Dagblaðið - 08.03.1980, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. MARZ 1980.
ISLAND MESTA BARNA-
SLYSALAND EVRÓPU
— Junior Chamber kannar orsakirnar
„ísland er mesta slysaland
Evrópu og þótt vlðar væri leitað
hvað banaslys á börnum áhrærir,"
sagði Árni Þór Árnason, forseti
Junior Chamber í Reykjavík. JC i
Reykjavík er nú um helgina að fara
af stað með könnun á 200 börnum á
skólaskyldualdri hérí Reykjavík.
,, Beitt er þeirri aðferð við
könnunina að félagar í JC munu
heimsækja 200 heimili og merkja við
á spurningalista, eftir tilsvörum
fólks, hvar eða hvernig slys hefur
borið að höndum,’’ sagði Árni Þór.
Helztu orsakir slysa eru fall og
hras, högg af hlut, bruni ogeitranir.
Árni sagði að ekki yrði merkt við
hver svaraði hverju sinni, enda ekki
verið að forvitnast um persónulega
hagi fólks þessa sérstaklega, heldur
verið að safna upplýsingum, er gætu
skýrt þessa hrikalegu slysatíðni í
okkar litla þjóðfélagi.
Verkefnið er unnið í nánu
sambandi við landlæknisembættið og
tók Þórólfur Þórlindsson lektor við
Háskóla íslands þátt i undirbúningi
þessa verkefnis. Þá er verkefnið
einnig stutt af tryggingarfélaginu
Ábyrgð.
Niðurstöður verða síðar birtar til
þess að nota til að gera grein fyrir
hvaða fyrirbyggjandi aðgerða er
hægt að grípa til.
„Könnun þessi er hlekkur í langri
keðju verkefna, sem JC hreyfingin
íslenzka og hin alþjóðlega hafa tekizt
á hendur hvað varðar öryggi barna
og er að sjálfsögðu allt unnið í sjálf-
boðavinnu,” sagði Árni Þór og hann
hélt áfram: „Þetta er einn þáttur í
þjálfun okkar i að taka þátt í
knýjandi verkefnum í þjóðfélaginu.
JC hreyfingin er félagsskapur ungs
fólks frá 18—40 ára, til þess að gefa
því tækifæri til þess að starfa að
áhugamálum sínum á ópólitiskum
grundvelli. Félagar eru 1150 á öllu
landinu og hefur JC á íslandi fengið
viðurkenningu á heimsþingi JC fyrir
að hafa bezta hlutfallið. Það sýnir
bezt hvað íslendingar eru félagslega
þroskaðir,” sagði Árni Þór. -EVI.
Chevrolet Chevy
Van árg.
1977, lengri gerö, ekinn
—- •
BjPJfc-j* ttttj, ■'''í ‘ ’ aöeins 33.000.
ÍÉÍggg#' : t **' • “' j i iiMMWÍÍ Biár, útvarp
og segulband.
jggPggl11 Fallegur bíll á
góðu veröi.
||M| pjj Verö
6.500.000.
Bílasalan Skeifan
Skeifunni 11 — Sími84848
Tilkynning
til félaga Félags íslenzkra bifreiðaeigenda
Samkvæmt 9. gr. laga FÍB er hér með auglýst
eftir uppástungum um fulltrúa og varafulltrúa til
fulltrúaráðsþings.
Uppástungur skulu hafa borizt félagsstjórninni
eða aðalumboðsmanni í viðkomandi umdæmi, í
ábyrgðarbréfi, fyrir 15. marz 1980.
Hér á eftir eru taldir upp aðalumboðsmenn og
fulltrúafjöldi hvers umdæmis:
Aðalumboðsmaður Fjöldi
Framkvæmdarstj. FÍB, fulltr-
Skúlagötu 51, Rvík. 10
Ingvar Sigmundsson,
Akranesi 3
Bernt H. Sigurðsson,
Patreksfirði 2
Jón S. Garðarsson,
Patreksfirði 3
Jón Jónsson,
Skagaströnd 2
Jón Sigurösson
Siglufirði 2
Sigurður Sigurðsson,
Akureyri 4
Hermann Larsen,
Húsavík 2
Friðrik A. Jónsson,
Kópaskeri 2
Jóhann G. Einarsson,
Seyðisfirði 3
Sigþór Hermannsson,
Höfn Hornafirði 2
Kristþór Breiðfjörð,
Hellu 2
Bjarni Jónasson,
Vestmannaeyjum 2
Guðmundur Sigurðs-
son,Þorlákshöfn 3
Guðmundur Ólafsson
Keflavik 4
Frekari upplýsingar veittar á skrifstofu félagsins,
Skúlagötu 51, sími 29999.
Umdæmi
1. Höfuðborgarsvæðiö
2. Borgarfjarðarsvæðið
3. Breiðafjarðarsvæðið
4. Vestfjarðasvæðiö
5. Húnaflóasvæðið
6. Skagafjarðarsvæðið
7. Eyjafjarðarsvæöið
8. Skjálfandasvæðið
9. Norðaustursvæðið
10. Austfjarðasvæðið
11. Suðaustursvæðið
12. Mýrdalssvæðið
13. Vestm.eyjasvæðið
14. Árnessvæðið
15. Reykjanessvæðið
TO YOTA-SALURINN
Nýbýlavegi 8 fíportinu).
AUGLÝSIR:
. °Mð
Toyota Cressida, 4ra dyra, '77, ekinn 30þús. verð 4,6 millj.
Toyota Corolla Mark II station 75, ekinn 3 þús. km. á vól, verð 3.4
millj.
Toyota Corolla MarkII73, ekinn 40þús. á vól,verð 2,7millj.
Toyota Corolla Mark II73, ekinn 120þús., verð 2.5 millj.
Toyota Corolla station 72, ekinn 1500 á vól, verð 1.7millj.
Toyota Corolla Coupó 73, ekinn 66 þús., verð 1750þús.
AHa Romeo, 4ra dyra, 77 fsem nýr), ekinn aðeins 16 þús. km, verð 3,8
millj.
Fíat 127 L 78 ekinn 14 þús., verð 2,9 millj.
Land Cruiser 77, ekinn 21 þús., verð 7.5 millj.
Ath.: Okkur vantar allar gerðir af notuðum Toyota-bíl-
um I sýningarsal.
TO YOTA-SALUR/NN
NÝBÝLA VEGI8, KÓP. SÍMI44144.
TAGPÁ
NORDISK FOLKEH0JSKOLE
i Danmark.
6 mdr. 1/11-30/4 og 4 mdr. 3/1-30/4. Min. alder 18 ðr.
Nordiske lærere.Skrivefter skoleplan og nærm.oplysn.
Myrna 09 Carl Vilb.uk
UGE FOLKEH0JSKOLE
DK-6360 Tinglev, tlf. 04 - 64 30 00
Ef til vill veröa islenzkir trúboöar til
þess afl færa þessum glafla Afrikudreng
Irúna á Drottin.
íslenzkir
trúboðar
kristna
afríska
andatrúar-
menn
íslendingar eiga nú 20 trúboða, sem
hafa starfað við kristniboð í fjarlægum
löndum. Flestir þeirra hafa starfað í
Eþiópiu. Nú eru þau hjónin Kjellrún og
Skúli Svavarsson að reisa kristniboðs-
stöð í Kenýa, þar sem þau ætla að boða
trúna svonefndum Pókotmönnum. Eru
þeir andatrúar og lífshættir þeirra mjög
frumstæðir að sögn Gísla Arnkels-
sonar, trúboða.
Vera má, að Islendingar viti í hvaða
heimsálfu Eþíópía er. Fæstir munu vita
mikið umfram það. Trúboðsfólk öðlast
afar sérstæða reynslu. Á morgun
byrjar kristniboðsvika á vegum Sam-
bands íslenzkra kristniboðsfélaga.
Gefst kostur á að kynnast löndum og
þjóðum þar sem íslenzkir trúboðar
hafa starfað.
Þessi leikmannasamtök urðu 50 ára
gömul á siðasta ári. Meðal kynningar-
atriða er kvikmynd, sem Páll Friðriks-
son tók fyrir nokkrum vikum i Kenýa.
Eins og vera ber á samkomum kristni-
boða verður mikill söngur, bæði
kórsöngur og einsöngur. Hugvekjur
verða fluttar. Kynningarvikan er haldin
i húsi KFUM við Amtmannsslíg og er
öllunt heimill ókeypis aðgangur.
-BS.
Vitni vantar
að árekstri
I.ýst er eftir vitni að árekstri er varð
föstudaginn I. febrúar sl. kl. 13.40 á
horni Skúlagötu og Ingólfsstrætis. Þar
rákust saman bifreiðarnar R 7081, sem
er Ford Fiesta, og R 60863, sem er
Skoda. Vitað er að silfurgrár Mercedes
Benz kom að og einnig Lada sport með
hestakerru. Þeir sem geta gefið
upplýsingar eru beðnir að snúa sér til
rannsóknarlögreglunnar.
Amma gerist
bankaræningi
íDB-bíói
I Dagblaðsbiói á morgun klukkan
þrjú verður sýnd gamanmyndin Anima
gerist bankaræningi. Aðalhlutverk
leika Betle David og Ernest Borgnine.
Myndin er í litum og með islenzkum
texta. Sýningarstaður er Hafnarbió.