Dagblaðið - 28.12.1979, Blaðsíða 32
Með eigið sjónvarpskerfi f Krummahólum 4:
Sjónvarpsdagskráin að
óskum íbúanna sjálfra
og stofnkostnaður innan við 30 þusund á íbúð
ptta innnnhnssinnvarn okkar leet siónvarnslofnet á finlhvlis- skrána á kvöldin. efti
.,Þetta innanhússjónvarp okkar
hefur vakið almenna gleði íbúanna
hér,” sagði Haukur Hauksson i
Krummahólum 4 í samtali við DB í
gær. íbúar í fjölbýlishúsinu
Krummahólum4 í Breiðholti tóku sig
til og keyptu i sameiningu mynd-
segulbandstæki og geta nú sent út
myndir og skemmtiefni inn á sjón-
varpstækin í húsinu. Útsendingin er
tengd inn á tækin í gegnum sameigin-
legt sjónvarpslofnet á fjölbýlis-
húsinu.
„Það er u.þ.b. hálfur mánuður
síðan við fengum þetta tæki,” sagði
Haukur. Húsfélagið keypti það og
magnara að auki. Allar íbúðirnar
taka þátt í þessu eða 32 og kostnaður-
inn er rétt rúm ein milljón króna.
Kostnaðurinn verður því aðeins 26
þúsund krónur á hverja íbúð.
Nú lengjum við sjónvarpsdag-
skrána á kvöldin, eftir að sjónvarpið
hættir að senda út. íbúarnir geta þvi
horft á „late show” í tækjum sínum.
Þá eru fimmtudagskvöldin upplögð
til myndasýninga og siðan sunnu-
dagar fyrir börn meðan beðið er eftir
Stundinni okkar.
Myndin á tækjunum er skýr og
gefur ekkert eftir útsendingu sjón-
varpsins. Það eina sem okkur vantar
er að komast i samband við
dreifingaraðila á myndum. í Banda-
ríkjunum eru slík dreifingarfyrir-
tæki, sem dreifa sex nýjum myndum
á viku og er það efni bæði ódýrt og
vandað. Mjög gott væri að komast í
samband við slíkt fyrirtæki.
Við teljum okkur ekki þurfa nein
leyfi Landsímans vegna þessara
sýninga. Þetta er lokað kerfi í fjöl-
býlishúsinu, sem aðrir ná ekki,”
sagðiHaukur. -JH.
Talsverðar skemmdir urðu á vélunum eins og myndin sýnir.
DB-mynd S.
Árekstur tveggja Fokkera á Reykjavíkurflugvelli
Tvær Fokker vélar Flugfélags
íslands skemmdusl talsvert er þær
lentu i árekstri á Reykjavikurflugvelli
laust fyrir kl. lOímorgun.
Að sögn Sverris Jónssonar stöðvar-
stjóra var önnur vélin að fara af stað er
bremsurnar biluðu og rann hún á vél
sem stóð fyrir framan. Miklar
skemmdir urðu á stélinu á síðarnefndu
vélinni og skrúfan skemmdist talsverl á
hinni. Vélin sem var að fara af stað átti
að fara til Vestmannaeyja og voru
nokkrir farþegar i henni og sluppu þeir
allir ómeiddir. Vélarnar sem hér er um
að ræða eru FLM og FLP. Orsakir þess
að bremsurnar gáfu sig eru ókunnar.
íslenzkir skákmenn
mjög á faraldsfæti
Islenzkir skákmenn eru mjög á far-
aldsfæti þessa dagana og eru ekki
færri en 6 þeirra crlendis á skákmót-
um.
,Páll Þórhallsson, 15 ára, einn af
Norðurlandameisturum Álftamýrar-
skóla í grunnskólakcppninni, tellir á
opnu unglingamóti í Skien í Noregi.
Keppendur eru 40 frá 12 löndum. I I.
umferð i gær tefidi Páll við Polo frá
Noregi og gerðu þeir jafntefli í 30
lcikjum.
Jóhann Hjartarson teflir á Evrópu-
meistaramóti unglinga 20 ára og
yngri. Er Jóhann næstyngsti kepp-
andi mótsins, aðeins 16 ára. Jóhann
tefidi i gær við Buchi frá Mónakó og
sigraði Jóhann í um 40 leikjum.
Hann hefur nú hlotið 3 vinninga af 7
mögulegum. Efstir eru tveir Rússar
með 6 vinninga. Jóhann sagði i sím-
tali við ÐiB i morgun að þetta mót
væri gifurlega sterkt. í dag mætir
hann stighæsta manni mótsins, sem
er frá Tékkóslóvakiu.
Elvar Guðmundsson tekur þátt í
Geir tekur að sér að reyna stjórnarmyndun:
— sex keppa
erlendis um
þessar mundir
— og gengur
bærilega
unglingamóti i Hallsberg i Sviþjóð og
Haukur Angantýsson í Rilton Cup
mótinu í Stokkhólmi. Bæði þessi mót
hófust í gær en DB tókst ekki að ná
sambandi við þá félaga. Þá halda þeir
Jón L. Árnason og Margeir Péturs-
son til Prag i dag þar sem þeir taka
þátt ísterku alþjóðlegu skákmóti.
- GAJ
STEINGRIMUR SEGIR ENN NEI
— við stjórnarsamvinnu við Sjálfstæðisflokkinn
Sjálfstæðismenn voru eftir fund
þingflokks og miðstjórnar i gær sam-
mála um að Geir Hallgrímsson
mundi verða við tilmælum forseta
íslands og kanna möguleika á stjórn-
armyndun.
„Ég vil svara forseta fyrst,” sagði
Geir Hallgrímsson í morgun í viðtali
við DB. „Ég er ekki búinn að mæla
mér mót við hann, og veit ekki, hvort
það verður í dag, en alla vega verður
það fyrir helgi.”
Geir kvaðst telja æskilegast að
mynduð yrði stjórn á sem viðtækust-
um grundvelli en annars teldi hann
ekki tímabært að ræða það mál.
Ragnhildur gegn
Alþýðubandalaginu
Á fundi sjálfstæðismanna I gær
var engin samþykkt gerð, en skoðun
flestra var að Geir ætti að reyna og
fyrirfram skyldi ekki útilokaður
neinn möguleiki á samstarfi við aðra
fiokka, hvern sem væri. Ýmsir töl-
uðu á móti samstarfi við ákveðna
fiokka, til dæmis mælti Ragnhildur
Helgadóttir hart gegn samstárfi við
Alþýðubandalagið.
„Sama sinnis/'
segir Steingrímur
„Ég er enn sama sinnis og fyrir
kosningar viðvíkjandi samstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn,” sagði Stein-
grimur Hermannsson, formaður
Framsóknarfiokksins, í viðtali við
DB í morgun. „Ég tel ákaflega lítinn
grundvöll fyrir þátttöku Fram-
sóknarflokksins í stjórnarsamstarfi,
þar sem Sjálfstæðisflokkurinn á
aðild.
Svo mikið ber á milli að slíkt hlyti
að verða ákaflega erfitt,” sagði
Steingrímur.
- HH
frjálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 28. DES. 1979.
Gámar með
gleri
köstuðust
til í Rangá
Meðal varnings sem Rangá kom með
til landins á dögunum voru á þriðja
hundrað tonn af sænsku gleri og var
búið um glerið i gámum þannig að 16—
18 tonn voru í hverjum gámi. Á leið-
inni til landsins köstuðust nokkrir þess-
ara glergáma til í skipinu, og brotnaði
við það nokkurt magn af gleri. Ein-
staka gámur brotnaði utan af innihald-
inu.
Að uppiýsingum Hafskipsmanna
voru gámarnir í gær fiuttir i vöru-
geymslur. Þar verður kannað hve
miklar skemmdirnar eru. Hér er um að
ræða gler af ýmsum þykktum til gler-
verksmiðjanna senr m.a. framleiða úr
því tvöfalt gler til húsbygginga.
- A.St.
Gramsað og
rótað í
hesthúsum
Fáksmanna
Óboðnir gestir heimsóttu fjölda hest-
húsa á svæði Fáks við Elliðaár i fyrri-
nótt. Gengu þeir rösklega til verks og
klipptu i sundur fjölda hengilása fyrir
hurðum. Var síðan gramsað í hesthús-
um og hlöðum. Litlu var stolið en þó
dýrindis beizli og öðru sem var minna
virði. Þá var eitthvað af verkfærum
hirt.
Brotin var upp hurð á kaffistofu í
einni húsalengjunni og þar einnig rót-
að. Búizt er við að þarna hafi menn
verið í árangurslausri peningaleit.
- A.Sl.
Ógætilega
farið með eld
Ógætileg meðferð elds orsakaði smá-
bruna á tveimur stöðum í Reykjavik i
gær. í stigagangi verzlunar- og skrif-
stofuhúss við Suðurlandsbraut 6 kom
upp eldur í pappaspjöldum sem þar
voru geymd til bráðabirgða. Varð af
mikill reykur. Var fljótt slökkt án
brunatjóns að ráði.
í ibúðarhúsi við Dynskóga voru svo
krakkar að fikta með eldfæri og
kveiktu i flugeldi. Orsakaði þetta írafár
mikið og brunagöt á gólfteppi.
- A.St.
Móttaka smá-
auglýsinga
Móttaka smáauglýsinga DB verður
opin sem hér segir um helgina: í dag
verður opið til kl. 18, á morgun kl. 9—
14, lokað sunnudag 30. desember, opið
kl. 9—12 á gamlársdag og lokað á ný-
ársdag. Siminn er 27022.
TÖGGUR
UMBOÐIÐ
SÍMI
s. 81530 ^