Dagblaðið - 20.12.1979, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 20.12.1979, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979. — 1 ij ' " ' " ' 21 LJOTA KONGSDOTTIRIN Draumaeyjan Ofl önnur œvintýri Höf.: Ingólfur Jónsson frá Prsstbakka Útg.: Bókaútgáfan Fróði, 1979 Teikn: BJami Jónsson Mér finnst varla réttnefni að kalla þetta safn ævintýri. Hér eru að mínu áliti á ferðinni myndir eða stökur frekar en sögur. Myndum er brugðið upp, hugsun vakin en ekki fylgt eftir. Þarna er tæpt á ýmsum viðhorfum. Fyrsta myndin er af stórum kletti og litlu rifi. öldurnar kenndu klettinum hinn gamla sannleika, að stærðin skiptir ekki öllu máli. Kosið hefði ég aðra meðferð á kóngsdótturinni í næstu mynd. Völvan þurfti að lækna stelpuna af óþekkt. „Völvan breytti henni í herfu svo Ijóta, að allir hræddust hana. Auk þess lét hún hana vinna óþrifa- legustu verkin og kóngsdóttirin, sem alltaf hafði fengið að ráða því sem hún vildi, átti nú aumadaga.” önnur meðhöndlun Jæja, þurfti það þá enn að tengjast refsingu að vera „ljótur” og vinna erfiðisverkin? í söngleiknum „Jesus Christ Superstar” er svikarinn Júdas svertingi. Samtök þeldökkra manna 1 Ingólfur Jónsson frá Prestbakka Bandaríkjunum gerðu mjög beittar athugasemdir við hugsunarháttinn (eða tilviljunina?). Einhver sagði i Bék menntir þeim umræðum: ,,Þá veit maður, hvernig innræti svartra er.” Ég hefði sem sagt kosið aðra meðhöndlun eða refsingu til handa kóngdsdótturinni en erfiðisvinnu og „ljótleika”. Hvað segir forysta verkalýðsins? Er hagsmunabaráttan einungis átök um krónur? Þarna væri annars nógu fróðlegt að huga að refsingum barna í barna- bókum. Þá væri ekki ónýtt að virða fyrir sér innrætingu ýmiss konar í barnabókunum. Ekki er ætlunin að fjalla um allar myndirnar, sem sumar eru gullfalleg- ar. Svo finnst mér t.d. um „Isabrot” sem segir frá ánni og ísnum, sem leggur hana í dróma. Eftir átök og sigur kemst áin að þvi, að „lífið er dásamlegt, þegar maður er frjáls og hamingjusamur í birtu vorsins”. Að grisja Vel hefði farið á að grisja þetta safn. Þannig álít ég að safnið hefði orðið betra og heillegra ef t.d. > Bryndís Víglundsdóttir „Lasarus” eða „Köttur og mús” hefðu ekki verið með. Ég hvet fólk til að sjá um að börn eignist eða hafi tækifæri til að lesa þetta kver. Fullorðni maðurinn skoðar myndirnar öðruvísi en barnið. En þær kveikja hugsun hjá barni og fullorðnum — og það er vel. B.V. SPARIMARKAÐURINN kaóu VhwnHBOX] Umferðar- /eikurinn frá Helga Ingólfsdóttir og Manuela Wiesler leika að Skálholti. Helga Ingóifsdóttir og Manuela Wiesler gefa út eigin hljómplötu AUSTURVERI NEDRIBÍLASTÆÐISUNNAN HÚSSINS Þeim er ekki fisjað saman, stöllunum Helgu Ingólfsdóttur sembal- leikara og Manuelu Wiesler flautu- leikara, en þær voru rétt í þessu að senda á markað hljómplötu og gefa hana út sjálfar. Nefnist hún Sumartón- leikar í Skálholtskirkju og er tekin upp á staðnum fyrir skömmu, nánar tiltekið 18. nóv. Eins og mörgum er kunnugt áttu þær upptökin að þeim tónleikum árið 1975 og hafa haldið þeim uppi allar götur síðan. Hafa margir lagt ásig ferðina að Skálholti til að hlýða á þess- ar tvær listakonur og aðra tónlistar- menn, sem þær hafa fengið i lið með sér, — en ný efnisskrá hefur verið á boðstólum um hverja helgi. Þær Manuela og Helga hafa mestmegnis leikið barokktónlist á þessum Sumar- tónleikum, en síðastliðin tvö ár bættist nýr þáttur inn í leik þeirra, þ.e. frumflutningur íslenskra tónverka. Meðal annarra hafa þeir Leifur Þórarinsson og Páll P. Pálsson samið verk sérstaklega fyrir þær stöllur. Á hinni nýju plötu sinni völdu þær til flutnings tvö uppáhaldsverk sin frá 18. öld, Sónötu í e-moll op. I nr. 1 eftir George Friedrich Hándel og Sónötu í e- moll BWV 1034 eftir Johan Sebastian Bach, en auk þess eru á plötunni verkið Sumarmál eftir Leif Þórarinsson og Stúlkan og vindurinn eftir Pál Pam- pichler Pálsson, sem er innblásið af Ijóði eftir Þorstein Valdimarsson með sama nafni. Þetta er jafnframt önnur hljómplata Manuelu, en leikur Helgu hefur ekki áður verið festur á plast. Fálkinn mun dreifa þessari plötu, en um hana mun Eyjólfur Melsted fjalla á næstu dögum. -AI. JOLATILBOÐ Útborgun aðeins 250þús., rest á 6 man. ^ 22" 7]]m Verð 26" 749.85( ‘ SKIPHOLT119 SÍMI2980I • GOSDRYKKJAMARKAÐUR • ÁVAXTAMARKAÐUR • KJÖTMARKAÐUR Opið kl. 14—18 virka daga, föstudaga 14—20, laugaidaga eins og leyft er í desember. Sumartónar á plasti

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.