Dagblaðið - 17.05.1980, Blaðsíða 24
VoríMynd-
lista-
skólanum
„Heldurðu að þetta sé ekki rétt
svona?” gæti þessi myndlistanemi
verið að spyrja félaga sinn en þeir voru
að ganga frá myndum fyrir vorsýningu
Myndlista - og handíðaskóla íslands,
sem hófst i gær. Stendur hún til
sunnudagskvölds í húsnæði skólans að
Skipholti 1 og verður opin á tímanum
14—22. Þarna er að finna sýnishorn af
vinnu myndlistanema í öllum
deildum en þessar sýningar MHÍ eru
fyrir löngu orðnar árviss viðburður í
bæjarlifinu.
-AI/DB-mynd: Þorri.
Rafknúin
járnbraut
á íslandi?
Þrír framsóknarþingmenn báru í gær
fram þingsályktunartillögu um raf-
knúna járnbraut.
í tillögunni segir: „Alþingi ályktar
að fela ríkisstjórninni að láta fram fara
könnun á hagnýtu gildi þeirra hug-
mynda sem upp hafa komið um raf-
knúna járnbraut til notkunar á mestu
þéttbýlissvæðum suðvestan lands og
austur yfir fjall.”
Flutningsmenn eru Þórarinn Sigur-
jónsson, Guðmundur G. Þórarinsson
og Jóhann Einvarðsson.
,,í þeirri miklu orkukreppu, sem
skollið hefur yfir þjóðina á undanförn-
um árum, hefur nauðsyn þess komið æ
betur i Ijós að nýta innlenda orkugjafa í
stað innfluttra á sem flestum sviðum.
Þegar eru í framkvæmd áform um að
útrýma notkun olíu til upphitunar.
húsa, en Ijóst er, að enn um nokkra
framtíð verða íslendingar að nota inn-
flutta orkugjafa á farartæki sin,” segja
þingmennirnir. „Með þetta i huga,
ásamt hagkvætnni, gjaldeyrissparnaði
og öryggi, telja flutningsmenn afar
brýnt að kannað sé, i hve miklum mæli
íslendingar geti notfært sér rafknúin
farartæki. Ýmsir telja, að rafknúin
járnbraut sé ódýrasta og afkastamesta
flutningatækið, sem unnt sé að fá, þar
sem hún hentar.” Flutningsmenn nefna
athuganir Hinriks Guðmundssonar
framkvæmdastjóra Verkfræðinga-
félags islands á þessum möguleika og
leggja til að hann verði kannaður nán-
ar.
- HH
fara á heims
meistara-
mótin
Stjórn Skáksambands íslands hefur
nýverið valið keppendur til þátttöku í
heimsmeistaramótum unglinga i ár.
Fyrir valinu urðu Jón L. Árnason, sem
tefla mun á heimsmeistaramóti 20 ára
og yngri sem fram fer í Dortmund í V-
Þýzkalandi 15.—31. ágúst, og Elvar
Guðmundsson, unglingameistari
islands, sem keppir á heimsmeistara-
móti sveina, 17 áraogyngri, i Le Havre
i Frakklandi 30. júli til 11. ágúst. í
báðum mótunum verða tefldar 13 um-
ferðir eftir monradkerfi.
-GAJ
Dr. Jóhannes Nordal um verðbólguna:
„Markmið stjómvalda
ekki ásættanleg-
„Reynslan hefur til að mynda sýnt
að erfitt sé við aðstæður hér á landi
að draga úr verðbólgu en tryggja
jafnframt óbreyttan eða hækkandi:
kaupmátt og hátt atvinnustig,”
sagði dr. Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóri i ræðu sinni á ársfundi
Seðlabankans á miðvikudaginn.
Jóhannes sagði að við ríkjandi
skilyrði heföi viðleitni stjórnvalda til
að ná tökum á þróuninni einkum
beinzt að tveimur meginatriðum.
Annars vegar hefði þráfaldlega og
með ýmsum hætti verið reynt að
hemja víxlhækkanir með beinum
aðgerðum, er hefðu áhrif á vixl-
verkunina sjálfa, svo sem með
skerðingu vísitöluákvæða, niður-
greiðslum vöruverðs, lækkun
neyzluskatta og verðlagshömlum.
Hins vegar hafi verið leitazt við að
hafa hemil á peningaframboði með
aðgerðum á sviði fjármála og láns-
fjármála. Jafnframt hefði allan
tímann verið lögð á það megináherzla
að ekki yrði gengið svo langt að
verulega slaknaði á atvinnustigi.
„Sú staðreynd að aðgerðir stjórn-
valda til að hemja verðbólguna hafa
ekki borið meiri árangur en raun ber
vitni á þessu tímabili verður ekki að
mínum dómi eingöngu skrifuð á
reikning viljaleysis eða ófullnægjandi
skilnings á vandamálunum af hálfu
stjórnvalda. Líklega er skýring-
arinnar ekki síður að leita í þvi að
menn hafa sífellt verið að reyna að ná
samtímis markmiðum, sem ekki hafa
verið í reynd ásættanleg.” -HH.
Héráárum áður voru óþrifnar stúlkur gjarnan kallaðar grásleppur. Sú merking orðins er þó að mestu týndþó að óþrifnar
stúlkur (og strákar) flnnist örugglega ennþá I landinu. Sælkerarþekkja hins vegar og kunna vel að meta signa grásleppu. Það
er hinn hezti matur.
Llfið á Ægislðunni er grásleppa. Þar hanga ótal grásleppuhönd og slga. Strákurinn og hundur hans nutu sólar I nálœgð
þeirra þegar Ragnar Th. Ijósmyndara DB barað.
SendinefirdMNópferðamiðstöðinni:
Til fundar við IKARUS
Sendinefnd á vegum Hópferða-
miðstöðvarinnar í Reykjavík heldur
til Unjverjalands i dag til að kanna
lKARUS-larrgferðabíla. Ef sendi-
nefndin mælir svo með því að
aðstandendur Hópferðamið-
stöðvarinnar, kaupi bila frá
IKARUS er ljóst að um er að ræða
meiriháttar viðskipti við ungversku
bílaverksmiðjurnar. Alger lágmarks-
endurnýjun á bílaflota Hópferða-
miðstöðvarinnar er 7—8 bílar á ári.
IKARUS býður hverja langferðabif-
reið fyrir um 70 milljónir kr. Til
samanburðar má geta þess að 50—60
manna Benzbíll kostar um 115
milljónir, eftir þvi sem DB kemst
næst. Ungverjarnir bjóða auk þess
kaupendum 3ja ára lán á lágum
vöxtum. Hins vegar er ekki leyfilegt
samkvæmt ísl. lögum að taka erlend
lán til lengri tíma en sex mánaða.
Þá mun sendinefnd frá Akureyri
vera á förum til Ungverjalands næstu
daga til að skoða IKARUS-strætis-
vagna.
-ARH.
frjúlst, áháð dagblað
LAUGARDAGUR 17. MAÍ1980.
Jóhanns
Hafstein
minnzt
á Alþingi
Jóhann Hafstein, fyrrverandi for-
sætisráðherra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, andaðist aðfaranótt
uppstigningardags.
Hans var minnzt á Alþingi í gær i
upphafi fundar í Sameinuðu þingi.
Jóhann Hafstein var fæddur á
Akureyri 19. september 1915 og var þvi
64 ára er hann lézt. Foreldrar hans voru
hjónin Júlíus Havsteen, síðar sýslu-
maður Þingeyinga, og Þórunn Jóns-
dóttir. Jóhann Hafstein lauk stúdents-
prófi 1934 og lögfræðiprófi 1938 og
stundaði siðar framhaldsnám i
þjóðarétti.
Jóhann Hafstein varð fljótt í
forystu í félögum ungra sjálfstæðis-
manna og Sjálfstæðisflokksins. Hann
var framkvæmdastjóri flokksins 1942-
1952.
Jóhann var kjörinn á þing fyrir
Reykvíkinga 1946 og átti sæti á þingi til
vorsins 1978, er hann hætti þing-
mennsku sakir vanheilsu. Hann sat
einnig í bæjarstjórn Reykjavíkur
1946—1958. Hann var bankastjóri Út-
•vegsbankans 1952-1963.
Árið 1961 var hann ráðherra um
skeið og tók fast sæti í ríkisstjórn
Bjarna Benediktssonar síðla árs 1963.
Hann var varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins- 1965—1970. Við fráfall dr.
Bjarna tók Jóhann Hafstein við æðstu
stjórn flokksins. Hann var formaður
flokksins 1970—1973 og forsætis-
ráðherra frá júlí 1970 til júlí 1971, er
hann lét af störfum sakir heilsubrests.
-HH.
Handtekinn með hass:
Hefur setið í
gæzluvarð-
haldi í rúm-
lega viku
Einn maður situr nú í
gæzluvarðhaldi vegna fíkniefnamáls og
hefur verið bak við lás og slá í liðlega
viku á meðan rannsókn fer fram á máli
hans. Er hann var handtekinn var hann
með hass og önnur fíkniefni i fórum
sínum. — Maður þessi hefur áður
komið við sögu hjá fíkniefna-
dómstólnum.
-ÁT-
LUKKUDAGAR:
17. MAt: 25320
Kodak Pocket A1 myndavél.
Vinningshafar hringi
ísíma 33622.