Dagblaðið - 29.01.1980, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1980.
7
Iwrof
Fregnir frá Afganistan eru fremur af skornum skammti. Á myndinni hér að ofan sést liðsforingi í her stjórnarinnar i Kabúl
þar sem hann hefur verið tekinn höndum af skæruliðum þjóðernissinna. í baksýn er bifrcið af sovézkri gerð, sem uppreisnar-
menn hafa einnig náð.
Líbýa hættir
stuðningi við
skæruliða á
N-íriandi
Líbýustjórn hefur hætt öllum
stuðningi við skæruUða írska lýð-
veldishersins. Kom þetta fram í frá-
sögn háttsetts starfsmanns í sendiráði
Libýu i Madrid i morgun. Starfs-
maðurinn, sem kynntur var sem hátt-
settur á sviði samskipta við önnur
ríki, viðurkenndi að stjórn hans hefði
veitt írska lýðveldishemum ýmsan
stuðning á Uðnum árum. Því væri
hins vegar hætt nú þar sem engar
friðarviðræður fari nú fram til
lausnar vandanum í Norður-lrlandi.
Talsmaður líbönsku stjórnarinnar
gaf ekkert upp hvaða stuðning
skæruliðarnir hefðu fengið né hvort
hann væri að vísa tíl þeirra um-
ræðna, sem nú fara fram um Norður-
írland í London. Þar ræðast viö tals-
menn kaþólskra, mótmælenda og
Breta en írski lýðveldisherinn hefur
fordæmt viðræðurnar og hafnað al-
gjörlega öllum hugmyndum um þátt-
töku.
Libanski sendimaðurinn sagði það
ekki rétt að ríkisstjórn hans styddi
skæruUða Baska á Norður-Spáni.
Stjórnarfyrirkomulag þar um slóðir
væri algjörlega spænskt innanríkis-
mál. Líbanir vilja aðeins styðja
skæruliða sem berjast gegn erlendri
áþján.
Sovézki nóbelsverðlaunahafinn og andófsmaðurinn Andrei Sakharov sagði I gær að hann teldi að brottrckstur sinn frá
Moskvu hafi stafað af fordæmingu sinni á innrás Sovétríkjanna í Afganistan. Kom þetta fram I vélritaðri yfirlýsingu sem
eiginkona hans, yelena, las fyrir vestræna fréttamenn í Mosktu I gær. Hafði hún fengið að fara þangað óáreitt frá borginni
Gorky þar sem Sakharov er nú að skipan yfir' alda. Sakharov hefur sagzt vera rciðubúinn hvenær sem er að standa fyrir máli
sinu í opnum réttarhöldum.
Bandaríkin:
Kennedy ræðst á
stefnu Carters
sagðist henni andvígur. Kennedy sagði
að forsetinn og ráðgjafar hans hefðu
um of gert sér dælt við félaga í PLO
samtökum Palestínumanna. — Enginn
i ríkisstjórn, sem ég myndaöi fengi
nokkurn tima leyfi tii aö ræða viö aöila
sem stefndu að eyðingu Ísraelsríkis.
Kennedy, sem flutti ræður sínar til
að reyna að endurheimta tiltrú á sér
sem forsetaefni eftir ósigurinn i for-
kosningunum í Iowa, var harðorður í
ræðu sinni. Hann sagðist telja að sjálf-
stætt ríki Palestínumanna á vestur-
bakka árinnar Jórdan yrði undir of
miklum áhrifum frá Sovétríkjunum er
fram liðu stundir. Slíkt væri ekki þor-
andi i heimshluta sem Kennedy vildi
kalla orkuhjarta heimsins.
Edward Kennedy öldungadeildar-
’þingmaður og helzti keppinautur
Jimmy Carters Bandaríkjaforseta í
keppninni um útnefningu sem forseta-
frambjóðandi Demókrataflokksins
gagnrýndi mjög stefnu forsetans í utan-
ríkis- og hermálum í ræðu sem hann
flutti í Washington í gær. Að henni
lokinni hraðaði Kénnedy sér til New
York. Þar talaði hann á fundi meö gyð-
ingaleiötogum.
Gagnrýndi hann stefnu Cárters for-
seta í málefnum Miðausturlanda og
Skákmótið í HoHandi:
Kortsnoj vann
Guðmund
Viktor Kortsnoj stórmeistari vann
Guðmund Sigurjónsson í elleftu um-
'ferð skákmótsins í Hoogovens í Hol-
landi í gær. Hinum unga stórmeistara
og heimsmeistara unglinga frá
Bandaríkjunum, Yassir Seirawan,
tókst hins vegar aðeins að ná jaíntefli
gegn Hollendingnum Gert Ligterink.
Þar með er forusta Seirawan ekki
orðin nema hálfur vinningur.
Walter Browne, landi hans og stór-
meistari, sækir nú mjög í sig veðrið
og er kominn með 8,5 vinninga eftir
sigur sinn yfir Brasilíumanninum
Jaime Sunie.
Líklegast verður úrslitaskákin tefld
á morgun en þá mætast þeir Browne
og Seirawan: Að þeirri viðurcign lok-
inni verður aðeins ein umferö eftir á
rnÓti.P.y. í þeirri þrettándu og síðustu
munu þeir siðan leika hvor gegn
öðrum Browne og Kortsnoj. Sá síðar-
nefndi er í þriðja sæti á mótinu í
Hoogovens með 7,5 vinninga.
Staðan á skákmótinu er þá þessi að
lokinni elleftu umferð,
Seirawan níu vinninga, Browne
8.5, Kortsnoj 7,5, Alburt, Timman
og Biyuasis með 6 vinninga hver, Ree
5.5, Byrne 4,5 og biðskák, Sunie 4,5,
Böhm með fjóra vinninga og bið-
skák, Kovacevic og Van Dr. Wiel
með fjóra vinninga, Guðmundur
Sigurjónsson er með 3,5 og Ligterink
rekur lestina með þrjá vinninga.
Erlendar
fréttir
ETTU SKEL-
FISKOG
EIGNASTU
STRÁKA
Þeir karlar sem óska þess að eign-
ast stráka ættu að leggja sér til munns
mikið af skelfiski. Þá eru meiri líkur
en ella til þess að ósk þeirra rætist. Er
þetta samkvæmt niðurstöðum brezks
liffræðings. í skelfiski mun vera
mikið magn af arsenikefni sem þó er
ekki eilrað í því tilviki. Liffræðingur-
inn heldur því frarn að hátt hlutfall
þessa efnis í fæðunni auki líkurnar á
að viðkomandi karlmaður geti af sér
son.
í grein i brezka tímaritinu World
Medicine segir líffræðingurinn, að
árið 1969 hafi fæðzt 157 piltar og 77
stúlkur í kjölfar mikils storms sem
gekk yfir borgina Brisbane í Ástralíu.
Sá stormur hefur þá væntanlega
verið einhverntima um eða fyrir getn-
aðartíma barnanna. Á þessu svæði
mun arsenik vera hlutfallslega hátt i
sjó og vatni og það siðan hafa borizl
með storminum. 157 piltar og 77
stúlkur er mjög óvenjulegt fæðingar-
hlutfall. Almennt er talið að 106
drengir og 100 stúlkur sé hið eðlilega.
Líffræðingurinn segir arsenikinni-
hald vatnsins við Brisbane vera frá 20
til 60 hluta af hverjum milljarði. Það
sé ekki nægilega mikið til að eitra
vatnið en hins vegar fullnægjandi til
að hafa þau áhrif á sæði karlmanns-
ins að hann geti fremur af sér drengi
en stúlkur.