Dagblaðið - 28.12.1979, Page 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1979.
INNLENDCIR RNNRLL '79
Janúar
„Hæfir og góðviljaðir forystumenn
munu leiða okkur út úr verðbólgunni,”
sagði forseti íslands meðal annars í ára-
mótaávarpi sínu í fyrra. Ekki hefur sá
spádómur hans rætzt enn og núna í árs-
lok hefur verðbólgudraugurinn marg-
umtalaði aldrei verið magnaðri.
Allt tiltækt lið var við mokstur í upp-
hafi ársins og var snjómagnið á höfuð-
borgarsvæðinu það mesta síðan met-
árið 1952. Snjómoksturinn kostaði 4
milljónir á dag í Reykjavík einni.
Á ritstjórn DB barst sýnishorn af
lagmeti því sem landinn hafði veriö að
senda til Sovétmanna. Innihald dós-
anna virtist hafa gufað upp og í ljósi
þess voru tugmilljóna skaðabótakröfur
Sovétmanna ekki með öllu óskiljan-
legar.
Jesús fái
íslenzkan þegnrétt
' Magnús Kjartansson fyrrv. ráðherra
taldi tímabært að Jesús Jósefsson fengi
íslenzkan þegnrétt og var þar með
koniið nýtt innlegg í umræðuna um
Félaga Jesú sem náði talsvert fram á
árið sem er að líða. Magnús lét þó ekki
þar við sitja heldur mótmælti hann
harðleg veitingu forstjóraembættis
Tryggingastofnunar rikisins og taldi
hana lögbrot þar sem gengið hefði
verið framhjá fötluðum manni. í
Magnúsi hafa fatlaðir menn eignazt
skeleggan talsmann og hafa talsverðar
umræður orðið um kjör þeirra og að-
búnaðá árinu.
Vísitöluróninn reyndist kosta sam-
félagið 4 milljónir á ári og er það hugg-
un harmi gegn að þessari stétt manna
hefur fækkað talsvert á árinu.
Andvökureikningar
Stjórnarráðið varð 75 ára og bauð
blaðamönnum til sin af þvi tilefni.
Einna mesta athygli þar vöktu and-
vökureikningar Ólafs Ketilssonar er
hann sendi samgönguráðuneytinu.
Þursaflokkurinn sigraði í vinsælda-
vali DB og Vikunnar og gerði storm-
andi lukku á velheppnaðri Stjörnu-
ntessu. „Við þurfum 40 þús. manns,”
sagði Friðfinnur í Háskólabíói unt
kvikmyndina Grease þar sem kappinn
Travolta lék aðalhlutverkið, og hann
brást ekki Friðfinni þvi myndin sló öll
aðsóknarmet. Gat Friðfinnur því ró-
legur setzt í helgan stein, sem hann og
gerði.
Æðri máttarvöld
sýndu ekki
samstöðu
Æðri máttarvöld sýndu ekki sam-
stöðu á reyklausa deginum og sendu
okkur þoku og sudda í stað hreins lofts
og fljúgandi furðuhlutir sáust á
Norðurlandi.
Talsverðar deilur urðu innan fyrir-
tækisins Hafskips i byrjun árs en þær
leystust að lokum þannig að allir virtust
sáttir. Sömu sögu var að segja af Kjar-
valsstöðum en loft virðist enn lævi
blandið innan Flugleiða.
Breiðholt hf. var úrskurðað gjald-
þrota og Olíumöl hf. hefur rambað á
barmi gjaldþrots allt þetta ár. Punds-
málið fyrntist i dómskerfinu og var það
sama kerfi talsvert gagnrýnt á árinu,
ekki sízt af Vilmundi Gylfasyni, sem
siðar komst í „möppurnar” langþráðu
svo að um munaði.
„Þetta er króniskur höfuðverkur,”
sagði Tómas Árnason fjármálaráð-
herra um viðræður stjórnarflokkanna
um efnahagsmál. Ekkert lát hefur
orðið á þeim höfuðverk síðan.
Glæfralegt póstrán var framið í
Sandgerði og komst ræninginn undan
með 300 þús. krónur.
Febrúar
Dagblaðið er annað stærsta blað
landsins. Sú var niðurstaða könnunar
Hagvangs á fjölmiðlamarkaði. Sam-
kvæmt þessari könnun lesa 56%
þjóðarinnar Dagblaðið. Morgunblaðið
er lesið af 68% þjóðarinnar, Vísir hefur
45% lesningu, Tíminn 35%, Þjóðvilj-
inn 23% og Alþýðublaðið 8%. Er þessi
úrslit lágu fyrir hætti Vísir að auglýsa
sig sem mest lesna síðdegisblaðið.
„Skilið bókaverðinum,” var krafa
nemenda i Kennaraháskóla íslands,
sem fóru í kröfugöngu í þeim tilgangi
að bæta úr ófremdarástandi sem þeir
Mikil snjóþyngsli voru i janúartnánuði f höfuðborginni.
mánuð. „Heiðarlegast væri að Ólafur
bæðist lausnar,” sagði Vilmundur og
kvaðst hafa verið pólitiskt trúlofaður
Ólafi í hálfan mánuð. „Skerum þá ekki
niður úr gálganum,” sögðu kratar um
komma og hinir síðarnefndu svöruðu
fyrir sig: „Þeir sitja eins og páfagaukar
á priki.” Að lokum tókst samkomulag
milli stjórnarflokkanna og samkvæmt
því átti verðbólgan að verða 33—36%
og „samningspakki” í kaupbæti. Al-
þýðuflokksmenn gerðu þó fyrirvara við
samkomulagið.
Landsins forni fjandi var mættur
fyrir Norður- og Austurlandi í öllu sínu
veldi og á sama tíma dunaði diskódans-
inn sem aldrei fyrr á diskótekunum
fyrir sunnan.
Aprfl
Óhugnanlegt morð var framið að
Hverfisgötu 34 er 37 ára gamall maður
var skorinn á háls. Þá var það upplýst
að dánartala í umferðarslysum væri
hlutfallslega hærri hér á landi en í
Bandaríkjunum, og að umferðarslys
kostuðu íslenzku þjóðina 7—8 millj-
arða árlega.
Kraftaverkamaður
lætur af störfum
Guðmundur Magnússon, prófessor i
viðskiptadeild, var kjörinn rektor Há-
sögðu ríkja í skólanum. Konur I fisk-
iðnaði voru einnig óánægðar og varð
þá til nýyrðtð refsibónus.
Viðbúinn kreppunni
Maður einn hafði staflað upp 2 ára
matarleifum í ibúð sinni er nágrann-
arnir kvörtuðu undan ólykt. Eflaust
hefur maðurinn átt von á kreppu og því
talið rétt að birgja sig upp, og ekki
þurfti lengi að bíða kreppunnar. „Ný
oliukreppa er skollin á,” sagði i DB
daginn eftir og bensín hækkaði um
30% á einni viku. Ekkert lát hefur
orðið á bensinhækkunum síðan og er
lítrinn í árslok kominn í 370 kr. en var á
181 kr. á þessu timabili.
Milljónatugir af íslenzkum banka-
reikningi höfðu verið fluttir frá Finans-
banken til Luxemburg þegar íslenzk
skattayfirvöld leituðu eftir upplýsing-
um þar. íslenzkum yfirvöldum hefur
síðan ekki tekizt að fá neinar upplýs-
ingar um þessa reikninga í Luxemburg.
Háhyrningar
drepast
Tveir háhyrningar drápust úr kulda í
Sædýrasafninu sem síðan hefur sætt
ntargs konar gagnrýni. Læknaráð
Landspítalans sakaði geðlækna um að
hafa leyst húsnæðismál sin með þrýsti-
hópaaðgerðurn.. Taldi Læknaráðið að
aðgerðir geðlæknanna hefðu komið
niður á öðrum deildum spítalans.
„Ég tek þessu með jafnaðargeði,”
sagði Ólafur Jóhannesson um áfram-
haldandi ágreining í rikisstjórninni.
Nokkrir flokksbræður Ólafs virtust
ekki í eins miklu jafnvægi og foringi
þeirra er þeir lögðu til að skoðanakann-
anir yrðu takmarkaðar. Síðari hlutaárs
fór framsóknarmönnum að vegna bet-
ur í skoðanakönnunum og hljóðnuðu
þá þessar gagnrýnisraddir.
Bylting í Náttúru-
lækningafélaginu
Bylting var gerð i Náttúrulækninga-
félagi Reykjavíkur. Tvo aðalfundi
þurfti til að koma byltingunni i gegn og
á síðari fundinum kom til handa-
lögmála eins og vera ber þegar bylting
er gerð.
Engin ævikvöldsangurvætð var yfir
menningarverðlaunum DB að mati for-
manns Bandalags íslenzkra listamanna
enda komu verðlaunin í öllum tilfellum
í hlut ungs fólks.
Marz
Smygluð kjötvara fannst í 6 verzlun-
unt i Reykjavík og reynt var að troða
logandi kyndli inn í sendiráð Kina. Á
timum jafnréttis kynjanna þarf engum
að koma á óvart að kyndilberinn var
kvenkyns.
Fjölmiðlar virtust hafa það á tilfinn-
ingunni að eldgos væri á næsta leiti og
var sérstaklega búizt við hraungosi við
Kröflu. Einnig töldu menn sig hafa
orðið vara við sjávargos út af Reykja-
nesi. Þegar málið var athugað var ekk-
ert slíkt gos á ferðinni og Krafla lét
heldur ekki segja sér fyrir verkum og
ekkert varð úr gosi hennar.
Borgardómur tók
létt á hassinu
Borgardómur úrskurðaði að ómögu-
legt væri að reka menn úr starfi fyrir
Egill Ólafsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir voru aðalstjörnurnar á Stjörnumessu Dag-
blaðsins og Vikunnar.
hassneyzlu. Skömmu siðafi.v9[9.sJö ís-
lendingar handteknir í Kaupmanna-
höfn vegna aðildar að einhverju
stærsta fíkniefnamáli sem komið hefur
upp í Danmörku. Hvort eitthvert sam-
barid hefur verið þarna á milli verður
ekki fullyrt hér.
Þrír Eyjamenn og Reykvíkingur
drukknuðu er vb. Ver VE 200 fórst við
Eyjar. Tveimur skipverjum var
bjargað. Tveir átján ára piltar fórust í
snjóflóði á Esju en sá þriðji komst af.
Drengir nokkrir brutu upp vegg á
birgðageymslu ÁTVR við Ártúns-
höfða, sem er í næsta húsi við lögreglu-'
stöðina. Voru þeir að bera út vínbirgðir
er vegfarandi gerði lögreglunni viðvart.
Um svipað leyti var maður einn kærður
fyrir að hafa nauðgað tveimur konum,
báðum í einu að því er mátti skilja af
fréttum.
Bretinn Mickie Gee setti heimsmet í
plötusnúningi þann 12. marz í Óðali og
hafði þá verið 7 vikur samfleytt við
fóninn.
Trúlofun Ólafs Jó
og Vilmundar
„Allt bendir til kosninga,” lét Lúð-
vík Jósepsson hafa eftir sér þegar erjur
voru með almesta móti á „kærleiks-
heimili” Ólafs Jóhannessonar þennan
skóla íslands. Siðar á árinu tók fráfar-
andi háskólarektor, Guðlaugur Þor-
valdsson, við embætti ríkissáttasemj-
ara. „Kraftaverkamaðurinn” Kristinn
Finnbogason lét af störfum fram-
kvæmdastjóra Tímans, og var sagður
hafa skilið þar eftir sig 90 milljón
króna skuldahala. Hann gerðist síðan
framkvæmdastjóri Iscargo.
Áframhaldandi ókyrrð var innan
Flugleiða og efndu flugmenn hjá Flug-
félagi Islands til tveggja sólarhringa
verkfalls. Siðar i mánuðinum hófst
verkfall á farskipum og náði það til 450
yfirmanna á 60 skipum. Líkaði far-
mönnum illa hótaqir sumra ráðherra
um að gripa inn i deiluna með lagasetn-
ingu og höfðu i hótunum á móti um að
sækja dómsmálaráðherra með lög-
regluaðstoð á samningafundi.
Skákmenn í Búnaðarbanka íslands
tefldu samfleytt i 25 klukkustundir og
settu íslandsmet. Mótframboð kom
fram gegn Einari S. Einarssyni á aðal-