Dagblaðið - 20.12.1979, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 20.12.1979, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐiÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979. 1—1 Lærdóm má draga af flugslysunum á Mosfellsheiöi: Fjarskiptin í molum —sambandslaust var við lækna á slysstaö „Það verður varl annað sagl en að rikjandi hafi verið hin mesta kaos og stjórnleysi í sambandi við flugslysið á Mosfellsheiði,” sagði Rögnvaldur Þorleifsson læknir á slysadeild Borgarspítalans. „Fjarskiptasam- bandið virtist í algeru lágmarki og ómögulegt virtist tæknilega séð að hafa samband við lækna á slysstað.” „Upplýsingaskortur eða rangar upplýsingar leiddu til þess að boð var látið ganga út um alvarlegt hópslys. Feiknamikill viðbúnaður var á mörgum spítölum, m.a. fullmann- aðar skurðstofur sem síðan reyndist lítil sem engin þörf fyrir. Samt var alltaf vitað að sjö fóru í þyrlunni og þrjá vantaði úr fyrra slysinu. Fyrstu fréttir gáfu því rangar upplýsingar og þær sem síðar bárust voru rangar hvað tíma snerti og fjölda sjúkl- inga.” Rögnvaldur var á þeirri skoðun að fjarskiptakerfi i molum hefði sjálf- sagt stuðlað að því að stjórn mála á báðum endum var í molum. Hann taldi að lög væri til um starf almannavarnanefnda og kvaðst telja að kerfið hefði tæpast virkað sam- kvæmt þeim lögum í fyrrakvöld. Sjónarvottar á slysstað sáu og fylgdust með að læknar á staðnum fengu lítt um það ráðið hvernig hlúð var að fólki. Þar voru ýmsir sem virtust vita betur. Rögnvaldur taldið að læknum á slysstað hefði aldrei gefizt kostur á að stjórna meðferð sjúklinga. Hinum ýmsu og sundurlausu björgunaraðil- um virtist þar mest í mun að ná ein- hverju af kökunni og sýna að þeir gætu nú gert þetta. Sumir þar virtust til þess eins komnir að sýna sig. Skila- boð sem læknar á slysstað hefðu reynt að senda til lækna í í Reykjavík Ótal björgunarsveitir eiga vel búna bíla og hafa jjölmennar sveitir sem eru tilbúnar ú vettvang með litlum fyrirvara hvenœr sem er. En talstöðvarsamband hafa þeir ekki nema takmurkað, aðeins hvorir við aðra, en geta t.d. ekki sent sjúkrahúsum upplýsingar eða fengið leiðbeiningar frú þeim. DB-mynd Hörður. hefðu aldrei borizt um fjarskiptin. Á hinum endanum, eða í Rvík, hefði svo virzt að einhver dularfullur andi stjórnaði því til hvaða spítala hver sjúklingur skyldi sendur. Hver þar hefði stjórnað kvað Rögnvaldur sér ekki ljóst. -A.St. TVO FJARSKIPTAKERFIINOTKUN án sambands hvort við annað ,,Að okkar dómi vantar hér á landi miðstjórn fjarskiptaþjónustu í hjálpar- og öryggisþjónustu,” sagði Guðjón Petersen hjá Almanna- vörnum. „Björgunarsveitirnar allar notast við HF fjarskiptakerfi, en hjálpar- sveit skáta, flugmálastjórn, slökkvi- lið og lögreglan við VHF kerfi. Milli þessara kerfa er sambandslaust.” Guðjón sagði að þessivandi yrði ekki leystur nema með VHF-kerfi, það væri i uppbyggingu á SV-landi en uppbyggingin gengi hægt, því fé skorti. „Ef Almannavarnir hefðu þegar í upphafi verið látnar vita um slysið var vel hugsanlegt að koma upp VHF stöð á slysstað. Slíkt tekur ekki lengri tíma en að senda bíl upp eftir. Stöðvarnar eru til á lager hjá Almannavörnum. Með því hefði fengizt beint samband milli Almannavarna, allra lögreglustöðva og Borgarspítalans,” sagði Guðjón. HF-kerfi Al- mannavarna bilað Guðjón gat þess að slík stöð hefði í skyndi verið sett upp er hópslys- æfingin fór fram á Keflavíkurvelli og það reynzt vel m.a. með beinu sam- bandi við Borgarspítalann. Guðjón sagði að i fyrrakvöld hefði HF-kerfi Almannavarna reynzt bilað. Hægt var að hlusta en ekki senda út. Það var því aldrei hægt að senda boð til björgunarsveitabíla sem aðeins hafa HF kerfið. Guðjón taldi, að þegar HF kerfi væri notað yrði að velja þá móður- stöð sem bezt heyrðist á slysstað, og þegar búið væri að finna það út ætti að loka öðrum. í fyrrakvöld kom móðurstöð sem bezt heyrðist á slys- stað, og þegar búið væri að finna það út ætti að loka öðrum. í fyrrakvöld kom móðurstöð í Gróubúð bezt út. Hefði þá átt að loka stöðvum í Skerjafirði og Ármúla. Það var ekki gert, og hafði í för með sér samslátt, og mjög illt samband með tilheyrandi seinkunum á að koma skilaboðum milli manna. Guðjón sagði að þó koma mætti á bráðabirgðasambandi með lausum stöðvum skorti mikið á öryggi í fjar- skiptaþjónustu í neyðartilfellum. í þeim efnum vildi Almannavarnarráð koma upp móðurstöðvum á öllum lögreglustöðvum og síðan endur- varpsstöðvum til að tengja þær saman. Fyrir- 2 árum var gerð kostnaðaráætlun fyrir slíkt kerfi. Niðurstaðan var þá um 25 milljónir króna. Guðjón kvað fjarskiptasambandið ætíð þann lið hverrar æfingar sem reynsla sýndi i hverju slysi, að væri nokkurt vandamál. Svo hefði og verið nú. -A.St. Almannavamir og Borgarspítali ekki á einu máli um það hvar slasaða fólkið skyldi hafna: „Wldum nota þá spít- ala sem voru viðbúnir' Atli Rúnar Halldórsson f — segir Guðjón Petersen „Slysið á Mosfellsheiði bar óvenjulega að með tilliti til hópslysa- áætlana. Samkvæmt skilgreiningu jaðraði þetta við að vera hópslys, það er, eftir að þyrlan fórst. Við höfðum engin afskipti af fyrra slysinu eins og eðlilegt var, en komuni af sérstökum áslæðum inn i myndina eftir síðara slysið,” sagði Guðjón Petersen fram- kvæmdastjóri Almannavarna. Borgarspítalinn var með neyðar- va!<t þegar slysin á Mosfellsheiði áttu sér stað. Starfslið þar bjó sig undir að taka við öllu slösuðu fólki af heið- inni, eins og ummæli eins læknis spítalans í viðtali hér í opnunni gefa vísbendingu um. Yfirmenn á Borgar- spitala munu þó að sögn Guðjóns hafa beðið Landspítalann um að vera i viðbragðsstöðu til öryggis. Landspitalamenn höfðu samband við lögreglu og Almannavarnir og leituðu eftir staðfestingu á sinum þætti. Var þá tekin ákvörðun um það að opna stjórnstöð Almannavarna. Almannavarnir höfðu fljótlega sam- band við Landakotsspítala og báðu um að sá spítali yrði einnig i bakhöndinni. Á níunda tímanum um kvöldið bárust tilkynningar frá Landspítala og Landakoti um að skurðstofur beggja spitala væru reiðubúnar til að taka við slösuðu fólki til meðferðar. „Um átta leytið bárust fréttir um að átta manns væru mikið slasaöir. Þá tóku Almannavarnir ákvörðun um að dreifa þeim á alla spitalana vegna þess að allir voru viðbúnir,” sagðiGuðjón. Undirritaður blaðamaður fór til Reykjavikur af slysstað í einum Björgunarmenn hlynna að slösuðu fólki við þyrluflakið ú Mosfettsheiði. Flakið í baksýn, til vinstri ú myndinni er björgunarbútur úr þyrlunni sem blést upp við brotlendinguna. DB-mynd: Hörður. sjúkrabílanna. í bílnum voru íslenzku læknarnir tveir sem voru í þyrlunni, Ólafur Kjartansson og Magnús Guðmundsson. Athygli vakti að lengi vel virtist alls ekki á hreinu hvert aka ætti hinum slösuðu þegar til borgarinnar kæmi. BUstjór- inn fékk skilaboð um að fara á Landspítalann. Skömmu síðar komu önnur skilaboð og í það skiptið um að hann skyldi fara á Borgar- spítalann. Síðan komu einar fimm tilkynningar með stuttu millibili um að hann ætti að fara á Borgarspítal- ann. Virtist liggja í loftinu að annað hvort væru Almannavarnir og Borgarspítalinn ekki sammála um hver ákvörðunarstaður sjúklinganna skyldi vera, eða að misskilningur væri á ferðinni. Guðjón Petersen staðfesti að þarna á milli hefði orðið dálítill núningur, þvi miður. Almannavarnir breyttu ekki fyrri áætlun og létu aka fáeinum slösuðum á_ Landspítalann. Borgarspítalinn tók við flestum, „enda skildist okkur að þeir væru mjög vel búnir undir það,” sagði Guðjón. Ekki miðstýring frá Reykjavík Skipulag björgunarstarfsins var talsvert til umræðu á þriðjudags- kvöldið og í gær. Sýndist sitt hverjum eins og oft vill verða. Eitt af því sem menn velta fyrir sér er það, hvort staðreyndin sé t.d. sú að skipulagning geti verið erfiðleikum bundin vegna þess að henni sé miðstýrt frá Reykja- vík. Þessi spurning var borin undir Guðjón Petersen. Hann svaraði neit- andi og benti á að lögregluyfirvöld í hverju umdæmi hafi ævinlega yfir- umsjón með öllu starfi. í reynd væri það þó þannig aö björgunarsveita- menn réðu ferðinni mjög mikið í krafti reynslu sinnar og þekkingar, eins og var á Mosfellsheiði í fyrra slysinu. Hvaða völd hafa þá læknar á slys- stað? „Það er vafasamt dæmi að skil- greina. Læknasveit er send til að for- gangsraða slösuðum og ákveða um hvert á að flytja þá. Ef við hefðum fengið ákveðin tilmæli læknanna á slysstaðnum um að allir slasaðir á Mosfellsheiði skyldu fluttir á t.d. Borgarspítala, þá býst ég fastlega við að það hefði verið gert,” sagði Guðjón Petersen. -ARH.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.