Dagblaðið - 20.12.1979, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979.
3
Fulltrúi Sambands dýravemdunarfélaga íslands:
Hef engin afskipti haft
af forstjóra Sædýrasafns
— ræði rógburð hans og dylgjur á öðrum vettvangi
Sigríður Ásgeirsdóttir hdl. skrifar:
í tilefni af frétt, sem birtist i Dag-
biaðinu hinn 12. des. sl. varðandi há-
hyrninga vildi ég gjarnan fá að koma
á framfæri eftirfarandi leiðrétting-
um:
1. í fréttinni er ég ranglega nefnd
formaður Dýraverndarfélagsins
(líklega Reykjavíkur) og einnig
nefnd formaður Sambands dýra-
verndunarfélaga íslands, hins
vegar er ég fulltrúi Sambands
dýraverndunarfélaga íslands í
Dýraverndarnefnd ríkisins.
2. Fram kemur í fyrirsögn frétt-
arinnar, að ég hafi talið há-
hyrninga í Sædýrasafninu veika.
Var það ekki rétt haft eftir mér,
heldur svaraði ég spurningu
blaðsins um veikindi há-
hyrninganna þannig, að mér
hefði verið kunnugt um, að þeir
væru ekki í „fullkomnu standi”,
eins og fram kemur í meginmáli
fréttarinnar.
Þessi smávægilegu mistök hafa
komið forstjóra Sædýrasafnsins,
Jóni Gunnarssyni, úr andlegu jafn-
vægi, samanber hálfrar síðu skrif
hans af ósönnum rógburði, ásamt
dylgjum um gamla óvild mína í hans
garð.
Þá vil ég hér með upplýsa að ég
hefi engin afskipti haft af Jóni for-
,stjóra, önnur en varðandi dýravernd-
armál, nema ef vera skyldi sú
staðreynd, að ég hvatti til þess á
sínum tíma, að Jóni forstjóra yrði
forðað frá ógæfu, en það atriði kýs
ég ekki að rifja upp að sinni. Um róg-
burð Jóns forstjóra ogdylgjur í minn
garð tel ég rétt að ræða á öðrum vett-
vangi.
«c
„Svaraði ég spurningu blaða-
mannsins um veikindi háhyrninganna
þannig, að mér hefði verið kunnugt
um að þeir voru ekki i „fulikomnu
standi”, eins og fram kemur í megin-
máli fréttarinnar,” segir bréfritari.
Flórsykur dýru verði keyptur:
Tannfyllingin entist
aðeins fáeina daga
3268—1522 skrifar:
Mig langaði aðeins til að koma
eftirfarandi á framfæri: Ég fór til
tannlæknis á dögunum og er hann
síður en svo ódýrari en aðrir
tannlæknar. En eftir að hafa borgað
fullt verð fyrir viðgerð á framtönn,
var ég ekkert hress með að fyllingin
entist ekki nema fáeina daga. Núna
er ég með stórt, fallegt gat milli
framtannanna, og þarf að skarta því í
einhvern tíma.
Ég þekki kappann lítilsháttar og
þess vegna hringdi ég heim til hans
á laugardaginn var, eða sama daginn
og skrautið datt úr, vegna þess að ég
ætlaði út um kvöldið. Hann lét
margar góðar setningar falla, eins og
t.d. að hann ynni ekki um helgar (Ég
vissi það nú fyrir).
Hann benti mér á Heilsuverndar-
stöðina, en hann veit eins vel og ég,
að þar eru aðeins afgreidd neyðar-
tilvik, fyrir utan það ætlaði ég ekki
að borga tvisvar fyrir sömu tönnina
(Mér þykir rétt að taka fram, að sá
hinn sami gerði við þessa sömu tönn í
febrúar síðastliðnum). Hann sagði
lika, að ef mér líkaði ekki hans
þjónusta, þá gæti ég bara farið
eitthvaðannað.
Ég var alveg sammála manninum
um að það væri betra fyrir mig að fá
þetta almennilega unnið. Fyrst mér
var bent á að fara til einhvers annars,
fannst mér að ég ætti að fá endur-
greitt hjá honum þessum. Hann
sagði að það væri ekki sitt mottó að
endurgreiða fólki og svarið var blá-
kalt nei.
Aftur á móti bauðst hann til að
laga óskaplegheitin á mánudaginn.
Hann skyldi ræða þetta, þegar ég
værikomin ístólinn!
En ég vil ekki taka mér frí i
vinnunni fyrir afglöp annarra, og af-
þakkaði því boðið. í gær,
fimmtudag, datt önnur fylling úr
eftir sama höfund og hafði þá verið
gert við hana fyrir hálfum mánuði.
Og til að líta ekki út eins og gamall
fjallarefur um jólin, fékk ég tíma hjá
öðrum tannlækni, sem lagar fyrir
mig verk vikunnar eftir hinn. Að
sjálfsögðu læt ég taka sýni af þessum
fyllingum, til að fá á hreint
hverslags blanda þetta hefur verið.
Mér finnst svona flórsykur of dýru
verði keyptur.
Meiningin með þessu bréfi er sú,
að mig langar að fá fram hver réttur
sjúklingsins er, og hvert getur maður
leitað réttar síns þegar svona kemur
fyrir? Eða geta svona menn haft fólk
algerlega undir hælunum?
Raddir
lesenda
Spurning
dagsins
Hlakkar þú
til jólanna?
Jón Gauli Jónsson, 10 ára: Já, ég
hlakka til að fá gjafirnar. Það er líka
ágætt að fara á jólaskemmtun. Af
hverju eru jól? Það er vegna þess að
Jesúbarnið fæddist.
Viðir Pétursson, 10 ára: Já, ég hlakka
til. Þá fær maður góðan mat og svo eru
auðvitað gjafirnar. Nú og svo er aldrei
að vita nema maður fari í kirkju.
Jóhannes Jónsson, 10 ára: Já. Þá er
svo gaman. Skemmtilegast er að fá
nammi í skóinn og fá jólagjafirnar.
Ég vona að ég fái Kevin Keegan bókina
i jólagjöf.
hlakka til. Bara af því að þá er svo
gaman og margt að gera. Maður fær
ýmislegt góðgæti og svo fer ég alltaf í
kirkju.
Auður Gyða Ágústsdóttir, 9 ára: Já, ég
hlakka til. Heima hjá mér göngum við
kringum jólatré og syngjum og mér
finnst það svo gaman. Ég óska að ég
fáiskíði í jólagjöf.
Nina Margrét Pálmadóttir, 9 ára: Já,
ég hlakka soldið til. Það er svo spenn-
andi að fá aö vita hvað maður fær i
jólagjöf og svoleiðis. Ég fer líka á jóla-
skemmtun norður í land, þar sem ég á
heima.