Dagblaðið - 28.12.1979, Side 7

Dagblaðið - 28.12.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. DESHMBHR 1979. 7 Bjöm Svein- bjömsson forseti Hæstaréttar Björn Sveinbjörnsson, hæstarétlar- dómari, hefur verið kjörinn forseti Haestarétlar frá 1. janúar 1980 að telja til tveggja ára. Logi Einarsson, hæstaréttardómari, var kjörinn varaforseti sama tíma. -BS. Reykjavíkurmótið í skák: Rússar „stefna að” þátttöku — enn er reiknað með þátttöku Viktors Kortsnojs ,,Ég tel þetta lofa góðu sérstaklega með tilliti til jiess að enn er reiknað með þátttöku Viktors Kortsnojs. En það er e.t.v. þess vegna sem þeir gera þennan fyrirvara,” sagði Einar S. Einarsson, forseti Skáksambands íslands, í samtali við Dagblaðið. i gær barst Einari S. Einarssyni bréf frá sovézka skáksambandinu þar sem segir, að stefnt sé að því að senda tvo sovézka skákmenn á Reykjavíkurmótið í skák, þ.e. Vasjúkov og Czeshkovsky. Hér er þó ekki um beina þálttökutil- kynningu að ræða þvi óskað er eftir frekari upplýsingum um verðlaun og vasapeninga. Einar sagði að þessar upplýsingar hefðu tvívegis verið sendar Rússunum og sennilega væri hér um „biðleik” að ræða hjá þeim. Hann sagði, að ekki þyrfti þó endilega að setja þetta í samband við þátttöku Kortsnojs þar sem kerfið væri mjög þungt i vöfunt hjá Rússum. Czeshkovsky er núverandi Sovét- meistari i skák og Vasjúkov hefur tvívegis teflt hér á Reykjavíkurmóti. Árið 1966 varð hann í 2. sæti á eftir Friðrik Ólafssyni og árið 1968 varð hann efstur ásamt landa sínum Taimanov. Verði af þátttöku Rússanna og Viktors Kortsnojs á Reykjavíkur- mótinu þá yrði það mikil tímamót þvi Rússar hafa jafnan sniðgengið þau mót er Kortsnoj hefur teflt á síðan hann flúði land. -GAJ. iólalegt á Eskifirði — En viðbúið að margir hafi fitnað Ekki er annað vitað en allir Esk- firðingar hafi átt gleðileg jól. Auðjörð var á aðfangadag en er hátíðin gekk í garð tók að snjóa i blanka logni. Gerði snjófölið allt jólalegra. Messað var bæði á aðfangadag og jóladag og var kirkjusókn á Eskifirði góð eins og ætið um hátíðar. Mikið var um jólafjölskylduboð og viðbúið er að margir hafi fitnað. Að sögn verzlunarstjóra á Eskifirði var mikið verzlað enda mikið um jóla- gjafir að venju. M.a. gefa flestir at- vinnurekendur starfsfólki sínu gjafir á jólum. -Regina. 608 ný krabbameinstil- felli á landinn 1978 — krabbamein í blöðruhálskirtli algengast hjá körlum en brjóstakrabbamein meðal kvenna 608 ný krabbameinstilfelli voru skráð hér á landi á árinu 1978 og er skiptingin milli kynja sjúklinga jöfn, að því er segir í nýjasta hefti Frétta- bréfs um heilbrigðismál sem Krabba- meinsfélag íslands gefur út. Algengast hjá körlum var krabba- mein i blöðruhálskirtli (49), næst i maga (37) en lungnakrabbamein var i þriðja sæti, 27 tilfelli. Meðal kvenna var brjóstakrabba- mein lang algengast eða 74 tilfelli, en i öðru og þriðja sæti var krabbamein í maga og lungum, 25 tilfelli af hvoru. Á 25 árum sem uppgjör krabba- meinsskráningar hér á landi nær tii hafa verið greind alls 10.885 krabba- mein, 5736 hjá konum og 5149 hjá körlum. Ef umræddu 24 ára tímabili er skipt í fjögur sex ára tímabil kemur í Ijós að aukning tilfella milli fyrsta og siðasta tímabilsins er 22.8% hjá konum á tæpum tveimur áralugum eða úr 201 tilfelli í 247. Hjá körlum hefur aukningin orðið 8.5% eða úr 227 tilfellum i 246.3 á umræddu tímabili. Ef litið er á þróun algengustu krabbameinstilfella hjá konum hefur mest aukning orðið á krabbameini í lungum, eða 135% aukning frá fyrsta 6 ára tímabilinu (1955—1960) tíl'sið- asta tímabilsins (1973—1978). Krabbameinstilfellum i skjaldkirtli hefur fjölgað um 117% og krabba- meinstilfellum í legholum hefur fjölg- að um 110%. Hins vegar hefur krabbameinstilfellum í maga fækkað um48% og í leghálsi um 31%. Hjá körlum hefur krabbantcins- tilfellum í blöðru fjölgað um 117% niilli umræddra timabila og i lungum unt 89%. Krabbameinslilfellum i maga hefur hins vegar fækkað um 53%, segir i fréttabréfinu. -A.Sl. Kpflavík ■ JÓHANN EINVARÐSS0N HÆTTIR SEM BÆJ ARSTJÓRI ,,Ég held það komi ekki annað til greina en að ég láti af bæjarstjóra- starfi í Keflavík og það er svona verið að ræða málin hvenær af því verður,” sagði Jóhann Einvarðsson- bæjarstjóri og nú nýkjörinn þing- maður Reykjaneskjördæmis. „Það er ekki hægt að þjóna Iveimur herrum, þegar báðir eru heimtufrekir,” bætti hann við. Jóhann hefur verið bæjarstjóri í Kefiavík siðan i septembermánuði » Jóhann Kinvarösson á Alþingi (ásamt tveimur öflrum nýjum Framsóknar- þingmönnum, Guðmundi Bjarnasyni og Davíö Aðalsteinssyni): Nú lætur hann brátt af störfum bæjarstjóra í Keflavík, því enginn „þjónar tveimur herrum”. DB-mynd: Hörður. / stillu milli élja Það hefur verið fallegt um að Irtast við Reykjavíkurhöfn undanfarna morgna, þegar stillt hefur verið milli ólja og Ijósadýrð skipaflotans nýtur sín i spegilsléttum sjónum. Hér eru það varðskipin okkar, sem skarta sinu fegursta jólaljósaflóði. DB-mynd: Sv. Þorm. að kjósa hann til annars kjörtímabils þar sem bæjarstjóra er samkomulag varð um að hann hyrfi til bæjar- stjórastarfa í Keflavík. „Hitaveitan er stærsta málið sem komizt hefur í framkvæmd i Keflavik á þessum árum mínum í stól bæjar- sljóra. Hún er mesta búbótin fyrir bæ og bæjarbúa. En þetta er ekkert 'eins manns verk, heldur verk ótal manna og ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að vera með í að vinna að þeim málum,” sagði Jóhann. „Annað stórmálið er sá áfangi að Keflavik hefur eignazl sitt bæjar- land. Það er lika margra manna verk.” Jóhann kvaðst vera sáttur við þá breytingu sem nú verður á hans starfshögum. Bæjarstjórastarf kvað hann skemmtilegt starf, en í raun lyki því aldrei. „Þetta er allt áfangavinna. Þegar lokið er malbikun götu eða á- fangabyggingu við skóla opnast augu manna fyrir að önnur gata er ómalbikuð og annan skóla þarf að stækka. í Keflavík verður miklum á- fanga náð, t.d. þegar íþróttahúsið kemst í gagnið 1980,” sagði Jóhann. -A.St. 1970. Áður var Jóhann bæjarstjóri á ísafirði 1966 til 1970 og var nýbúið ',9** * _««* ■.. *•*

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.