Dagblaðið - 29.01.1980, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 29.01.1980, Blaðsíða 24
ÞRIÐJUDAGUR29. JAN. 1980 Skólabömin farín að taka í nefið: MENTÓLTÓBAKK) VELDUR ÁHYGGJUM frjálst, úháð daghlað Birgðageymsla stolinna vél- hjéla fundin Nánast fyrir tilviljun hefur nú kom- izt upp um pilta sem stolið hafa f)ó nokkru af vélhjólum og virðast hafa lekið þau sundur og e.t.v. „blandað saman” stolnum hjólum svo þýfið þekktist siður. Rannsókn málsins er á frumstigi. Það var á sunnudag að piltur fór í Hafnarbíó kl. 3 og er út kom var vél- hjól hans horfið. Hann tilkynnti lög- reglunni stuldinn þegar. I gær sá hann svo til pilt á hjólinu, kallaði á lögreglu og sá er á hjólinu var náðist. Reyndist hann réttindalaus. Verknaðinn viður- kenndi hann og sagði jafnframt frá öðrum pilti sem þátt átti í ráninu. Við fyrstu rannsókn fundust hjá þessum piltum fleiri hjól og hjólahlutar sem talin eru stolin. Rannsóknarmenn vinna nú að málinu. - A.St. „Ef þetta getur gert börnin að nikótinistum eða neftóbaksfólki er full ástæða til að vara við því. Og jafnvel að rannsaka innflutninginn nánar,” sagði Skúli Johnsen borgar- læknir um nýja tegund af neftóbaki, sem ÁTVR flytur nú inn. I nef- tóbak, þessu er mentól sem deyfir mjög hina eiginlegu tóbakslykt. Fræðslustjóri Reykjavikur tjáir honum áhyggjur sinar vegna þess að skólabörn eru farin að taka þetta talsvert i net'ið. „Mér er ekki kunnugt um neinar rannsóknir á óhollustu neftóbaks á sama grunni og rannsóknir á óhollustu reykinga enda er neftóbak notað i aðeins litlum hluta heimsins og í litlum mæli. En ef menn verða háðir þessu er það vissulega alvarlegt » „Ofsalega vinsælt," sagði þessi nemi í Ármúlaskólanum er hann var spurður um neftóbakið í sinum skóla. Þar eru nemar frá 16 ára til tvitugs. En mun yngri börn fá sér í nefið. DB-mynd: Hörður. mál, fyrir nú utan sóðaskapinn,” sagði Skúli. Hann var spurður hvort honum væri kunnugt um aldur þeirra barna sem tækju í nefið. „Nei, ekki nákvæmlega. Én ég veit að þetta nær eitthvað talsvert niður í grunnskóla. í Sviþjóð hafa þeir átt við svipað vandamál að etja og hér verður athugað nánar hvernig þeir hafa farið að. Þá verður málið að öllum líkindum lagt fyrir heilbrigðiseftirlitið og það látið á- kveða næsta skref.” -DS. Sandgerði: Póstránið sviðsett í gærkvöld Póstránið í Sandgerði var sviðsett i pósthúsinu þar í gærkvöld, ef það mætti verða til að auðvelda lögreglu rannsókn málsins. Lögreglumaður lék þar hlutverk ræningjans og var gerð til- raun til að endurtaka nákvæmlega at- burði þar að morgni 2. janúar sl. John Hill, rannsóknarlögreglumaður i Keflavík, sagði í samtali við DB i morgun, að enn hefði ekkert komið fram sem leitt gæti lögregluna á spor ræningjans. Ýmsir þættir málsins eru enn mjög óljósir — t.d. er póstmeistar- inn ófær um að gera sér grein fyrir hvort hún var slegin í höfuðið af ræn- ingjanum eða hvort hann hrinti henni utan í vegg. Rannsókninni verður haldið áfram. -ÓV Stálu bíl og óku réttindalausir í gærkvöldi voru teknir á Háaleitis- braut 15 og 17 ára piltar sem sekir voru um bílþjófnað og höfðu síðan lent i árekstri á stolna bílnum og valdið tjóni. Piltarnir reyndust báðir réttinda- lausir til aksturs þó annar hafi náð til- skildum aldri til ökuprófs. Bilnum höfðu þeir stolið á bílastæði kvik- myndahúss og lék einhver grunur á að þann leik hefðu þeir leikið oftar. Málið var enn í rannsókn í morgun. - A.St. Herranótt MR í kvöld: Umhverfis jörðina á áttatíu dögum ■ Ilifl hefóbundna Herranótt menntaskólans i Reykjavík er í kvöld kl. 20.30 I dögttm eftir Jules Verne. Ragnar Th. Ijósmyndari DB tók þessa myndþegar hann leil A usturbæjarbiói. Menntskœlingarnir voru aö leggja siðustu hönd ó undirbúning I inn ú generalprufu hjá þeim I gœrkvöldi. gœrkyöldi. Leikritið sem sýnt verður að þessu sinni er Umhverfts jörðina á áttatíu -ELA/DB-mynd Ragnar Th. ALÞYÐUBANDALAGH) TEKUR SINNASKIPTUM — ekki fráhverft þjóðstjóm allra flokka — Alþýðuflokkurinn andvígur Alþýðubandalagið hefur tekið lalsverðum sinnaskiptum og gefur nú i skyn, að það sé ekki fráhverft þjóðstjórn alira flokka. Áður hafði Alþýðubandalagið eins og fram kom að heita má dregið sig út úr viðræðum. Alþýðuflokksmenn voru á hinn bóginn mjög neikvæðir gagnvart þjóðstjórn á fundi í þingflokknum i gær. Meirihlutinn á fundi i þingflokki Framsóknar vildi i gær kanna möguleika á þjóðstjórn. Steingrimi Hermannssyni var falið að athuga það mál. Minnihluti á fundinum í þingflokki Framsóknar mælti fyrir, að stefnt yrði að minnihlutastjórn Framsóknar og Alþýðuflokks. Á fundi i þingflokki sjálfstæðis- manna varð sú niðurstaðan, að hug- ttiynd um þjóðstjórn skyldi ekki hafnað. Þingmenn ræddu í gær margs konar möguleika á stjórnarmyndun. Nokkuð er meðal annars rætt um viðreisnarstjórn Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks. Margir telja, að utanþingsstjórn verði óhjákvæmileg. Forseti islands ræddi í gær við formenn flokkanna. Hann ræðir aftur við þá í dag. Forseti er nú, beint og óbeint, farinn að setja flokkunum frest til að mynda stjórn innan fárra daga, eins og fram kom í DB í gær. -HH. LUKKUDAGAR: 29. JANÚAR: 24899 Tesai ferðaútvarp. Vinningshafar hringi í síma 33622.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.