Dagblaðið - 20.12.1979, Side 12
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979.
Zimbabwe/Ródesía:
Smith og Muzorewa
til London í dag
— friðarsamningamir undirritaðir á morgun
Fráfarandi forsætisráðherra í
Salisbury, Abel Muzorewa biskup,
fer í dag flugleiðis til London til að
undirrita samkomulag um framtíðar-
stjórnarfyrirkomulag í Zimbabwe/-
Ródesíu. Þar með verður sjö ára
skæruhernaði lokið á milli skæruliða
hjóðfrelsisfylkinga þeirra Nkomo og
Mugabe og liðs stjórnarinnar í Salis-
bury. Við undirritun samkomulags-
ins mun fjöldi flugvéla brezka flug-
hersins hefja sig á loft og halda til
Zimbabwe/Ródesíu og hermenn sjá
um undirbúning og síðar að hafa
yfirumsjón með allsherjaratkvæða-
greiðslu í landinu.
Með Muzorewa verður lan Smith,
fyrrum forsætisráðherra stjórnar
hvítra manna í Ródesíu. Hann var
þar helztur forustumaður alveg frá
því að hvítir menn þar lýstu einhliöa
yfir sjálfstæði landsins árið 1%5.
Siðasta hindrunin fyrir því að sam-
komulag deiluaðila yrði undirritað
var vegna einhverra athugasemda frá
Muzorewa. Töfðu þær undirritun að
sögn um tvo daga en nú er að fullu
ákveðið að athöfnin verði á morgun í
London. Tókst að sætta Muzorewa
biskup við samningsdrögin á fundi
með Soames lávarði í Salisbury i gær.
Soames lávarður verður æðsti maður
i Zimbabwe/Ródesíu þar til að lokn-
um almennum kosningum þar.
Þrátt fyrir að samningar deiluaðila
verði undirritaðir og vopnahlé komist
á milli skæruliða og hers stjórnarinn-
ar í Salisbury er talin viss hætta á að
upp úr sjóði á næstu dögum.
Suður-Kórea:
Sjö dæmdir til
dauða fyrir
forsetamorðið
Herdómstóll í Seoul í Suður-Kóreu
dæmdi í gær sjö manns til dauða fyrir
byltingartilraun og morð á Park fyrr-
um forseta, sem framkvæmt var af
Kyu, æðsta manni leyniþjónustu
landsins.
Sendiherrann handtekinn:
Skjölísendi-
ráðinu tengdu
hannCIAmálum
Bandaríkin:
Sjö stærstu olíufírmun
kærð fynr verösvik upp
á einn milljard dollara
Bandarísk yfirvöld ákærðu í gær fyrirtækjanna Texaco, Shell, Stand- Ákærurnar byggjast á lögum um ósæmilegan máta auk þess sem talið
sjö stærstu olíufyrirtæki landsins um
svik við verðlagningu á olíu. Eru brot
fyrirtækjanna talin vera alls fjörutíu
og nema samtals að upphæð einum
milljarði dollara eða jafnvirði rúm-
lega 400 milljarða íslenzkra króna.
Orkumálaráð Bandaríkjanna
(DOE) sagði í gær að of hátt verð
ard Oil of Ohio, Arco, Marathon,
Conoco og Chevron of USA næmi
gífurlegum upphæðum, sem við-
skiptavinir þeirra hefðu orðið að
greiða í of háu olíuverði.
Auk of hás verðs á olíuvörum eru
fyrirtækin einnig sökuð um að hafa
talið ýmsa kostnaðarliði sína of háa.
þessi efni frá 1973 og 1976 en þau
voru samþykkt á grundvelli olíu-
kreppunnar og þeirrar þarfar sem
ríkisvaldið í Washington taldi sig
hafa fyrir að hafa áhrif á almennt
olíu- ogiþensínverð.
Olíufyrirtækin sjö eru sökuð um
að hafa túlkað hin umgetnu lög á
er i ákærunni að þau hafi hagað
kostnaðarfærslum sínum á jafn
ósæmilegan hátt. Er ekki talið að of
hátt verð hafi verið viljandi reiknað á
viðskiptavini heldur hafi hér verið
um að ræða mistök sem stafi af
kæruleysi við verðákvörðun, sem þó
hafi öll verið viðskiptavinunum í
óhag.
HEIMTAR RETTARHÖLD. Fólk 1 hópgöngu um götur Teheran I lran veifar dagblaðinu Jomhouri Islami eftir að i Ijós
kom að fyrrum keisari landsins hefði fengið hæli i Panamaog væri horfinn frá Bandarfkjunum. Krafa fólksins var sú, að rétt-
arhöld yfir gislunum 50 i sendiráðinu i Teheran yrðu haldin strax.
Sendiherra írans á Norður-
löndum hefur verið handtekinn í
Teheran og er hann sakaður um að
hafa haft samstarf við CIA, öryggis-
og njósnaþjónustu Bandaríkjanna.
Þvi til sönnunar hafa verið sýnd
skjöl, sem sögð eru hafa fundizt í
bandaríska sendiráðinu í Teheran,
sem nú er á valdi stúdenta, sem þar
hafagíslana50íhaldi.
Fyrstir með þessar fréttir voru
stúdentarnir í sjónvarpsviðtali en nú
hefur hin opinbera fréttastofa i
Teheran staðfest fregnina um hand-
töku sendiherrans, Abbas Amir
Entezam.
Hann var aðstoðarforsætis-
ráðherra í fyrstu ríkisstjórinni, sem
mynduð var í íran eftir að keisarinn
var farinn frá völdum. Var Bazargan
þar forsætisráðherra. Entezam varð
síðan sendiherra á Norðurlöndum í
ágúst síðastliðnum.
í tilkynningu írönsku frétta-
stofunnar segir að stúdentarnir í
bandariska njósnahreiðrinu (sendi-
ráðinu) hafi skýrt fulltrúm frétta-
stofunnar frá því, að bráðlega muni
miklum fjölda skjala verða dreift
meðal fréttamanna þar sem sannanir
liggi fyrir um stöðugt samband sem
Entezam hafi haft við Bandaríkin.
Entezam var einn af forustu-
mönnum þeirrar frelsishreyfingar,
sem Bazargan, fyrrum forsætis-
ráðherra, stóð fyrir stofnun á og
barðist gegn keisaranum.
Erlendar
fréttir
Muhammad Ali
kominn til Kína
Muhammad Ali fyrrum heims-
meistari i hnefaleikum er nú kominn til
Kina. Hann sagði við brottför sína frá
Bandarlkjunum að þar með væri
draumur hans frá tíu ára aldrei að
rætast. Muhammad Ali mun meðal
annars kynna íþrótt sína og að lokum
gefa Kínverjum 45 minútna kennslu-
kvikmynd um hnefaleika eins og hann
telur þá geta orðið bezta.
I
u
á öllum hljómplötum
Hljóófærahús Reykjavíkur LAUGAVEGI 96 SÍMI 13656
rt