Dagblaðið - 20.12.1979, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979.
Mæðrastyrksnefnd hjálpar mörgu fólki að vera réttu megin við mörk hungurs og klæðleysis:
„ERFIÐLEIKAR Á DRYKKJU-
HEIMILUM ERU ÁBERANDI”
-------------segir Guðlaug Runólfsdóttir--------
„Ég hef unnið hér í ein fimm ár.
Það er áberandi meiri þörf hjá
vissum þjóðfélagshóp fyrir aðstoð en
áður,” sagði Guðlaug Runólfsdóttir,
starfsmaður Mæðrastyrksnefndar,
við Dagblaðið.
Mæðrastyrksnefnd hefur aðsetur
að Njálsgötu 3. Þangað leitar fólk
sem af ýmsum orsökum á erfitt með
að fæða sig og klæða á fullnægjandi
hátt. Þrált fyrir yfirborðsvelferðar-
svipinn á þjóðfélaginu okkar er til
fjöldi fólks sem býr við þröngan kost
og fátækt. í hópi þess fólks sem leitar
eftir aðstoð Mæðrastyrksnefndar eru
einstæðar mæður, gamlar konur og
veikar, fólk frá heimilum sem eru i
upplausn vegna Bakkusar konungs,
öryrkjar og fleiri.
„Erfiðleikar á drykkjuheimilum
eru áberandi. Og margt fólk sem jiarf
á rándýrum lyfjum að halda sér ekki
fram úr þvi að nota þau vegna
kostnaðarins,” sagði Guðlaug.
„Við söfnum fötum og peningum
til úthlutunar. í þetta sinn sendum
við söfnunarlista í 279 fyrirtæki og
nú hafa innan við 100 listar borizt
okkur aftur. Vegna seinagangsins við
að skila okkur listunum, höfum við
ekki átt fyrir því sem við erum búin
að lofa. Ég vil endilega koma því á
framfæri að menn bregði við og geri
okkur skil.”
Á síðasta ári nutu 265 einstaklingar
og heimili aðstoðar Mæðrastyrks-
nefndar. Ómögulegt er að segja hver
fjöldinn verður núna, en starfsmenn
nefndarinnar segja að mjög margt
nýtt fólk hafi leitað aðstoðar að
þessu sinni.
Mæðrastyrksnefnd hefur lifað í
hálfa öld. Hún var stofnuð á sínum
tíma til aðstoðar ekkjum sem áttu um
sárt að binda vegna mikilla sjóskaða
árið 1928. Síðan þá hefur nefndin
áorkað miklu og hjálpað mörgu fólki
að vera réttu megin við mörk hungurs
og klæðleysis.
„Við rekum hér lögfræðiþjónustu
kl. 10—12 á mánudagsmorgnum. Þar
geta konur fengið ókeypis lögfræði-
þjónustu og ýmsar leiðbeiningar. Það
er allt mögulegt sem konum liggur á
hjarta við lögfræðinginn. Oft er það í
sambandi við hjónaskilnaði, annars
er allt mögulegt sem um þarf að tala
við lögfróðan mann,” sagði Guðlaug
Runólfsdóttir.
-ARH.
4C
Guðlaug Runólfsdóltir, starfsmaður
Mæðrastyrksnefndar, var ekki við-
látin í augnablikinu þegar Bjarnleifur
Ijósmyndari leit við á Njálsgötu 3 til
að smella af mynd í húsakynnum
nefndarinnar. Þar voru hins vegar
staddar Aldís Benediktsdóttir, for-
maður Mæðrastyrksnefndar, t.h. og
Jóhanna Stefánsdóttir, varafor-
maður.
Byggjum betra bú með Black & Decker
B/acka Decker
H720H höggborvélinni,
hinni nýju endurbættu
borvél níunda áratugs
aldarinnar.
★ Hún hefur meira afl tif
aö knýja aukatækin.
★ Vinnur létt á steinsteypu meö
sterkum höggum.
★ Nýja lagið hentar betur.
★ 2ja hraða gírkassi gefur meiri
möguleika.
★ Stærri mótor, 400w, gefur betri endingu.
★ Nákvæm við borun bæði í stál, málm
og timbur.
★ Þetta er ekki bara borvél heldur tæki fyrir
alhliða föndur og smíði heimilisins.
★ Þessi framúrskarandi vél er auðvitað frá
ff/acks ffecker,
Heimsins stærsti framleiðandi rafmagnshandverkfæra.
G. Þorsteinsson & Johnson hf.
ÁRMÚLA 1 - SÍMI 85533
Sölustofnun lagmetis:
Seldi sfld til Banda-
ríkjanna fyrir 450 m.
Fyrir skömmu var undirritaður Samningurinn var gerður með milli-
samningur um sölu til Bandaríkjanna á göngu dótturfyrirtækis Sölustofnunar-
léttreyktum síldarflökum. Eru heildar- innar í Bandaríkjunum, lceland Waters
verðmæti þeirra 450 milljónir króna. Industries. Standa vonir til að um
Það er Sölustofnun lagmetisins sem er frekari sölu geti orðið að ræða í Banda-
seljandi að vörunni en Norðurstjarnan ríkjunum og að takast megi að selja
h.f. í Hafnarfirði framleiðandi. Kaup- u.þ.b. fyrir 800 milljónir á næsta ári.
andi er fyrirtækið Christian Bjelland Sölustofnunin hefur einnig hug á að
og mun varan vera seld með vörumerki varan verði seld undir eigin vörumerki.
þess i Bandaríkjunum. ' -ELA.
Á kassettunum fjórum eru alls sautján œvintýri. Þar á meðal er
sagan af Harts klaufa. Það er Heiðdís Norðfjörð, sem les œvintýrin.
Ævintýri And-
ersens á fjór-
umkassettum
Fyrirtækið Mifa-tónbönd á Akureyri
gefur út úrval af ævintýrum danska
skáldsins H.C. Andersen á fjórum
kassettum. Alls eru ævintýrin sautján,
þeirra á meðal Litla stúlkan með eld-
spýturnar, Eldfærin, Ljóti andarung-
inn, Hans klaufi og Nýju fötin keisar-
ans.
Sögumaður á kassettum þessum er
Heiðdís Norðfjörð. Hún hefur tals-
vert fengizt við upplestur og las meðal
annars ævintýri eftir Kristján frá
Djúpalæk i Morgunstund barnanna
fyrr á þessu ári.
Mifa-tónbönd hafa til þessa
einungis sent frá sér óáteknar kass-
ettur. Þá er fyrirtækið hið eina hér á
landi, sem framleiðir kassettur fyrir
íslenzku hljómplötufyrirtækin. Hver
ævintýrakassetta um sig kostar 3.500
krónur.
-ÁT.