Dagblaðið - 20.12.1979, Síða 47

Dagblaðið - 20.12.1979, Síða 47
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979. BÆJARINS Umsjón: FriðrikÞ' Friðriksson nr7T| I oglngólfur DE.iL I U Hjörieifsson kynnjng á þvíathyglis- verðasta sem kvikmyndahús borgarínnarsýna Close Encounters of the Third Kind. Sýningarstaður Stjömubíó LeikstjóH: Steven Spielberg. Handrít Steven Spielberg. Aðaihlutverk: Richard Dreyfuss, Francois Tmffaut o. fl. Amerísk, 1977, endursýnd. Stjörnubíó endursýnir nú hina margumtöluðu mynd Spielbergs, Close Encounters. . . Það má kannski segja að fullsnemmt sé að endursýna þessa ágætu mynd, en hún var sýnd hér siðastliðinn vetur. Myndin fjallar um heimsókn vera frá öðrum hnöttum og viðbrögð mannkindarinnar við þeim. En það er kannski kjánalegt að vera að rekja söguþráðinn í þessari frægu mynd, annars vegar vegna þess hve stutt er síðan hún var sýnd hér og hins vegar vegna þess að gæði myndarinnar felast að miklu leyti í þvi hvernig spennan magnast stig af stigi og endursögn söguþráðar skemmir því ánægju þá sem hafa má af myndinni. Douglas Trumbull, sá er sá um tæknibrögðin í myndinni, á einnig mikinn heiður skilinn fyrir vinnu sína hér og þó ekki væri nema fyrir tæknibrögðin er myndin vel þess virði að sjá aftur. Soldier Blue Sýningarstaður Ragnboginn Leikstjórí: Ralph Nelson. Framleiðandi: Joseph E. Levine. Aðalhlutverk: Robert Strauss, Candice Bergen, Donald Pleasance. Kvikmyndahús borgarinnar gera nú mikið að því að endursýna. myndir, eins og oft hefur reyndar verið fyrir jólin á meðan beðið er eftir að jólamyndirnar komist í gang. Og slíkt þarf reyndar ekki að vera neikvætt ef sýndar eru bitastæðar myndir. Eina slíka er nú verið að endursýna í Regnboganum, Soldier Blue. Soldier Blue fjallar, líkt og Little Big Man, um ofríki hvíta mannsins gagnvart indíánanum. Myndin gerist á þeim tíma þegar Bandaríkjamenn voru að leggja undir sig „hið villta vestur” og víluðu þá ekki fyrir sér að stráfella heilu þjóðflokkana. Myndin segir frá því er tvær hvítar manneskjur verða vitni að þessum atburðum og endar myndin á því er banda- rískur herflokkur ryðst inn í indíánaþorp og leggur það í rúst. Áhrifa- mikil mynd. sem fólk ætti að fara á. Sá eini sanni (The One and Only) Sýningarstaður Háskólabíó. Leikstjóri: Carl Reiner. Handrít: Steve Gordon. Aðalhlutverk: Henry Winkler, Kim Darby og Gene Saks. Sá eini sanni segir frá ungum manni sem er þess fullviss að hann sé gæddur svo miklum hæfileikum til að verða stórkostlegur leikari að ekkert geti stöðvað hann. Gallinn er bara sá að enginn vill hlusta á hann. Skýringin á því kemur fljótlega í Ijós. Schmidt, en það er nafn þessa unga bjartsýnismanns, virðist eiga ótrúlega auðvelt með að eyðileggja allar framavonir sínar á leikbrautinni með hinum ótrúleg- ustu uppátækjum. Þrátt fyrir nokkrar gloppur í myndinni, sem má líklega rekja til þess að einhverjum atriðum hefur verið kippt út til að stytta hana, er hún oft á tíðum bráðskemmtileg á að horfa. Myndin er hlaðin hnyttnum tilsvörum, sem halda henni uppi, og Henry Winkler í hlutverki Schmidts sýnir skemmtilega fjölbreytni sem gamanleikari. Nosferatu. Blóðsugan Sýningaretaður: Nýja Bfú. Leikstjðri og höfundur handrits: Wsmar Harzog. Aðalhkltvark: Klaus Kinskl, isaballe Adjanl og Bruno Ganz. Nýja Bió sýnir nýja og jafnfrarnt óvenjulega mynd um greifann , Dracula og raunir hans. Leikstjóri þessarar myndar er Þjóðverjinn Werner Herzog. Hann byggir þessa mynd sína frekar á fyrstu mynd- inni um Dracula greifa en sögu Bram Stokers. Þessi fyrsta mynd sem gerð var um Dracula greifa hét einmitt Nosferatu og var gerð árið 1922 af Þjóðverjanum F. W. Murnau. Flestir kannast við efni Draculamyndanna, svo oft höfum við séð hann i kvikmyndahúsum borgarinnar í gegnum árin. Þó að Herzog fylgi hinum hefðbundna söguþræði að mestu leyti er þessi mynd þó gjörólík fyrri Dracula- myndum að því leyti að Herzog leggur áherslu á aðra þætti myndar- innar en venja er til. Myndin er mjög myndræn og mörg atriði eru frá þeim sjónarhóli séð geysimögnuð. Mynd Herzogs er skemmtileg til- breyting í öllu blóðsugumyndaflóðinu. UMSJÓN: Ingólfur Hjörleifsson. Lesendur eru hvattir til að senda kvik myndadálki DB línu, hafi þeir áhuga á ei^r hverri vitneskju um kvikmyndir og kvik- myndaiönaðinn. Heimilisfangið er: Kvik- myndir, Dagblaðið, Síðumúla 12, Rvk. 47 - T1L UMHUGSUNAR - útvarp kl. 14.45: Áfengisnotkun íslend inga hefur tvöfaldazt — á sl. 20-25 ánim samkvæmt nýrri áfengiskönnun I þættinum Til umhugsunar verður fjallað um áfengisnotkun tslendinga og til hvers hún geti leitt f framtfðinni. „I inngangi þáttarins vitna ég til áfengiskönnunar sem ég, Tómas Helgason og Jóhannes Bergsveinsson höfum unnið að síðan 1972 og sýnir að áfengisnotkun íslendinga hefur tvöfaldazt sl. 20—25 ár. Þar af er aukningin mest meðal ungs fólks, unglinga og kvenna,” sagði Gylfi Ásmundsson sálfræðingur í samtali við DB. Hann, ásamt Þuríði J. Jóns- dóttur, flytur þátt sem nefnist Til umhugsunar i útvarpi í dag kl. 14,45. , ,,Ég mun leggja fram þær spurningar af hverju þessi aukning stafar og til hvers hún leiðir,” sagði Gylfi ennfremur. ,,Ég mun taka tölur úr könnuninni og síðan mun Þuríður koma með vangaveltur og saman- burð við Bandaríkin og Kanada,” sagði Gylfi. Þáttur þeirra er þriggja istundarfjórðunga langur. -ELA. LEIKRIT VIKUNNAR - útvarp kl. 20.15: TÍMARNIR BREYTAST 0G FYRIRTÆKIN MEÐ I kvöld kl. 20.15 verður flutt í út- 'varpi leikritið Heims um ból eftir 'Harald Mueller í þýðingu Stefáns Baldurssonar. ! Leikritið segir frá Werner sem erft jhefur kjötiðnaðarfyrirtæki föður isíns. Móðir hans er á elliheimili og 'skömmu fyrir jól heimsækir hann |hana. Henni líkar illa vistin á elli- |heimilinu og viil gjarnan flytja. Hún iáttar sig þó ekki á öllum þeim breyt- lingum sem orðið hafa í þjóðfélaginu síðan í gamla daga. Fyrirtækið hefur aðlagað sig að kröfum nýja tímans, og sá heimur sem gamla konan þekkti er ekki lengur til. Höfundurinn, Harald Mueller, fæddist í Memel í Austur-Prússlandi, en er nú búsettur í Vestur-Berlín. IHann vann ýmis störf áður en hann Tór að nema leikhúsfræði í Múnchen lum 1%5. Mueller var leikari og leik- llistarráðunautur um skeið, en fór Isíðan að skrifa leikrit og barna- [bækur. Frá 1974 hefur hann ein- göngu starfað sem rithöfundur. Nokkur verka hans hafa verið flutt í útvarpi á Norðurlöndum. Með hlutverkin í leikritinu fara jGuðbjörg Þorbjarnardóttir og Bessi jBjarnason. Flutningur leiksins tekur ium fimm stundarfjórðunga. Útvarp- ið hefur ekki flutt leikrit eftir Mueller áður, en Heims um ból var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1978. - ELA Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Bessi Bjarnason I hlutverkum sinum I Heims um ból sem sýnt var i Þjóðlcikhúsinu 1978.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.