Dagblaðið - 17.05.1980, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1980.
Max Pechstein — Sjílfsmynd með pipu, trérista.
pláguna. En það eru sennilega ekki
allir sem vita að þessi mikla gróska á
að miklu leyti uppruna sinn i Þýska-
landi á árunum fyrir og eftir fyrri
heimsstyrjöld. Að listamönnum eins
og Picasso, Dufy eða Bonnard ólöst-
uðum, þá eru það hinir svokölluðu
þýsku expressjónistar sem leggja hinn
eiginlega grunn að grafikinni sem
sjálfstæðri listgrein á þessari öld.
Framlag þeirra er einkar mikilvægt
fyrir það að grafíkin var þeim fæst-
um aukagrein, hvíld frá annarri og
„mikilvægari” listsköpun, heldur
eitt af aðalvopnunum í sókn þeirra á
nýjar vigstöðvar listarinnar.
Stórkostleg
uppákoma
Nú vill svo til að rjóminn af verk-
um þessara listamanna er til sýnis að
Kjarvalsstöðum fyrir tilstilli félagsins
Germaníu og ættu allir þeir sem hallir
eru undir listir að skunda þangað
áður en það er um seinan, því sýning-
unni lýkur sunnudaginn 18. maí. í
stuttu máli sagt er þetta hreint stór-
kostleg uppákoma sem likja má við
Sonja Henie-Niels Onstad sýninguna
fyrir stuttu.
Um þýsku expressjónistana mætti
segja margt. Meðan París var hin
óopinbera menningarmiðstöð allrar
Evrópu á 19. öld, náði Þýskaland
aldrei að eignast eina óumdeilanlega
menningarborg sökum skiptingar
rikisins. í stað þess dreifðu menn
kröftum sínum í Berlín, í Múnchen, í
Hamborg o.s.frv. og eyddu orku
sinni í akademísk skilirí eða blaut-
legar rómantískar landslagsmyndir.
Það fór þó svo að nokkrum hug-
sjónamönnum í Dresden blöskraði
ástandið og árið 1905 stofnuðu þeir
listamannasamtök undir nafninu
„Die Briicke” (Brúin).
Að endurheimta
tilfinningar
Þetta voru nemendur í arkitektúr,
Ernst-Ludwig Kirchner, Karl
Schmidt-Rottluf, Erich Heckel o.fl.
Þeir vildu mótmæla viðteknum aka-
demískum gildum i list, endurheimta
sterkar og frumstæðar kenndir
mannsins og finna aftur það sakleysi
og ferskleika sem þeir töldu manninn
hafa tapað með tilkomu iðnbylting-
arinnar forðum. Allir urðu þessir
menn afkastamiklir listmálarar, en
inn í hreyfinguna bárust tónskáld
(Schðenberg), rithöfundar (Ko-
koschka o. fl.), myndhöggvarar
(Barlach, Lehmbruck) og dansarar,
en á fyrstu árum hreyfingarinnar var
samt megináhersla lögðá grafik. Það
var ekki síst miðlunargildi hennar
sem heillaði þá, sú staðreynd að
henni mátti dreifa til fjölda fólks á
lágu verði en þeir gerðu sér einnig
grein fyrir hinum sérstöku eiginleik-
um hennar sem sjálfstæðrar list-
greinar, — að trérista var boðberi
annars konar tilfinninga en kopar-
stungan, o.s.frv.
Diirer, Munch
og Freud
Þessi nýja upphefð grafíkur hafði
að vissu leyti í för með sér afturhvarf
til eldri listar, til þeirrar hefðar sem
Gutenberg gerði mögulega og lista-
menn eins og Schongauer og Diirer
lyftu i hæstar hæðir, en auk þess
töldu hinir ungu þýsku oflátungar sig
geta lært ýmislegt af Edward Munch,
sem var í miklu uppáhaldi í Þýska-
landi á þessum árum.
Ekki má heldur gleyma áhrifum
frumstæðrar listar á viðhorf þeirra,
svo og kenningum Freuds sem flett
hafði ofan af sálinni stuttu áður.
Það má eiginlega skipta hinum
þýska expressjónisma í þrennt, i
grafík jafnt sem málverki. Fyrst var
það Dresden-kjarninn, Kirchner,
Heckel, Schmidt-Rottluf og Fritz
Bleyl. Árið 1906 gekk Emil Nolde,
sem var mun eldri og reyndari lista-
maður, í þennan hóp og var viðloð-
andi hann á annað ár. Árið 1910 var
svo Otto Múller boðin þátttaka. Árið
1911 kom til sögunnar annar kjarni,
„Blaue Reiter” (Blái riddarinn)
suður í Múnchen og þar voru for-
sprakkar Rússinn Wassili Kandinsky,
Franz Marc, August Macke, Alexei
von Jawlensky og Paul Klee.
Að breyta
mannlrfinu
Þeir gerðu sér svipaðar hugmyndir
um listsköpun og þeir Brúcke-menn
nema hvað dulspeki var ríkari þáttur
af hugmyndafræði þeirra. Þessi
hópur tengdist svo ýmsum express-
jónistum „aðutan”, þ.e. fráAustur-
ríki, Berlín o.s.frv. Þar voru fremst í
flokki Oskar Kokoschka, svo og
Berlínarbúarnir Max Beckmann,
Otto Dix, Kathe Kollwitz o.fl. Allt
voru þetta mjög ólíkir listamenn en
Myndlist
Wassili Kandinsky — Litill heimur nr. VIII, trérista.
Paul Klee — Hið innra Ijós, stein-
prent i listum.
Oskar Kokoschka — Emmy Helm,
steinpr.
markmið þeirra voru í stórum drátt-
um þau sömu, að breyta þýsku þjóð-
félagi og mannlífi til betri vegar með
list sinni.
Á sýningunni að Kjarvalsstöðum
er að finna blómann af grafík fiestra
þessara listamanna. Þar kemur fram
sú mikla áhersla sem þeir lögðu á ein-
falda, volduga tréristu og fáa, sterka
litfleti, — en i notkun litar í tréristu
og dúkristu eru þeir brautryðjendur á
vorum timum. En á sýningunni ætti
að koma i ljós framlag þeirra til nú-
timalistar: táknrænar uppstillingar
Beckmanns, Ijóðrænn pantheismi
Campendonks, þjóðfélagsádrepur
Otto Dix, stílhreinar en dularfullar
útsetningar Feiningers, árásarhneigð
Grosz o.s.frv.
Að vísu saknar maður listamanna
eins og Kathe Kollwitz og Barlach, —
en nóg er fyrir samt.
- A1
Þunnur þrettándi
Kvikmynd: Chariaston
Leikstjóri: MarceNo Fondato
Handrit: MarcaNo Fondato
Kvikmyndataka: Giorgio di Battista
TónHsL Guldo og Maurizio da AngaNs
Meflal laikanda: Bud Spancar, Herbert Lom
Sýningarstaflur: Austurfasajarbfó
. Það er harla fátt um þessa mynd að
segja, enda er hún fiarska rislítil og
rýr í roðinu. Efnið er lítt til þess fallíð
að vekja hjá manni áhuga og auk
þess er illa úr þvi unnið. Söguþráður-
inn er til að mynda of ruglingslegur
og óljós til að hægt sé að hafa gaman
4C
Bud Spencer.
af atburðarásinni. Það hefði hugsan-
lega verið hægt að berja í brestina
með þvi að láta betri leikurum í té
betri tækifæri til að láta ljós sitt
skína, en því er ekki að heilsa. Það
er einna helst að Herbert Lom i hlut-
verki lögregluforingjans takist að
koma brosviprunum af stað með
harla góðum leik sinum, en það er
líka allt og sumt.
Charleston, sem leikinn er af Bud
Spencer, er býsna litlaus persóna.
Hann á að vera hinn fullkomni
sjentilglæpon sem verður aldrei uppi-
skroppa með sniðugar og arðbærar
hugmyndir.
Bud Spencer er i þessu hlutverki
afskaplega tilþrifalitill. Það er þvi
varla nema von, að árangurinn verði
lakur. Efnið, sem mynd þessi er unn-
in úr, er í rauninni þakklátt, en þaðer
nú þrátt fyrir allt nauðsynlegt að
vanda til verksins. Það hefur ekki
verið gert í þessu tilviki.
Kvik
myndir