Dagblaðið - 20.12.1979, Page 13

Dagblaðið - 20.12.1979, Page 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979. 13 Washington: Chrysler f rum- varpið komið í gegnum öldungadeildina Öldungadeild Bandaríkjaþings sam- þykkti í gærkvöldi að veita Chrysler bifreiðafyrirtækinu fjárhagsaðstoð til að koma í veg fyrir gjaldþrot þess og hinir 360 þúsund starfsmenn þess yrðul atvinnulausir. Fulltrúadeildin íj Washington hafði áður samþykkt sams konar frumvarp. Mál þetta fór í gegn- um öldungadeildina eftir harðar umræður og var samþykkt með 53 at- kvæðum gegn 44. Aðeins einu sinni áður hefur ríkisstjórn í Bandaríkjunum veitt einkafyrirtæki slíka aðstoð. Var það þegar Lockheed flugvélaverk- smiðjunum var veittur styrkur árið 1971 en þá mun minni fjárhæð. Moskva: Hundrað ár frá fæðingu Stalíns Á morgun eru hundrað ár liðin frá fæðingu Stalíns, fyrrum æðsta manns Sovétríkjanna. í fréttum Tass frétta- stofunnar í Sovétríkjunum í morgun segir meðal annars að Stalín hafi hvorki verið engill nédjöfull. I REUTER B OPEC-fundur í Caracas: Ekkert samkomu- lag um olíuverö Ráðherraráðstefnu OPEC-ríkj- anna, sem staðið hefur í Caracas frá þvi um helgi, mistókst gersamlega að ná samstöðu um nýtt olíuverð. OPEC-ríkin þrettán halda áfram ráð- herraviðræðum í Caracas í Venezuela í dag. Markmið þessarar ráðstefnu var einkum að ákvarða olíuverð allra mestu olíuútflutningslanda heims fyrir árið 1980. Mörg ríki, bæði inn- an og utan við þetta bandalag olíu- útflutningsríkjanna, hafa að undan- förnu tilkynnt verðhækkanir á olíu. Höfðu þau í raun brotizt út úr rammasamkomulagi OPEC-ríkjanna' án samráðs sín á milli eða samráðs ailra ríkjanna. Þegar ráðherrar OPEC-ríkjanna komu saman í Cara- cas nú fyrir nokkrum dögum, var samstaða um olíuverð farin út um þúfur og málið í sjálfheldu frá fyrsta degi ráðstefnunnar. Eftir 12 klukkustunda lokaðan fund og leynilegar viðræður var til- kynnt að engin samstaða hefði tekizt, þrátt fyrir bjartsýni einstakra ráð- herra fyrir leynifundinn. Sheikh Zaki Tamani, olíu- málaráðherra Saudi Arabíu, sagði í gær, að úrslitatilraun til samkomu- lags yrði reynd i dag. Hann bætti þvi við, að hann teldi engar horfur á þvi, að aðildarríkjunum tækist að komast úr sjálfheldunni með samkomulagi. Þessi mikilvæga ráðstefna, sem allur heimurinn hefur horft á eins og áhrifamikla leiksýningu undir bryn- vörðu, margföldu eftirliti hvers konar öryggisgæzlu, boðar orku- snauðum ríkjum ekki neitt gott. Ein- hver von um samkomulag er þó talin vera á fundi sömu aðila, sem óhjá- kvæmilega verður haldinn innan tíðar. Mikil hætta er á skipulagslitl- um olíuhækkunum þangað til. Ahmed Zaki Vamani, oliumála- ráðherra Saudi Arabfu, sagði i gær að engar samkomulagshorfur væru á ráöstefnunni. Yamani hefur verið helzti talsmaður þess meðal olíusölu- rfkjanna að halda olfuverði f 24 doliur- um fyrir fatið. Frakkland: Fallhlífarliö- ar koma heím — aðstoðuðu við að steypa Bokassa af stóli í Mið-Afnkulýðveldinu í gær komu til Parísar liðsmenn í Að sögn liðsmannanna.sem nú eru fallhlífardeild franska hersins, sem tók komnir aftur, var auðvelt að taka þátt í því að steypa Bokassa, fyrrum höfuðborg Mið-Afríkulýðveldisins her einræðisherra í Mið-Afríkulýðveldinu, skildi og setja síðan David Dacko fyrr- af stóli í september síðastliðnum. um forseta og frænda Bokassa aftur til Bokassa var þá sjálfur í heimsókn í valda. Hinn síðarnefndi hafði verið við Líbýu en dvelst nú á Fílabeins- völd í landinu frá byltingu sem hann ströndinni í útlegð. gerði á árinu 1966. Ríkti hann við Voru fallhlífarliðarnir meðal hinna , sivaxandi ofstopastjórn. 400 frönsku hermanna sem komu til landsins hinn 21. september síðast- Nú er talið, að um það bil liðinn. Síðar komu fleiri hermenn og þá 450 franskir hermenn séu enn í Mið- aðallega til að leggja áherzlu á tök Afríkulýðveldinú, en það var áður franska hersins. frönsk nýlenda. BRÚDA AF CARTER Grimmdarsvipurinn leynir sér ekki á manninum er hann virðir fyrir sé brennandi brúðu af Jimmy Carter Bandarfkjaforseta. Þetta gerðist á mót- mælafundi fyrir utan sendiráð Bandarikjanna i Teheran i tran I vikunni.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.