Dagblaðið - 28.12.1979, Qupperneq 26

Dagblaðið - 28.12.1979, Qupperneq 26
30 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1979. ERLENDUR ANNflLL '79 uðu honum og fór nú að færast mikið fjör í leikinn í íran. Sama dag skutu óþekktir menn fyrrum lögreglustjóra i Aþenu í Grikklandi til bana. Hafði maðurinn þjónað undir herforingja- stjórn þar en hún var vægast sagt heldur óvinsæl af almenningi. Stal 68 kflógrömmum af úrani Maður einn var handtekinn í Norður-Karólínufylki í Banda- ríkjunum og sakaður um að hafa stolið 68 kílógrömmum af úrani, sem hann hafði ætlað að nota til fjárkúgunar. Lögreglan náði hinu geislavirka efni af manninumaftur. Grænlendingar urðu fyrir miklum búsifjum vegna áróðurs gegn veiðum á selum og selkópum. Danski Grænlandsmálaráðherrann gerði tilraun til að aðstoða þá við sölu á skinnunum. Reyndar fengu Grænlendingar nágrannar vorir heima- stjórn á árinu eins og nánar verður getið síðar. Bianca Jagger, fyrrum eiginkona Mick Jagger söngvara i Rolling Stones, var mikið í fréttum á árinu. Hún fór fram á skilnað við mann sinn og vildi frá 12,5 milljónir dollara úr búinu. Einnig vakti hún athygli er sandinistar börðust við þjóðfrelsisliða Somoza í heimalandi hennar Nicaragua. Beitti hún sér töluvert í hjálparstarfi fyrir bágstadda landa sina sem áttu um sárt að binda eftir borgarastyrjöld þar. Hagsmunaaðilar i Vestur-Evrópu, sérstaklega Belgíu og Frakklandi, voru stöðugt á verði um málefni Afríku- ríkisins Zaire. Hagsmunir þar blandast mjög kopar- og kóboltnámum í Shaba- héraði (áður Katanga). Árið 1978 var gerð þar innrás en ekkert varð af henni nú. Belgar sendu þangað fallhlífarliða snemma árs og þá undir því yfirskyni að þeir ættu að stunda þar æfingar. Vegna verkfalls sorphreinsunar- manna í London tóku rottur að gera sig heldur heimakomnar á ruslahaugum í miðborginni. Sorphreinsunarmenn brezkir voru i stöðugum bardaga við stjórn verkamannaflokksins um kauphækkanir og vildu fá meira en hinar lögboðnu 5% hækkanir. í Bretlandi fór sem víðar að hinir launa- lágu fengu minnstar kauphækkanir. Síðbúnar fregnir af Eroll Flynn og Tyrone Power Skyndilega spruttu upp síðbúnar fregnir af afrekum bandarísku kvik- myndahetjanna, þeirra Errol Flynn og Tyrone Power. Var borið upp á þá látna að hafa haft kynmök saman í ferð einni, að ritara Flynns ásjáandi. Olli þetta miklu fjarðafoki og gekk kona undir konu hönd til að mótmæla þessu. Ekki bötnuðu olíumálefni Vestur- Evrópu og Bandaríkjanna við nær algjöra framleiðslustöðvun í fran eftir komu Khomeinis þangað. Hann rak Baktiar forsætisráðherra fljótlega frá völdum og í stað hans kom Bazargan sem reyndar litlu fékk ráðið fyrir ofríki klerksins. Sagði hann síðan af sér em- bætti eftir að stúdentarnir írönsku tóku bandaríska sendiráðið í Teheran her- skildi og tóku starfsmenn þar í gíslingu hinn 4. nóvember. Þáttur Idi Amins Ugandaleiðtoga Þá er komið að þætti Idi Amins í annáli ársins 1979. Hann hefur þjakað íbúa Uganda árum saman en loks brast þolinmæði þjóðarleiðtoga í Afríku. Þeir töldu ekki lengur fært að bera þennan kross. Sífellt var klifað á því að stjórn hans á landinu væri til skammar og hneisu fyrir allan hinn svarta kyn- stofn. Það var Julius Nyerere forseti Tan- saníu, sem tók að sér að losa menn við Amin. Her Tansaniu ásamt nokkrum sveitum landflótta Uganda- manna réðst inn í riki Idi Amins. Reyndist her hans einskis nýtur og sótti innrásarherinn fram án mikillar and,- stöðu í áttina til höfuðborgarinnar Kampala. Idi Amin var mestur í munn- inum að venju. Sagðist aldrei mundu —Óvissa með keisarann en bjartsýni með nýja stjórn Baktiars í fran. — Þannig hljóðaði ein fyrirsögnin í DB hinn annan dag janúarmánaðar síðast- liðins árs. Sú bjartsýni varð sér til skammar. Öll þróun mála í íran virðist ætla að verða í hörmungarátt og fátt sem bendir til þess að þar beri gæfan lands- menn fram á við á næstunni. Khomeini trúarleiðtogi virðist ekki fær um að ráða þeim gangi mála, sem hann setti þó óneitanlega af stað. Ljóst er að fyrri stjórn keisarans landflótta hefur ekki verið nægilega góð en nú virðist þó keyra um þverbak í íran og raunar ekki eftir neinu að biða þar um slóðir nema hvernig ósköpunum linni og hvenær. Aðeins verður að vona að afleiðingarnar verði sem léttbærastar fyrir irani sjálfa og þá sem inn í á- tökin tengjast. Málefni írans voru mál málanna á árinu sem er að líða. Kannski voru þau það vegna þess að þar virðist stefnt hraðbyri út úr tuttugustu öldinni og þar er ekki farið að neinum þeim leikreglutp, sem gilt hafa i alþjóða- samskiptum um langt skeið. Nú, þegar þessi annáll erlendra frétta ársins 1979 er skrifaður sitja um það bil fimmtíu Bandaríkjamenn i gílsingu í byggingu bandaríska sendi- ráðsins í Teheran. Þar hafa þeir fengið að dúsa síðan 4. nóvember síðastliðinn og litlar horfur á að þeim verði sleppt. Við munurn drepa á nokkur atriði i gangi mála í Íran eftir því sem annállinn teygir sig fram eftir árinu en snúum okkur að öðrum og ánægjulegri fregnum í janúarmánuði. Flóttamenn frá Kampútseu flykktust inn I Thailand og siðari hluta árs var lagt i mikið starf á vegum alheimshjálparstofnana við að fæða þetta fólk og kiæða auk þeirra sem enn voru innan landamæra Kampútseu. Ný stjórnarskrá á Spáni Ný stjórnarskrá fyrir Spán gekk í gildi hinn 1. janúar, þar með var Spánn kominn í tölu lýðræðisríkja Vestur- Evrópu. Þrátt fyrir nokkurn óróa þar er ekki annað að sjá en mál ætli öll að snúast þar í lýðræðisátt nú fjórum árum eftir dauða Francos einræðis- herra þar frá 1938. Verkfall þrjátíu þúsund vörubif- reiðarstjóra i Bretlandi hófst hinn 3. janúar og olli strax vanda. Barnaárið hófst formlega með mikilli popphátíð sem haldin var í sal allsherjarþingsins i New York. Þar komu ýmsar toppstjörnur popp- heimsins fram og má m.a. nefna The Bee Gees, Rod Stewart, Donnu Summer, Abba, Olivia Newton John, Andy Gibb, Kris Kristoferson og eigin- konu hans Rilu Coolidge. Þær fregnir bárust aftur á móti i desember að þau hjón væru nú að skilja. Sandinistar náðu ölíum völdum I Nicaragua og ráku Somoza og ætt nans ira voidum. A myndinni sést einn liðsmanna skæruliða hvila sig ásamt kunningja sinum, páfagauk. Var með 4,4 promill í blóðinu og lifði Dani einn mældist með 4,4 prómill áfengis í blóði sínu. Þótti það með ólíkindum þar sem venjulegt fólk væri nær dauða en lífi í þannig ásig- komulagi og þá í bókstaflegri merk- ingu. Maðurinn fullyrti að hann hefði aðeins drukkið einn pilsner áður en hann settist undir stýri á bifreið sinni. Herinn lokaði flugvellinum í Teheran í lok janúar skömmu eftir að keisarinn fór úr landi og var sagður vera að fara í leyfi. Samningar ríkisstjórna Noregs og Svíþjóðar um sameiginlegan rekstur Volvo bifreiðaverksmiðjanna voru komnir á lokastig er allt fór upp í loft og norska stjórnin riðaði til falls vegna málsins. Málið er í salti og alls óvíst um framhald þess. Hinn 1. febrúar kom sjálfur Kho- meini trúarleiðtogi til Teheran úr út- legð sinni í Erakklandi. Milljónir fögn- Billy Carter forsetabróðir endaði í afvötnun Billy Carter, bróðir Jimmy forseta Bandaríkjanna, var nokkuð í fréttum á árinu. Fyrri hlutann fyrjr ótæpilega bjórdrykkju og háværar yfirlýsingar um það sem honum kom ekki við. Hann vingaðist við arabahöfðingja i Líbýu en varð það á að sjást pissa út undir vegg eitt sinn er hann tók á móti þeim. Þykir það óhæfa vestur í Bandaríkjunum. Var Billy tekinn í karphúsið af ættingjum og sendur í afvötnun. Þaðan kom hann nýr maður og sagðist nú sjá að hann hefði hagað sér illa. Billy hafði einnig safnað yfirvararskeggi og glöggir fjölmiðlamenn upplýstu alheim um að forsetabróðirinn hefði fitnað. Billy varð fyrstur manna til að uppgötva að bróðir hans ætlaði ákveðið aftur í framboð i embætti Bandarikjaforseta. Honum varð litið inn í fataskáp stóra bróður og sá að þar voru fernir glænýir alklæðnaðir hangandi. Réð sautján bana á elliheimilinu . Þau ósköp urðu í Sviþjóð við byrjun ársins að ungur hjúkrunarmaður á gamalmennaheimili játaði að hafa ráðið sautján vistmanna bana með eitri. Sagðist hann ekki hafa þolað að sjá fólkið kveljast í tilgangsleysi og vildi pilturinn nefna verknað sinn líkn- armorð. Hann var siðar á árinu dæmdur ósakhæfur og úrskurðaður til vistar á geðveikrahæli. Flóttamenn frá Víetnam, aðallega af kinversku bergi brotnir, voru mjög í fréttum. Flúðu þeir með leyfi yfirvalda, aðallega sjóleiðis, á alls kyns fleytum. Lögregla Oslóborgar komst í feitt við lok febrúar er hún hirti alls kyns klámefni fyrir 700 milljónir hjá helzta klámkóngi þar í landi. Ekki er Ijóst hvað gert var við hið upptæka góss. Óáran í íran á árinu og hungur í Kampútseu

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.