum rnyndum, eru i bókinni. Þær falla vel að textanum og auka innsýn i söguna. VÓ. ,,Ó, er ekki tilveran dásamleg ICÍLANO loLLP-' ^TjjÓRNÍH Sigmund þarf ekki nema nokkur strik til að taka af skarið um það sem menn vi/du sagt hafa. Slík eldsnögg viðbrögð hugar og handar eru náðargáfa. Við höfum skopmyndir hans fyrir augunum daglega, og mannlífið er stórum fátœklegra þá sárafáu daga, þegar engin mynd birtist eftir Sigmund. Stíll hans er ákaflega persónulegur og sérstœður, og tilfyndnin með eindœmum. Það er því mikill fengur að þeirri bók, sem nú kemur fyrir almannasjónir með ýmislegt af því besta sem Sigmund hefur teiknað. Meðal annars er í bókinni úrval mynda Sigmund úr landhelgisstríðum íslendinga. Erfitt aö vera þorskur 1 dag PRE1MTHUSIÐ

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.