Dagblaðið - 17.05.1980, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 17. MAÍ1980.
7
Albert og Brynhildur ræða við Richart Philippe farandverkamann frá Frakklandi.
FRANSKAN VAFÐIST
EKKIFYRIR ALBERT
Árnessýsla:
Stuðningsmenn
Guðlaugs hafa
opnað skrif stof u
Stuðningsmenn Guðlaugs Þorvalds-
sonar i Arnessýslu hafa opnað
kosningaskrifstofu á Austurvegi 38,
Selfossi (i húsi Almennra trygginga og
Iðnaðarbankans). Símanúmer skrif-
stofunnar er 2166.
Einnig hafa stuðningsmenn
Guðlaugs opnað bankareikninga fyrir
þá, sem leggja vilja fé af mörkum til
kosningabaráttunnar, í Lands-
bankanum og Iðnaðarbankanum á
Selfossi. Ávísanareikningur í Lands-
bankanum er nr. 7293 og i Iðnaðar-
bankanum nr. 2527.
Skrifstofan verður fyrst um sinn
opin frá kl. 5 til 10 síðdegis.
-GAJ.
Franskan vafðist ekki fyrir Albert
Guðmundssyni forstaframbjóðanda er
á hana reyndi á Vestfjörðum, á
dögunum. Eins og alþjóð er kunnugt
dvaldi Albert um árabil í Frakklandi
hér á árum áður og lék þar knatt-
spyrnu.
Albert og Brynhildur kona hans
yoru nýverið á kosningaferðalagi um
Vestfirði. Var meðal annars haldinn
fjölmennur kosningafundur á ísaftrði
og fjölmargir vinnustaðir heimsóttir.
VestfjCtfðum er'TjöIdi farand-
verkamanna, þar á meðal nokkrir
Frakkar. Það varð til þess, að tals-
verður hluti kosningabaráttunnar fór
fram á frönsku, og hafði Richart
Philippe frá Frakklandi, sem vinnur í
frystihúsi gaman af því að raeða við
forsetaefni á íslandi og mann sem
leikið hefur með fraegustu knatt-
spyrnuliðum Frakklands.
Eftir að hafa raett kosninga-
baráttuna og innri mál franskrar knatt-
spyrnu, kvöddu þau Albert og
Brynhildur Richart Philippe farand-
verkamann með virktum. -GAJ.
Vigdísefst
áFramnesi
Skipverjar á skuttogaranum
Framnesi 1 efndu til skoðanakönnunar
vegna forsetakosninganna. Um borð
eru 15 manns. Atkvæði féllu sem hér
segir:
Albert Guðmundsson 1,
Guðlaugur Þorvaldsson 5,
Pétur Thorsteinsson 2,
Vigdís Finnbogadóttir 7.
-JH.
Pétur J. Thorsteinsson ávarpaði gesti: Erfiðara fyrir forsetann sjálfan og ekki siður
fyrir þá sem skipta við forsetaembættið ef forsetinn er einhleypur.
DB-mynd: Bjarnleifur.
Fortíð Péturs finnst mér góð,
hjá flestum þekktur er hann.
Útvörður frá okkar þjóð,
íslandsmerki ber hann.
Þekktur f yrir dáð og dug,
drengskapar með skjöldinn.
Atkvæði og hlýjan hug,
honum veiti fjöldinn.
Oddný er með bjarta brá,
í beztu kvenna röðum.
Hanaviléghýrasjá,
heima á Bessastöðum.
Eignast megi okkar þjóð,
úrval slíkramanna.
Gefi af sínum gæfusjóð,
guðir forlaganna. -ARH.
Guðlaugurefstur
íFossnesti
Guðlaugur Þorvaldsson varð
efstur í skoðanakönnun um forseta-
kosningar hjá starfsmönnuni í
Fossnesti á Selfossi. Atkvæði féílu
þannig:
Guðlaugur Þorvaldsson 13 atkv.
Vigdís Finnbogadóttir 9 atkvæði
Pétur Thorsteinsson 1 atkvæði.
Aðrir hlutu ekki atkvæði.
-GAJ.
Fiskifélag íslands:
Albertefstur
Skoðanakönnun var 1 geýð hjá
Fisk ifélagi fslands vegna forseta-
kosninganna. Alls greiddu 20'atkvæði,
sem skiptust þannig:
Albert Guðmundsson 6^(tkvæði
Guðlaugur Þorvaldsson 2
Pétur Thorsteinsson 3 f
Vigdís Finnbogadóttir 5
Auðir seðlar voru 3 og einn óá-
kveðinn.
-JH.
FORSETAKJÖR1980
STUÐNINGSFÓLK
ALBERTS
GUÐMUNDSSONAR
SKRIFSTOFA
ykkar er í nýja húsinu við Lækjartorg.
Opiö kl. 9—21 alla daga, símar 27850
og 27833.
ÖLL
aðstoð er vel þegin.
Húsnæði óskast
tilleigu
Óskum eftir einstaklingsíbúð eða herbergi með
aðgangi að eldhúsi fyrir starfsmann okkar.
Gróðrarstöðin Mörk
Stjörnugróf 18 — Sími84550.
jSHSS
Finlux
LITSJÓIMVARPSTÆKI
^ Toppurinn I dag
UONVARPSBDÐIN
BORGARTÚNI 18 REYKJAVIK SIMI 27099
TO YOTA-SALURiNSpiö
Nýbýlavegi 8 (í portinu). |aU9a^a®ð
AUGLÝSIR: kM"5’
Toyota Cressida hardtop sjáifskiptur, 78, ekinn 11 þús. Verð 8
miiij.
Toyota Cressida 4ra dyra, árg. 79, ekinn 14 þús. Verð 6 miiij.
Toyota Cressida 4ra dyra sjáifsk. árg. 78, ekinn 70 þús. Verð 5.1
miiij.
Toyota Cressida 4ra dyra árg. 78, ekinn 170 þús. Verð 4.9 millj.
Toyota Carina 4ra dyra árg. 75, ekinn 92þús. Verð 2.4 miiij.
Toyota Corolla station árg. 77, ekinn 30þús. Verð 3,8 millj.
Toyota Corona Mark // hardtop, sjátfsk. 73, ekinn 96 þús. Verð 1.9
millj.
Toyota Hiace sendibíllárg. 75, ekinn 78þús. Verð 2.5 millj.
Morris Marina árg. 74, ekinn 78 þús. Verð 1.4 millj.
TOYOTA-SALURINN
NÝBÝLA VEGI8, KÓP. SÍMI44144.
Framkvæmdastjórí
/ðnrekstrarsjóðs
Stjórn Iðnrekstrarsjóðs leitar eftir starfskrafti í
stöðu framkvæmdastjóra við sjóðinn.
Verksvið varðar m.a. mótun á starfsemi sjóðsins
vegna eflingar hans. Veita þarf leiðbeiningar til
umsækjenda og hafa eftirlit með árangri þeirra
þróunarverkefna sem sjóðurinn styður, svo og
undirbúa fundi sjóðsstjórnar.
Æskileg menntun á sviði tækni og viðskipta og
starfsreynsla við iðnrekstur eða ráðgjöf við
iðnað.
Launakjör samkvæmt samningum bankamanna.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist Iðnrekstrarsjóði, Lækjargötu
12, Reykjavík fyrir 27. maí nk.