Dagblaðið - 17.05.1980, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 17.05.1980, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1980. 5 Tékkóslóvakía íHáskólabíói í dag hefjast Tékkneskir kvik- myndadagar í Háskólabíói með frumsýningu á kvikmyndinni Skugg- ar sumarsins. Að Tékkneskum kvik- myndadögum standa tékkneska sendiráðið, Tékknesk-islenska menn- ingarfélagið og Háskólabió, en þetta er í fyrsta skipti, sem haldnir eru tékkneskir kvikmyndadagar. Tékknesk kvikmyndagerð hefur staðið mjög framarlega, enda hófu Tékkar mjög snemma á þessari öld að hefja reglulega kvikmyndagerð og voru um tima Evrópuþjóða fremstir í kvikmyndalistinni. Þeir standa enn mjög framarlega, þótt lítt haft þess orðið vart hér á landi. Þess vegna eru Tékknesku kvikmyndadagarnir, sem nú verða haldnir, vissulega fagnaðarefni og full ástæða að hvetja þá sem vettlingi geta valdið að sjá einhverja þeirra fimm mynda, sem sýndar verða. Þeir, sem óttast að skilja ekki það er fram fer á hvíta tjaldinu skal bent á það, að allar voru þessar myndir sérstaklega valdar með tilliti til þess, að þær væru skemmtilegar, að þær hefðu til að bera ríkt myndmál og að í þeim væri fremur lítið um samtöl. Skuggar sumarsins Myndin gerist í stríðslok, segir frá fjárbóndanum Baran, sem býr á af- skekktu býli ásamt fjölskyldu sinni. Bandaraitar (leifar SS-manna af pólsku og úkranísku þjóðerni) taka á honum hús og hóta að myrða konu hans og börn, aðstoði hann þá ekki. Aldraður læknir er fenginn til þess að hjúkra einum þorparanna og honum er síðan haldið á býlinu. Baran og læknirinn komast að raun um að utanaðkomandi aðstoð myndi kosta líf þeirra allra. Baran grípur því til sinna ráða. Hvarf læknisins spyrst út, og ráðskona hans fær að vita hjá Baran hvernig komið sé. En hún Kvik myndir gengur á bak orða sinna og leysir frá skjóðunni. Fyrir þessa mynd hlaut leikstjóri hennar, Frantisék Vlácil, aðalverðlaunin á kvikmyndahá- tíðinni i Karlovy Vary 1978. Hann hefur fengið verðlaun fyrir fleiri mynda sinna og er nú um þessar mundir að vinna að enn einni nýrri mynd. Stefnumót í júlí í þessari mynd segir frá dreng á sumarnámskeiði í ensku. Eins og nafnið ber með sér, er þetta ástar- saga. Það er varla vert að rekja efni hennar nánar, en leikstjórinn, Karel Kachyna, er einn af athygliverðari leikstjórum Tékka. Hann er af fyrstu kynslóð þeirra kvikmyndagerðar- manna, er luku prófi frá þá nýstofnuðum kvikmyndaskóla í Prag, og hefur einkum gert sál- fræðilegar myndir sem fjalla gjarnan um börn eða unglinga. Hann er einnig leikstjóri Litlu hafmeyjunnar, sem sýnd verður á kvikmynda- dögunum og byggð er á sögu H.C. Andersen. Stefnumót í júlí og Litla hafmeyjan hafa aflað leikstjóra sínuhv alþjóðlegra viðurkenninga, m.a. frá kvikmyndahátíðum í Panama ogKairó. Haltu hoiHpm hræddum \ Myndin segir frá Ales Brabek, sem kennir tónlist og fæst við laga- smíðar í tómstundum. Eitt laga hans vinnur fyrstu verðlaun á listahátíð, Sagt frá blóminu sem boröar í skrumskælingu á Nick Cartcr i myndinni Adela er svöng. öllum á óvart. Sjónvarpað e'r frá há- tíðinni, og leikhússjóri í Prag verður svo hrifinn, að hann fær Ales þegar í stað til Prag til að semja lög fyrir nýja leiksýningu. En brátt kemst kona leikhússtjórans að því að anda- gift Alesar er tengd óvæntum og ógn- vekjandi atburðum. Adela er svöng Þessi mynd er skopstæling á leyni- lögreglusagnahetjunni Nick Carter, sem íslenskum lesendum er kunnur. Nick Carter kemur til Praig til að rannsaka dularfullt hvarf Gerts og Thunovu hertogaynju. Hann kemst að því að Gert er hundur. Nick kemst á sporið þegar hann stendur jurtina Adelu að því að gera sér mat úr pylsu. Það er varla hægt að segja meira, en í þessari mynd gerist víst flest það sem ómögulegt telst. Nick Carter er á endanum hrifinn úr hinum ótrúlega söguþræði og fenginn til að rannsaka nýtt og dularfullt mál; pýramída sem stendur á haus! Adela er svöng hefur hlotið verðlaun víða, þ.á m. fyrir húmorinn, sem þykir einstakur í þess- ari mynd. Leikstjóri hennar, Oldrich Lopský, hefur getið sér gott orð fyrir gerð bráðskemmtilegra kvikmynda. Barnamyndir Ég nefndi áður mynd Karel Kachyna, Litlu hafmeyjuna, en auk hennar verður sýnd önnur barna- mynd á hátíðinni; Krabat. Hún verður aöeins sýnd einu sinni á sunnudeginum, þannig að nauðsynlegt er þeim er ætla að sjá hanaaðbregðastskjótt við. Krabat er byggð á ævintýri frá Lausitz-héraðinu og fjallar um fá- tækan strákhnokka sem flakkar um héraðið uns hann kemur að myllu einni dularfullri. Þar lærir hann galdra. Hann verður ástfanginn af stúlku í þorpinu og einlæg ást hennar bjargar honum úr bardaga, sem hann heyr við galdrameistarann upp á líf og dauða. Krabat hefur fengið viður- kenningar á alþjóðlegum kvikmynda- hátíðum, m.a. sem besta barna- myndin. Sem fyrr segir verða hinir Tékknesku kvikmyndadagar settir í dag, laugardag, kl. 4, með athöfn og frumsýningu kvikmyndarinnar Skuggar sumarsins. Athugasemd við forsíðufrétt: Eðlilegt f lugtak miðað við þær aðstæður sem voru í Dagblaðinu þann 14. mai er rammafyrirsögn á forsíðu sem hefði varla orðið stærri þótt heimsstyrjöld hefði skollið á þennan dag. Mér undir- rituðum, sem var flugstjóri á þotu Flugleiða í umrætt skipti, finnst æsi- fréttalykt af þessum skrifum, svo ekki sé meira sagt. „Klár á að þotan steyptist niður i miðbæinn,” segir einhver ótilgreindur maður við blaðamanninn. „Þotan sullaðist yfir á hliðina eftir að hún var komin á loft,” og svo kom þessi perla: „Greinilegt var að þotan missti loft undan vængjunum.” Ótrúlegt þykir mér að heimildarmaður blaðsins hafi minnsta vit á flugi, ella hlýtur blaða- maðurinn að hafa misskilið hann hrapallega. Umrætt flugtak varaðöllu leyti eðlilegt, við þær aðstæður sem fyrir hendi voru, þ.e. smáhliðarvind. í um 800 feta hæð beindi ég þotunni til vinstri þar sem ferðinni var heitið til Keflavikur. Þotan var tóm, aðeins áhöfnin um borð, því var hún létt og fór allbratt upp. Hafi heimildarmaður blaðsins séð hlutina eins og blaðið skýrir frá, hlýtur hann að hafa verið meira en lítið miður sín. Hvorki okkur né fólki á jörðu niðri stafaði hætta af þessu flugi, því fer víðsfjarri. Ég er undandi á að blað yðar skuli demba svona forsíðu á markaðinn án þess að hafa tal af viðkomandi flugstjóra, en enginn hafði rætt eitt orð um þetta — segir Jóhannes R. Snorrason flugstjórí flugtak við mig, enda engin ástæða til þess. Jóhannes R. Snorrason. Til sölu BMW520 BMW 525 autom. BMW 320 BMW320 BMW316 BMW 2800 Renault 20 TL Renault 12TL árg. ’78 Renault 12 TL árg. ’77 árg.’77 Renaultl2TL árg.’74 árg.’79 Renaultl2TL árg.’73 árg. ’78 Renault 12 station árg. ’75 árg. ’78 |Renault 14 TL árg. ’79 árg. ’69 .Renault 5 GTL árg. ’79 árg. ’78 Renault4 VAN F6 árg.’79 árg.’78 Renault4 VAN F6 árg.’78 Opið laugardaga kl. 1—6. KRISTINN GUÐNAS0N HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SIMI 86633 STÁLSTÓLLINN VamSL- hannaðuraf ..bauhaus Verð kr. 29.980 Nýborg hf. býður nú þennan fræga stálstól með beyki- og spanskreyrsetu. Vadina stálstóllinn er fjaðurmagnaður, stílhreinn og hentar ólíklegasta umhverfi. Höfum einnig margar gerðir af borðum. Nýborgp Ármúla 23 Sími 86755 Skipstjóra- stólar Sterklr og vandaðlr skipstjórastólar. Þeim er hægt að snúa og halla aó vild. Athugló, þelr eru einnig sérstaklega ódýrlr. fslensk framleiðsla. ERLENDUR HJARTARSON slmi 40607-44100 Garðeigendur, takið eftir. Seljum mold dag- ana 11. og 18. maí. Pantanir í símum 43179, 44533 og 42478. Heimkeyrsla. Lionsktúbburinn Muninn Kópavogi

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.