Dagblaðið - 28.12.1979, Side 9

Dagblaðið - 28.12.1979, Side 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1979. 9 Erlendar fréttir REUTER Washington: Heimilt að vísa írönum úr landi Áfrýjunardómstóll í Washington úr- skurðaði í gær að heimilt væri að visa írönskum stúdentum frá Bandarikjun- um hefðu þeir ekki fullgild vegabréf. Þar með var hrundið fyrri dómi um að slíkt mætti aðeins gera ef það gilti jafnt yfir alla erlenda ríkisborgara. Brottvísun íranskra stúdenta er einn liður i aðgerðum bandarísku stjórnar- innar vegna töku bandaríska sendiráðs- ins í Teheran og gíslanna sem þar eru. HALDIN JÓLÍ HERFÖR- INNI Kristnir menn halda jól á flestum stöðum og hvernig sem aðstæður eru. Þessi mynd er tekin í Beirút. Þar eru palestinskir skæruliðar sem komið hafa upp jólalré við stöðvar sínar. DB-mynd Robert Mazmanian. Danmörk: Heróínsmygl fyrír 1,5 milljarð króna — skipulagt af hópi erlendra manna undir forustu nokkurra Filippseyinga Hópur útlendinga i Danmörku, einkum Filippseyingar, hefur viður- kennt að hafa smyglað eiturlyfinu heróini inn i landið. Er þarna um að ræða magn sem að söluverði er jafn- virði 1,5 milljarðs íslenzkra króna. Hefur þetta verið gert á árinu sem er að liða. Auk þess hafa mennirnir viðurkennt að hafa reynt að smygla heróíni fyrir 750 milljónir til Dan- merkur. Málið tengist til annarra landa, þar á meðal Vestur-Þýzkalands, Hol- lands, Belgíu og Thailands. Fikni- efnalögreglan danska telur að einhver hluti eiturefnisins hafi verið fluttur til Hollands og seldur þar. Er málið kom fyrst í hendur lög- reglunnar i nóvember síðastliðnum fundust 300 grömm af heróíni en þá uppgötvaðisl að mun stærri sending væri á leiðinni. Næsta skref var sligið fyrir nokkrum dögum, og þá voru þrettán útlendingar handteknir og í fórum þeirra fundust 4,5 kg af heróíni. Af þessum þreltán sitja tíu i fangelsi i dag. Danska lögreglan telur að fleiri en hinir handteknu séu viðriðnir málið og að ýmsir þeirra séu uian landamæra Danmerkur. Nokkrir hinna handleknu hal'a viðurkennt þátt sinn í ntálinu en aðrir hafa neitað öllum sökunt. Sameinuðu þjóðirnar: SÝRLENZKISENDI- HERRANN HÆTTIR — styður friðarviðleitni ísraels og Egyptalands Sendiherra Sýrlands hjá Sameinuðu þjóðunum hefur tilkynnt afsögn sína og auk þess að hann styðji viðleitni Sadats Egyptalandsforseta til að ná fullum friði við ísrael. Sendiherrann sakaði stjórn Assads í Sýrlandi um spillingu og-óstjórn. Segist hann ætla að stofna til stjórnmálasam- taka með aðsetri i Evrþu til að vinna gegn stjórn landsins. Fyrstu viðbrögð Sýrlandsstjórnar voru þau að tilkynnt var að sendiherr- ann hefði verið kallaður heim fyrir að hafa farið þvert gegn vilja stjórnar- innar i utanrikismálum. Stjórnin i Damaskus lofaði í haust að vinna gegn spillingu og auk þess endur- bæta efnahag landsins. Veruleg óánægja er í Sýrlandi. Tilkynnt hefur verið að eitt hundrað og tuttugu manns hafi fallið í átökum þar i landi ásiðustu sexmánuðum. Sameinuðu þjóðirnar: 139 atkvæða- greiðslur um einn fuiitrúa Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna heldur í dag áfram að reyna að ná löglegri kosningu á fulltrúa Suður- Ameriku í ráðið fyrir næstu tvö árin. í gær fóru fram fjórtán atkvæða- greiðslur og eru þær þá samtals orðnar 139. Hefur aldrei áður orðið að gera svo margar atlögur að kjöri fulltrúa í Öryggisráðið. Árið 1959var kosið 51 sinni á milli fulltrúa Tyrk- lands og Póllands. Undanfarin ár hefur kjör fulltrúa einstakra heimshluta farið friðsam- lega fram og raunar verið um að ræða tilnefningu viðkomandi ríkja. Nú eru það fulltrúar Kúbu og Kólombíu, sem deilt er um en áður sat fulltrúi Bolívíu fyrir hönd Suður- Ameríkuríkja í Öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna. Hver fulltrúi þarf tvo þriðju hluta atkvæða. Hingað til hefur Kúba fengið 80 til 85 atkvæði en Kólómbía 59 tii 65 atkvæði. Þökkum öllum okkar ágœtu viðskiptamönnum ánœgjuleg við- skipti um áraraðir. Það er von okkar að útgáfuflokkar Þjóó- sögu hafi orðið öllum í fjölskyldunni fróðleiksbrunnur og bœk- urnar séu heimilisprýði. Jafnframt óskar útgáfan öllum viðskiptamönnum sínum gleði- legs árs og farsœldar á komandi tímum. Landsleikur f handknattleik ÍSLAND - BANDARÍKIN í KVÖLD Ólafur Jónsson, f yrirliði. í Laugardalshöll kl. 20.30. Forleikur hefst kl. 19 í Laugardalshöll. ÁFRAM ÍSLAIMD HSI Landsliðið leikur í PUMA Ingólfur Óskarsson, sportvöruverzlun Klapparstíg.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.