Dagblaðið - 20.12.1979, Blaðsíða 42

Dagblaðið - 20.12.1979, Blaðsíða 42
42 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979. BORGARTUNI 18 REYKJAVÍK SÍMi 27099 SJONVARPSBUÐIN ferðakassettutæki 4 byigju LW/MW/ FM/SW Aðeins kr. 79.500 PILS, stórar stœrðir plíseruð pilSy köflótt terylene ptis, margirlitir, ullarptis, einlit. elízubOðin skiphoiti 5. Alls var reiknað með að stytta af hljómsveitinni the Beatles myndi kosta um 43 milljónir króna. Til að standa straum af kostnaðinum var gengizt fyrir alþjóðlegri söfnun meðal aðdáenda hljómsveitarinnar. Alls komu í kassann um 225 þúsund krónur. Minnisvarðinn um Beaties ekki reistur Áform um að reisa Bítlunum fjórum minnisvarða í Liverpool i Englandi eru farin út um þúfur. — Aðdáendur þeirra reyndust ekki hafa áhuga á að gefa fé til framkvæmdanna. Áætlað var að minnisvarði Bítlanna myndi kosta rúmar 43 milljónir króna. Efnt var til alþjóðlegrar peningasöfn- unar til að hægt yrði að hrinda verk- inu í framkvæmd. Á einu ári söfnuðust 225 þúsund krónur! Það voru Allan Williams fyrrverandi framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar the Beatles og útvarpsplötusnúðurinn Bob Wooler, sem gengust fyrir söfnun- inni. Er þeir sáu upphæðina, sem inn var komin eftir árs söfnun, ákváðu þeir að látastaðar numið. Minnisvarðinn um Beatles átti að prýða miðbæ Liverpool. NÝJAR BÆKUR 1979 FRANK og JÓI: Leynigöngin FRANK og JÓI: Dularfulli skugginn Höl.: Franklin W. Dixon. Þýðandi: Gisli Ás- mundsson. Hér koma 22. og 23. bók i þess- um vinsæla bókaflokki. Fyrri bókin er 128 bls. en hin síóari 160 bls. NANCY og gamla albúmið NANCY og skakki strompurinn 27. og 28. bókin í þessum flokki. Höfundur: Carolyn Keene. Þýð.: Gunnar Sigurjónsson. Fyrri bókin er 175 bls. en hin siðari 141 bls. LABBA fær sér snúning LABBA lætur allt fjúka 7. og 8. bókin. Höfundur: Merri Vik. Þýðandi: Gisli Ásmundsson. Fyrri bókin er 142 bls. en hin siðari 157 bls. SIGURFÖR Hölundur: Sverre Magelssen. Þýðandi: Benedikt Arnkelsson. Þetta er lifandi frásögn um brautryðjandann og æskulýðsleiðtogann, Georg Williams, sem var upphafsmaður Kristilegs félags ungra manna. — SIGURFÖR er skrifuð jafnt fyrir unga sem gamla. — Bókin er 136 þls. NIÐJATAL GUNNLAUGS BJÖRNSSONAR bónda á Óspaksstöðum í Hrútafirði og eigin- kvenna hans, Sigriðar Bjarnadóttur og Guð- runar Jónsdóttur. FRIÐRIK TH. INGÞÓRSSON tók saman. Bókin er 206 bls. með nafnaskrá. I SÖGUTÚNI Höfundur: Benedikt Gíslason frá Hofteigi. Hér fjallar höf. mest um það tímabil í sögu þjóðarinnar, sem minnst hefur verið skrifað uni — það er 14. og 15. öldin. — Árni son- ur höfundar segir svo í formála: ..Framsetn- ingin miðast oft við, að lesandinn gjörþekki þau mál og þá menn: sem um er fjallað. — Segja má að það efni, sem hér liggur fyrir sé uppkast sem eftir er að vinna úr til fulln- ustu." — Bókin er 245 bls. FÓLKIÐ MITT • og fleiri dýr • Höfundur: Gerald Durrell. Þýðandi: Sigriður Thorlacius. Höfundurinn, Gerald Durrell, er einn vinsæl- asti rithöfundur Bretlands og eru það hinar gamansömu frásagnir hans af mönnum og dýrum, sem fyrst og fremst hafa aflað hon- um vinsælda. Hann hefur einnig ritað skáld- sögur og barnabækur. — Bókin er 228 bls. TAMARINDFRÆIÐ Höfundur: Evelyn Anthony. Þýðandi: Hersteinn Pálsson. Judith starfaði i aðalskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, þar sem fjallað var um trúnaðar- mál. Hana grunaði ekki, að hinn alúðlegi mað- ur, sem hún hitti I orlofi á Barbados, væri tengdur njósnarkerfi Rússa. „Frábærlega skemmtileg blanda af njósnum, stjórnarerindrekstri og ástum." — Daily Telegraph. — Bókin er 230 bls. FINNUR FRÆKNI Hötundur: Marryat. Ein at vinsælustu bókum höfundarins, og hafa þó margar þótt góðar. 167 bls. með mörgum myndum. FÁST HJÁ ÖLLUM BÓKSÖLUM PRENTSMIÐJAN LEIFTUR HF. HÖFÐATÚNI 12 - SÍM117554 Haraldur fékk gullplötu Hljómplatan Haraldur í Skrýplalandi er í hópi söluhæstu platna ársins hér á landi. Hún kom út Ijúnílok og hefur selzt jafnt og þétt síðan. — Útgefandi plötunnar, Steinar hf, veitti Haraldi Sigurðssyni Skrýplapabba gullplötu á dögunum fyrir þennan ágœta árangur. Verðlaunaafhendingin átti að fara fram I veitingahúsinu Hollywood á fimmtudagskvöldið var. Af því varð þó ekki, þar eð Haraldur var önnum kafinn við að leika í Áramótaskaupinu. Platan er nú komin íréttar hendur. Ljósm.: Tryggvi.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.